Fótbolti

Sneijder: Mourinho sagði mér að vera áfram hjá Inter

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Wesley Sneijder segir að Jose Mourinho, þjálfari Real Madrid, hafi ráðlagt sér að vera áfram hjá Inter í vetur. Sneijder var orðaður við brottför frá Inter í allt sumar og þá aðallega við Man. Utd.

"Mourinho hringdi í mig og sagði mér að vera áfram hjá Inter. Jose er með Inter-hjarta og hefur alltaf sagt mér að vera áfram hjá félaginu. Ég er ánægður með þá ákvörðun enda vildi ég aldrei fara. Ég mun því ekki ræða frekar um Man. Utd," sagði Hollendingurinn.

Sneijder segist ekkert vita um meintan áhuga Man. City en hermt var að City hefði boðið Carlos Tevez í skiptum fyrir Sneijder.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×