Anna Dóra sagði af sér sem forseti Ferðafélags Íslands í skugga deilna á milli hennar og stjórnar félagsins í síðasta mánuði. Sakaði hún stjórnina um að taka ekki rétt á málum sem varðaði kynferðislega áreitni eða ofbeldi sem komið hefðu upp á undanförnum árum. Lýsti hún einnig erfiðleikum í samskiptum við Pál Guðmundsson, framkvæmdastjóra, og að henni hafi reynst erfitt að fá svör frá honum um rekstur Ferðafélagsins.
Á móti sakaði Sigrún Valbergsdóttir, sem tók við sem forseti FÍ, Önnu Dóru um ólýðræðisleg vinnubrögð og að hún hafi viljað skipta um framkvæmdastjóra án samráðs við stjórnina.
Í bréfi sem Sigrún skrifaði félögum í Ferðafélaginu í kjölfar afsagnar Önnu Dóru sagði hún að stjórnin hefði lagt fram tillögu um að Anna Dóra héldi sig til hlés um tíma á meðan fundin væri lausn á samskiptavandanum og að fengin yrði utanaðkomandi ráðgjafi til þess að aðstoða við það. Anna Dóra hafi hafnað þeim tillögum.
Það sem kom ekki fram í lýsingu Sigrúnar á tillögum stjórnarinnar var að Anna Dóra átti hvorki að vera í daglegum samskiptum við framkvæmdastjóra, stjórn né starfsfólk á skrifstofu samkvæmt þeim. Í afriti af tillögunni sem Vísir er með kemur fram að fyrirkomulagið átti hvorki að vera gert opinbert né tilkynnt utan stjórnar og framkvæmdastjóra á nokkurn hátt.
„Þarna átti ég bara að þegja“
Anna Dóra segir Vísi að þau Ólöf Kristín Sívertsen og Pétur Magnússon, stjórnarmenn hjá Ferðafélaginu, hafi mætt með tillöguna til hennar í vinnuna 5. júní. Þar hefðu þau lýst fyrir henni að hversu viðkvæmur Páll Guðmundsson, framkvæmdastjóri, væri og mikið að gera hjá honum. Því mætti hún ekki vera í sambandi við hann eða spyrja hann frekari spurninga um rekstur félagsins.
„Svo drógu þau upp þetta blað og ætluðust til þess að ég skrifaði undir það á staðnum,“ segir Anna Dóra.
Tillagan gerði ráð fyrir að Anna Dóra héldi sig til hlés og væri ekki í samband við stjórnendur eða starfsfólk Ferðafélagsins frá 1. júní til 31. september. Hún ætti að beina öllum erindum og fyrirspurnum sem hún fengi sem forseti til framkvæmdastjóra eða varaforseta til afgreiðslu. Í undantekningartilvikum, sem fulltrúar stjórnar ætluðu að leggja mat á hver væru, mætti forseti þó sinna ákveðnum verkum eða málum.
Anna Dóra segist ekki hafa ekki viljað skrifa undir tillögunar að óathuguðu máli og skildu þau Ólöf og Pétur því bréfið eftir og sendu þær síðan í tölvupósti.
„Ég fékk enga skýringu á því af hverju ég mætti ekki heldur tala við neinn af öðru starfsfólki eða neinn úr stjórninni.“

Segir öllum spurningum svarað á félagsfundi í kvöld
Anna Dóra skrifaði aldrei undir tillögurnar. Hún segir að í þeim hafi falist að hún ætti að bera ábyrgð á öllu sem forseti félagsins án þess að vera inni í rekstri þess.
„Maður á aldrei að bera ábyrgð á einhverju sem maður veit ekki hvað er. Ég átti bara að halda mig til hlés. Ég átti ekki að koma nálægt neinu þarna. Ég kallaði þetta bara þöggunarbréf eða þöggunarsamning. Þarna átti ég bara að þegja,“ segir Anna Dóra.
Ólöf Kristín sagðist ekki vilja tjá sig þegar Vísir bar undir hana hvers vegna stjórnin hafi lagt til að Anna Dóra mætti ekki ræða við framkvæmdastjóra, stjórn eða starfsfólk á skrifstofu Ferðafélagsins. Öllum spurningum yrði svarað á félagsfundi sem fer fram í kvöld.
Ekki náðist í Pétur Magnússon við vinnslu fréttarinnar.
Vantrauststillaga á stjórn Ferðafélagsins hefur verið boðuð fyrir félagsfundinn í kvöld. Kristín I. Pálsdóttir, félagi í FÍ, sakar stjórnina og framkvæmdastjóra um að taka kvartanir um ofbeldi og áreitni ekki alvarlega.
„Undanfarna daga hef ég verið í sambandi við fjölda kvenna sem hafa sögur að segja sem tengjast Ferðafélaginu og auðheyrt er að þolendur hafa ekkert traust til félagsins til að leysa slík mál á farsælan hátt. Mér hafa t.d. borist upplýsingar um að atvik er varða einn fararstjóra félagsins skipti jafnvel tugum á vettvangi félagsins. Fjöldi erinda hefur borist mér varðandi sama aðila í störfum hans á öðrum vettvangi,“ sagði í erindi sem Kristín sendi stjórn Ferðafélagsins.
Hér fyrir neðan má lesa tillögu stjórnar Ferðafélags Íslands um að forsetinn drægi sig í hlé.