Fótbolti

Milan bað Maldini um að taka skóna úr hillunni

Elvar Geir Magnússon skrifar
Paolo Maldini.
Paolo Maldini.

Greint er frá því í ítölskum fjölmiðlum að AC Milan hafi beðið Paolo Maldini um að taka skóna fram að nýju eftir meiðsli Alessandro Nesta í síðasta mánuði.

Adriano Galliani, varaforseti félagsins, var áhyggjufullur af lítilli breidd liðsins varnarlega. Hann hafði þá samband við Maldini og bað hann um að klára tímabilið með liðinu en Maldini lagði skóna á hilluna fyrir tíu mánuðum.

Boðið kom Maldini, sem er 41. árs, mjög á óvart. Hann fékk sólarhring til að hugsa málið en neitaði tilboðinu eftir að hafa ráðfært sig við fjölskyldu sína.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×