Fótbolti

Pandev fer til Inter

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Goran Pandev.
Goran Pandev. Nordic Photos / AFP

Ítalskir fjölmiðlar greina frá því í dag að framherjinn Goran Pandev muni yfirgefa herbúðir Lazio og fara til Ítalíumeistara Inter.

Það hefur lengi verið rætt að Jose Mourinho væri ólmur að næla í leikmanninn og honum virðist hafa orðið að ósk sinni. Segir Corriere dello Sport að búið sé að ganga frá þriggja ára samningi.

Það er samt ekki enn ljóst hvort Pandev fer til Inter í janúar eða næsta sumar.

Lazio mun fá takmarkað verð fyrir leikmanninn enda rennur samningur Pandev við félagið út næsta sumar.

Pandev var í herbúðum Inter á árunum 2001-2004 en náði aldrei að spila leik fyrir félagð á þeim tíma þar sem hann var lánaður til Spezia og Ancona.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×