Fótbolti

Emil sá rautt í markalausu jafntefli

Tómas Þór Þórðarson skrifar
Emil Hallfreðsson lætur finna fyrir sér.
Emil Hallfreðsson lætur finna fyrir sér. vísir/getty
Emil Hallfreðsson, landsliðsmaður í fótbolta, og félagar hans í Hellas Verona gerðu markalaust jafntefli við Empoli í ítölsku A-deildinni í fótbolta í dag.

Emil var rekinn af velli í leiknum þegar hann fékk sitt annað gula spjald á 77. mínútu, en það fyrra gula fékk hann aðeins níu mínútum fyrr.

Með því varð jafnt í liðum því Lorenzo Tonelli fékk rautt í liði Empoli á 65. mínútu, þremur mínútum áður en Emil fékk sitt fyrra gula spjald.

Verona er nú í 15. sæti með 18 stig eftir 17 umferðir.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×