Fótbolti

Kaka frá keppni í hálfan mánuð

Kaka missir af stórleiknum um næstu helgi
Kaka missir af stórleiknum um næstu helgi AFP

Miðjumaðurinn sókndjarfi Kaka hjá AC Milan getur ekki leikið með liði sínu næstu tvær vikurnar vegna meiðsla ef marka má tilkynningu frá félaginu í dag.

Kaka skoraði jöfnunarmark Milan í 1-1 jafntefli liðsins gegn botnliði Reggina í gær en þurfti að fara af velli eftir rúmlega klukkutímaleik vegna meiðsla.

Meiðsli Brasilíumannsins koma ekki á góðum tíma því þau þýða að hann muni missa af vináttuleik Brasilíumanna og Ítala á þriðjudaginn og síðari borgarslag Inter og AC næsta sunnudag.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×