Handbolti

Hetju­­leg bar­átta dugði ekki til sigurs gegn Evrópu­­meisturunum

Ágúst Orri Arnarson skrifar
Framundan er erfitt verkefni hjá íslenska liðinu gegn ríkjandi Evrópumeisturum Ungverjalands. 
Framundan er erfitt verkefni hjá íslenska liðinu gegn ríkjandi Evrópumeisturum Ungverjalands.  HSÍ

Íslenska kvennalandsliðið í handbolta skipað leikmönnum 20 ára og yngri laut í lægra haldi gegn Evrópumeisturunum frá Ungverjalandi í framlengdum leik átta liða úrslitum á HM í kvöld. Stelpurnar okkar sýndu hetjulega baráttu í leiknum.

Fyrir leik var ljóst að stelpurnar okkar myndu þurfa að hitta á sinn besta dag til þess að skáka öflugu liði Ungverjalands. Íslenska liðið hafði þó sýnt það fram að leik dagsins á mótinu að þær voru til alls líklegar.

Leikurinn byrjaði þó ekki vel fyrir bæði lið því eftir aðeins um eina mínútu fór rafmagnið af höllinni í Norður-Makedóníu þar sem að leikurinn fór fram og fór svo að ekki tókst að hefja leika aftur fyrr en tuttugu mínútum síðar.

Leikar stóðu 19-12 Evrópumeisturunum frá Ungverjalandi, sjö marka forysta þeim í vil í hálfleik.

Stelpurnar okkar bitu þó frá sér í seinni hálfleik og náðu fljótt að saxa á forystu Evrópumeistaranna og skildu aðeins tvö mörk liðin að þegar að fjórar mínútur eftir lifðu af leiknum, 28-26, Ungverjum í vil.

Það býr mikill kraftur í okkar stelpum sem náðu að minnka muninn niður í eitt mark þegar að innan við mínúta eftir lifði leiks. 29-28, Ungverjarnir brunuðu síðan í sókn en töpuðu boltanum.

Tækifæri fyrir Ísland að jafna leikinn. Íslensku stelpurnar geystust fram í sókn og fengu vítakast. Lilja Ágústsdóttir skoraði úr því vítakasti og jafnaði leikinn. Hreint út sagt lygileg endurkoma hjá okkar stelpum sem knúðu fram framlengingu eftir að hafa brúað sjö marka forystu Evrópumeistaranna frá því í háflleik.

Ungverjarnir reyndust þó sterkari í framlengingunni og fóru að lokum með þriggja marka sigur af hólmi, 34-31. Það verður þó ekki tekið af stelpunum okkar að barátta þeirra var hetjuleg með meiru.

Íslenska liðið mun í framhaldinu leika um sæti fimm til átta á HM.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×