Fótbolti

Motta verður áfram hjá Inter

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Motta fagnar með Eto´o.
Motta fagnar með Eto´o.
Þrátt fyrir miklar vangaveltur síðustu vikur verður ekkert af því að Thiago Motta fari frá ítalska liðinu Inter. Leikmaðurinn vill ekki fara frá liðinu.

Arsenal var á meðal þeirra liða sem gerðu hosur sínar grænar fyrir Motta en Arsene Wenger, stjóri Arsenal, hafði ekki erindi sem erfiði.

"Þjálfarinn vill halda honum og hann vill spila áfram með Inter. Hann verður áfram í búningi félagsins," sagði umboðsmaður Motta.

Motta kom til Inter frá Genoa árið 2009. Hann hefur verið lykilmaður hjá félaginu síðan.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×