Fótbolti

Juventus vill fá Bale og Nani

Bale er í miklum metum á Ítalíu eftir að hann fór illa með Inter í Meistaradeildinni.
Bale er í miklum metum á Ítalíu eftir að hann fór illa með Inter í Meistaradeildinni.
Það er uppgangur hjá Juventus þessa dagana og forráðamenn félagsins hugsa stórt. Nú vilja þeir fá þá Gareth Bale og Nani til félagsins.

Nýir styrktarsamningar hafa styrkt fjárhagsstöðu félagsins gríðarlega og nú á að láta til sín taka á leikmannamarkaðnum fyrir allan seðilinn.

Juventus er búið að setja upp óskalista og efstir á þeim lista eru Bale og Nani.

Hvorugur er reyndar til sölu en spurning hvað Juve getur boðið mikið í leikmennina.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×