Landráð?
Skýrsla sem Verðlagsstofa Skiptaverðs gerði um samanburð á verði makríls á Íslandi og í Noregi á árunum 2012 til 2018 bendir hins vegar til þess að svo sé ekki, í það minnsta ekki alltaf. Þar sést að verð á makríl sem hráefni án tillits til ráðstöfunar sem var landað í Noregi var að meðali 227% hærra en á þeim sem var landað á Íslandi. Árið 2018 var þessi munur um það bil 300%.
Það er heimsmarkaður á makríl þannig að verðið í Noregi markaðist af heimsmarkaðsverðinu. Verðið á Íslandi markaðist af einhverju allt öðru. Heildartekjur útgerðarinnar íslensku af makríl á því ári voru um 25 milljarðar, þannig að einhvers staðar hurfu 50 milljarðar af verðmætinu við það eitt að makrílnum var landað á Íslandi. Það sem meira er þá sveiflaðist verðlag á aflanum sem var landað í Noregi eftir því hvernig heimsmarkaðsverð á makríl þróaðist.
Á Íslandi var verðið nokkurn vegin það sama allt árið um kring, sem þýðir einfaldlega að það var ekki einungis þrisvar sinnum lægra heldur líka með öllu óháð raunverulegu verðmæti makrílsins. Og síðan hitt, það hlýtur að hafa verið verðsamráð meðal kaupendanna. Það ku vera nokkuð einhlít regla að útgerðarfyrirtækin stóru sem veiddu makrílinn eigi líka vinnslufyrirtækin og söluaðilina. Sagan segir að makríllinn hafi síðan verið seldur frá Íslandi til erlendra fyrirtækja í eigu útgerðarfyrirtækjanna. Á síðasta ári var meðalverð sem fékkst fyrir íslenska makrílinn 65% lægra en fyrir þann norska. Það var sem sagt prýðilegt tækifæri fyrir þessi erlendu fyrirtæki í eigu íslenskrar útgerðar til þess að selja makrílinn áfram á miklu hærra verði. Ef það sem að ofan greinir er rétt þá eru afleiðingar þess að útgerðirnar hafi gert sekar um þjófnað, skattsvik og peningaþvætti:
1. Sjómenn sem veiddu makrílinn voru hlunnfarnir svo að um munar. Það má leiða að því rök að útgerðirnar hafi stolið af þeim stórfé.
2. Útgerðirnar stálu ekki bara fé af sjómönnunum heldur líka sveitafélögunum þar sem þeir greiddu sín opinberu gjöld.
3. Útgerðirnar hlunnfóru sveitarfélögin með því að greiða ekki hafnargjöld í samræmi við raunverulegt verðmæti aflans.
4. Útgerðirnar gáfu erlendum félögum, sem þær áttu, hluta af tekjum sínum og greiddu þarfaleiðandi ekki af þeim skatt.
5. Útgerðirnar stunduðu peningaþvætti í gegnum félögin, sem þær áttu í útlöndum. Útgerðirnar notuðu félögin til þess að fela tekjur og koma þeim undan skatti.
Nú veit ég ekki hvort þetta er eins og að ofan var rakið og vona sannarlega að svo sé ekki. Skýrsla Verðlagsstofu Skiptaverðs bendir hins vegar til þess að svo gæti verið, án þess að ég vilji leggja mat á líkurnar. En þar sem um er að ræða þann möguleika að það sé verið að stela af sameiginlegri auðlind þjóðarinnar verður að rannsaka þetta ofan í kjölinn og það sem meira er, Alþingi verður að sjá til þess að það verði gert fljótt og á heiðarlegan máta. Það er ekki síður mikilvægt fyrir útgerðina en þjóðina alla.
Það vekur hins vegar hjá mér óhug að það lítur út fyrir að þetta mál hafi nú þegar verið rætt bæði í þingnefndum og á fundum þingflokka stjórnmálaflokkanna, án þess að þeim hafi fundist ástæða til þess að gera nokkurn skapaðan hlut í málinu. Það má geta sér til um heildarstærð þessa máls með því að horfa til þess að á síðustu sjö árum hafa um það bil 300 milljarðar króna af norsku verðmæti makríls horfið við það eitt að honum var landað á Íslandi. Hvernig skyldi dæmið líta út ef við tækjum með í reikninginn allar tegundir fiskjar sem útgerðarfyrirtækin veiða við strendur landsins?
Höfundur er forstjóri Íslenskrar erfðagreiningar.
Skoðun
Hér er kona, um konu…
Vilborg Gunnarsdóttir skrifar
Vegna greinar Snorra Mássonar
Guðmundur Andri Thorsson skrifar
Ertu á krossgötum?
Þuríður Santos Stefánsdóttir skrifar
Vísvita villandi fréttaflutningur Morgunblaðsins?
Sigurjón Þórðarson skrifar
Hafa fyrrum æskunnar eftirlætisbörn og nú ellinnar olnbogabörn fengið nóg?
Gunnar Ármannsson skrifar
Máttur kaffibollans
Ásta Kristín Sigurjónsdóttir skrifar
Hefjum aðildarviðræður við Bandaríkin
Einar Jóhannes Guðnason skrifar
Eru tengsl milli Úkraínustríðsins og breyttrar stöðu Grænlands?
Hilmar Þór Hilmarsson skrifar
Árið 1975 er að banka
Rakel Linda Kristjánsdóttir skrifar
Viljum við að erlendir milljarðamæringar setji einhliða leikreglurnar í almannarýminu okkar?
Elfa Ýr Gylfadóttir skrifar
Val Vigdísar
Skúli Ólafsson skrifar
Friður á jörðu
Þröstur Friðfinnsson skrifar
Af hverju eru kennarar að fara í verkfall?
Anton Már Gylfason skrifar
Opið bréf til Íslandspósts ohf.
Gróa Jóhannsdóttir skrifar
Gaza getur ekki beðið lengur
Hjálmtýr Heiðdal,Magnús Magnússon skrifar
Ísland yrði betra með aðild að Evrópusambandinu
Jón Frímann Jónsson skrifar
SVEIT – Kastið inn handklæðinu
Aðalsteinn Árni Baldursson skrifar
Skjáfíkn - vísindi eða trú?
Ásdís Bergþórsdóttir skrifar
Evrópusambandið eða nasismi
Snorri Másson skrifar
Friður eða svikalogn? Hilmari Þór Hilmarssyni, prófessor, svarað
Andri Þorvarðarson skrifar
Hlýnun jarðar mun ekki valda heimsendi
Sæunn Kjartansdóttir skrifar
Listin að styðja en ekki stýra
Árni Sigurðsson skrifar
Með vægi í samræmi við það
Hjörtur J. Guðmundsson skrifar
Hugvíkkandi efni: Forvitni umfram dómhörku
Bergsveinn Ólafsson skrifar
Velferðartækni er það lykillinn að sjálfbærara heilbrigðiskerfi?
Helga Dagný Sigurjónsdóttir skrifar
Hindrum fleiri græn gímöld með einföldun regluverks
Ásta Logadóttir,Trausti Björgvinsson skrifar
Vegna FB færslu Kristins Hrafnssonar: Misskilningur um endurgreiðslukerfi kvikmynda
Ólafur William Hand skrifar
Hvernig tölum við um mat í kringum börnin okkar?
Berglind Lilja Guðlaugsdóttir skrifar
Fangelsismál - Sparnaður og endurhæfing
Ólafur Ágúst Hraundal skrifar