Fótbolti

Beckham ekki til AC í þriðja sinn

Elvar Geir Magnússon skrifar
Beckham með syni sínum í stúkunni í gær.
Beckham með syni sínum í stúkunni í gær.

Knattspyrnukappinn David Beckham mun ekki fara á lánssamningi til AC Milan á komandi tímabili eins og hann hefur gert síðustu tvö. Beckham var meðal áhorfenda á æfingaleik AC Milan og Arsenal í gær sem endaði með jafntefli 1-1.

„Hann er að jafna sig eftir mjög slæm meiðsli og það væri erfitt fyrir hann að koma aftur. Ég býst því ekki við því að hann spili aftur fyrir Milan," sagði Massimo Allegri þjálfari AC.

Beckham er 35 ára og er samningsbundinn Los Angeles Galaxy í Bandaríkjunum. Hann hefur tvisvar farið á láni til AC Milan á meðan bandaríska deildin er í fríi.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×