Fótbolti

Adriano orðaður við Roma

Henry Birgir Gunnarsson skrifar

Brasilíski framherjinn og þunglyndissjúklingurinn, Adriano, er smám saman að koma lífi sínu í réttar skorður á nýjan leik og hann íhugar nú að snúa aftur í evrópska boltann.

„Adriano er afar vonsvikinn með að hafa ekki fengið sæti í brasilíska landsliðinu á HM. Nú verðum við að hugsa um framtíðina. Við erum með tilboð frá Flamengo sem við þurfum meðal annars að skoða," sagði umboðsmaður framherjans.

Adriano flúði til heimalandsins frá Inter þar sem hann lenti í miklu bulli utan vallar og fékk samningi sínum við félagið því rift.

Ítölsk félög hafa fylgst náið með honum í Brasilíu og Roma er nú búið að gera leikmanninum tilboð.

„Við heyrðum síðast í Roma í janúar. Við munum nota næstu vikur til þess að ákveða hvort við förum aftur til Evrópu eða verðum áfram í Brasilíu," bætti umbinn við.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×