Fótbolti

Forlan á leið til Inter

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Diego Forlan í leik með Atletico.
Diego Forlan í leik með Atletico. Nordic Photos / Getty Images
Diego Forlan, leikmaður Atletico Madrid á Spáni, er á leið til Inter á Ítalíu að sögn knattspyrnustjóra fyrrnefnda liðsins.

Forlan hefur verið hjá Atletico í fjögur ár og er nú ætlað að fylla í skarð Samuel Eto'o hjá Inter.

Hann kom ekki með Atletico til Portúgal þar sem liðið mætti Vitoria Guimaraes í Evrópudeild UEFA á fimmtudaginn.

„Nú vitum við af hverju. Hann á í samningaviðræðum við Inter og er það almenn vitneskja.“

„Það verður líklega gengið frá þessu á næstu klukkustundum og þá verður hann ekki lengur leikmaður Atletico.“

Fyrir stuttu missti Atletico annan framherja, Sergio Agüero, til Manchester City en fékk þess í stað Falcao sem sló í gegn með Porto á síðustu leiktíð.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×