Fótbolti

Ronaldo er með bumbu

Ronaldo sólaði bumbuna á Ibiza
Ronaldo sólaði bumbuna á Ibiza Mynd/The Sun

Brasilíski framherjinn Ronaldo hefur verið frá keppni vegna meiðsla síðan í febrúar en talsmenn AC Milan hafa sagt að endurhæfing hans hafi gengið vel. Kappinn virðist þó ekki hafa eytt öllum tímanum í tækjasalnum ef marka má myndir sem The Sun birti af honum.

Framherjinn hefur verið í sumarleyfi á Ibiza og virðist hafa verið ansi duglegur við að borða, því hann er kominn með vænan björgunarhring um mittið.

Ronaldo er samningslaus hjá AC Milan á Ítalíu og hefur verið orðaður m.a. við félög í heimalandi sínu Brasilíu.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×