Fótbolti

Pastore: Draumurinn að spila fyrir Barcelona

Elvar Geir Magnússon skrifar

Æðsti draumur Javier Pastore er að ganga til liðs við Barcelona. Þessi miðjumaður Palermo á Ítalíu er mjög eftirsóttur og hefur meðal annars verið sterklega orðaður við Chelsea og Manchester United.

Pastore er tvítugur Argentínumaður en honum hefur verið líkt við Kaka hjá Real Madrid.

„Það er heiður að vera líkt við leikmann eins og Kaka. Ég er sífellt að bæta mig og lít á þennan samanburð sem mikið hrós," sagði Pastore.

„Draumur minn er að klæðast búningi Barcelona einn daginn og spila með Messi. Ég er samt alveg rólegur yfir þessu og hugsa ekki mjög langt fram í tímann."






Fleiri fréttir

Sjá meira


×