Fótbolti

Hættir fyrirsætustörfum til að einbeita sér að dómgæslu

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Mynd/Instagram
Claudia Romani, 32 ára fyrirsæta og knattspyrnudómari, hefur ákveðið að hætta fyrirsætustörfum til að einbeita sér að dómgæslunni.

Hún stóðst nýverið dómarapróf og er komin með réttindi til að dæma í efstu tveimur deildum á Ítalíu, Serie A og Serie B.

„Það er einfaldlega ómótstæðilegt tækifæri að hlaupa um völlinn með öllum þessum leikmönnum og fá að stjórna ferðinni,“ er haft eftir Romani í fjölmiðlum ytra.

Engin kona hefur áður dæmt í efstu deild á Ítalíu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×