Fótbolti

Moratti staðfestir áhuga Inter á Fabio Capello

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Fabio Capello, landsliðsþjálfari Englendinga.
Fabio Capello, landsliðsþjálfari Englendinga. Mynd/AP
Ítölsku Evrópumeistararnir í Internazionale Milan eru byrjaði að leita að eftirmanni þjálfarans Jose Mourinho, sem er á leiðinni til Real Madrid, og meðal þeirra sem koma til greina er Fabio Capello, landsliðsþjálfari Englendinga.

Massimo Moratti, forseti félagsins, er búinn að staðfesta að Capello sé á listanum yfir þá þjálfara sem hann sé að skoða en ítalski þjálfarinn var búinn að lýsa því yfir að hann ætlaði að þjálfar enska landsliðið áfram.

„Ég er ekki búinn að taka neina ákvörðun. Capello er einn af þeim sem koma til greina og hann hefur náð frábærum árangri á sínum ferli," sagði Massimo Moratti við Gazzetta dello Sport.

Þrátt fyrir að Fabio Capello ætli sér að vera áfram með enska landsliðið þá gæti veruleg kauphækkun freistað hans en það er ljóst að Moratti mun bjóða nýjum þjálfara súperlaun.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×