Fótbolti

Moratti: Gengið er ekki Ranieri að kenna

Claudio Ranieri.
Claudio Ranieri.
Það hefur ekkert gengið hjá Inter í vetur og þjálfaraskipti snemma veturs hafa litlu breytt fyrir félagið. Massimo Moratti, forseti Inter, vill þó ekki kenna núverandi þjálfara, Claudio Ranieri, um gengið síðustu vikur.

Inter hefur aðeins unnið tvo af fyrstu níu leikjum sínum í ítölsku deildinni og er í 17. sæti.

"Hvað sem líður þá er þetta ekki Ranieri að kenna. Við verðum að vera þolinmóðir og taka eitt verkefni fyrir í einu," sagði Moratti en hann mun líklega bregðast við ástandinu og versla í janúar.

"Við verðum að sjá hvað gerist þá."






Fleiri fréttir

Sjá meira


×