Fótbolti

Seedorf: Tevez eltir alltaf peningana

Seedorf með Zlatan.
Seedorf með Zlatan.
Hollenski reynsluboltinn Clarence Seedorf hjá AC Milan er ekkert sérstaklega spenntur fyrir því að fá Argentínumanninn Carlos Tevez til félagsins.

Milan hefur verið í viðræðum við Man. City um leikmanninn en nokkuð er í að félögin nái saman. City vill selja en Milan vill byrja á því að fá leikmanninn lánaðan.

"Þegar maður skoðar feril hans, umboðsmanninn hans og allt sem hefur gerst í kringum hann þá er eitthvað sem segir mér að Tevez fari eingöngu til þess liðs sem býður mestan pening," sagði Seedorf.

"Ef hann kæmi til Milan þá yrði það í fyrsta skipti sem hann myndi velja félag af fótboltalegum en peningalegum ástæðum. Við sjáum hvað setur."

PSG er eitt þeirra liða sem hefur einnig áhuga og þar gæti verið nóg af peningum í boði.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×