Fótbolti

Inter gerir ekki ráð fyrir að halda Mourinho

Henry Birgir Gunnarsson skrifar

Massimo Moratti, forseti Inter, er farinn að búa sig undir að þurfa að leita að nýjum þjálfara í stað José Mourinho. Portúgalinn er sterklega orðaður við Real Madrid og flest bendir til þess að hann fari þangað í sumar.

Mourinho sjálfur hefur lýst yfir áhuga á að þjálfa Real og þó svo hann vilji ekki gefa upp um hvað gerist í sumar reikna afar fáir með því að hann verði áfram á Ítalíu. Hann hefur verið mjög ósáttur með margt þar og verið í stöðugu stríði við ítalska fjölmiðla.

Moratti viðurkenni nú í fyrsta skipti að líklega fari Mourinho til Spánar. Þjálfarinn er þegar búinn að leggja grunninn að því að börnin hans skipti um skóla.

„Það er erfitt að áætla hvað svona kröftugur karakter gerir. Við vitum í raun ekki hvað hann ætlar að gera. Það verður annað hvort eitthvað sem mun koma okkur stórkostlega á óvart eða það sem við búumst við. Það er framtíð án Inter," sagði Moratti.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×