Fótbolti

Ronaldinho fær tveggja ára samning

Henry Birgir Gunnarsson skrifar

Brasilíumaðurinn Ronaldinho verður væntanlega áfram í herbúðum AC Milan eftir allt saman. Nýr tveggja ára samningur liggur á borðinu sem verður væntanlega skrifað undir.

Núverandi samningur leikmannsins átti að renna út næsta sumar. Ljóst var að hann þarf að taka á sig launalækkun og svo virðist vera sem hann ætli að sætta sig við það.

„Ég er búinn að ræða við forráðamenn Milan og við hittum þá aftur þegar Dinho kemur til baka úr fríinu sínu," sagði umboðsmaður Ronaldinho.

Umbinn segir reyndar að það sé ekkert búið að ræða peningamál af alvöru en er samt bjartsýnn á að skrifað verði undir samninginn.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×