Fótbolti

Ronaldinho fær ekki að fara í janúar

Henry Birgir Gunnarsson skrifar

Brasilíumaðurinn Ronaldinho mun líklega klára tímabilið með AC Milan þó svo hann sé búinn að semja við brasilíska félagið Gremio og Milan sé búið að kaupa Antonio Cassano frá Sampdoria.

Ronaldinho getur aðeins farið til Gremio í janúar ef Milan leyfir honum að fara en félagið virðist ekki vera til í það þó svo það sé lítið að nota Brassann.

Sjálfur vill leikmaðurinn komast sem fyrst frá Ítalíu og umboðsmenn hans sitja að samningaborðinu með forráðamönnum Milan í von um að losa leikmanninn frá skyldum sínum við félagið.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×