Fótbolti

Iker Casillas: Kallar eftir stöðugleika hjá Real Madrid

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Iker Casillas, markvörður spænska stórliðsins Real Madrid.
Iker Casillas, markvörður spænska stórliðsins Real Madrid. Mynd/AFP
Iker Casillas, markvörður spænska stórliðsins Real Madrid, vill að Manuel Pellegrini fái tækifæri til að þjálfa liðið áfram og hann kallar eftir meiri stöðugleika hjá félaginu. Real Madrid stendur líklega uppi titlalaust eftir tímabilið þrátt fyrir að hafa, síðasta sumar, eytt gríðarlegum fjármunum í marga af bestu leikmönnum heims.

„Ég hef alltaf verið hrifnastur af stöðugleika og sjálfstrausti sem kemur í framhaldi af því en þessi ákvörðunin er og hefur aldrei verið mín. Ég mun samt alltaf tala með því að gefa öllu tíma til að vaxa og dafna. Frá fyrstu æfingu þá hef ég séð Manuel [Pellegrini] vinna markvisst og af þekkingu. Við vonumst allir eftir meiri stöðugleika," sagði Casillas.

Real Madrid fer til Malaga á sunnudaginn í lokaumferðinni og getur orðið spænskur meistari en til að svo verði þá þurfa Barcelona-menn að tapa á heimavelli á móti Valladolid.

„Það getur allt gerst, frá því versta til þess besta. Við megum ekki gleyma því að við eigum eftir að spila okkar leik og þurfum fyrst og fremst að einbeita okkur að þvi að vinna okkar leik," sagði Casillas.

„Við hefðum viljað gera betur í hinum keppnunum og þá sérstaklega í Meistaradeildinni. Þau mistök okkar hafa hinsvegar skyggt á gott gengi í deildinni þar sem við höfum átt frábært tímabil. Stuðningsmenn okkar ættu að gleðjast yfir bættu gengi okkar í deildinni," sagði Casillas sem er að klára sitt ellefta tímabil sem aðalmarkvörður Real Madrid þrátt fyrir að vera aðeins 28 ára gamall.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×