Fótbolti

Tímabilið gæti verið búið hjá Inzaghi

Henry Birgir Gunnarsson skrifar

Framherjinn síungi, Filippo Inzaghi, varð fyrir alvarlegum meiðslum gegn Palermo og svo gæti farið að hann spili ekki meira með AC Milan í vetur.

Liðbönd í hné sködduðust og það tekur sinn tíma fyrir 37 ára gamlan mann að jafna sig af slíkum meiðslum.

Inzaghi er ekki eini leikmaðurinn hjá Milan sem er að glíma við meiðsli því Brasilíumaðurinn Alexandre Pato er einnig meiddur.

Pato verður því ekki með í nágrannaslagnum gegn Inter á sunnudag og hann mun heldur ekki spila með brasilíska landsliðinu í vináttuleik gegn Argentínu í næstu viku.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×