Fótbolti

Amauri til Juventus

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Amauri fagnar einu marka sinna með Palermo á síðustu leiktíð.
Amauri fagnar einu marka sinna með Palermo á síðustu leiktíð. Nordic Photos / AFP

Brasilíski framherjinn Amauri hefur samið við ítalska úrvalsdeildarliðið Juventus til næstu fjögurra ára en hann kom frá Palermo fyrir 22,8 milljónir evra.

Þetta staðfesti Juventus á heimasíðu sinni í dag en Amauri var einnig orðaður við AC Milan sem og ensk úrvalsdeildarfélög.

Félagaskiptaferlið var flókið en niðurstaðan varð loksins ljós í dag. Antonio Noverino fer frá Juventus til Palmero sem þarf að greiða 7,5 milljónir evra fyrir hann.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×