Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir þingmaður Viðreisnar hóf sérstaka umræður á Alþingi í dag um fyrirætlan fjármálaráðherra að slíta sjóðnum með setningu laga. Með því væri verið að ganga á eignarrétt lífeyrissjóðanna og skilja lífeyrissjóðina eftir með um 150 milljarða tap.
„Hugmynd fjármálaráðherra var að spara ríkissjóði þessa milljarða með því að standa ekki við skuldbindingar sínar heldur láta lífeyrissjóði taka á sig fjártjónið,“ sagði Þorbjörg Sigríður.
„Og nú á að breyta þessum skuldabréfum með lögum. En vandinn er bara sá að fjármálaráðherra er þar brotlegur við stjórnarskrá. Alþingi þarf auðvitað að ræða vandlega hvernig á að leysa stöðu ÍL-sjóðs. Viðreisn mun ekki veigra sér við slíkri umræðu en lausnirnar verða að vera byggðar á sanngirni og að lágmarki að vera löglegar,“ sagði þingmaður Viðreisnar.
Bjarni Benediktsson fjármálaráðherra sagði að sjálfsögðu ekki standa til að ríkissjóður stæði ekki við skuldbindingar sínar. Hann vakti athygli á skýrslu um stöðu ÍL-sjóðs sem hann lagði fyrir Alþingi í október. Þar hefði einnig komið fram lögfræðiálit sem væru önnur en þau sem þingmaður Viðreisnar vísaði til.
„Mér finnst dálítið dapurlegt að hér í þessum sal skuli ríkissjóður ekki eiga fleiri vini. Ég verð að segja alveg eins og er að það slær mig undarlega þegar þingmenn standa hér upp og tala um það að hugmyndir séu brot á stjórnarskrá. Bara hugmyndin um að gera eitthvað í málinu, það er brot á stjórnarskrá sagði háttvirtur þingmaður,“ sagði Bjarni.
Það kæmi honum hins vegar ekki á óvart þegar menn ákvæðu að taka einungis upp málstað þeirra sem hefðu hagsmuni í málinu.
„Kröfuhafanna sjálfra og flytja hér inn í þingsal. Að menn hafi komist að sömu niðurstöðu og þeir sem halda á hagsmununum,“ sagði Bjarni. Ríkissjóður vildi greiða að fullu að fullu þann höfuðstól sem ábyrgðin stæði á bakvið.
Bjarni benti á að verið væri að ræða mál sem ekki væri komið fram á Alþingi. Hann fagnaði hverju tækifæri til að ræða þetta mál.
„En ég kalla eftir því að menn haldi aðeins aftur af sér með stórkarlalegar yfirlýsingar um hrun á lánstrausti ríkissjóðs þegar ekkert á mörkuðunum sem eru lifandi á hverjum degi gefur vísbendingar um að lánstraust ríkissjóðs hafi breyst á nokurn hátt,“ sagði Bjarni Benediktsson.