Innlent

Eldur í öku­tæki í Bríetartúni

Atli Ísleifsson skrifar
Tilkynnt var um eldinn um klukkan sjö.
Tilkynnt var um eldinn um klukkan sjö. Salvar

Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins var kallað út eftir að tilkynnt var um eld í ökutæki í Bríetartúni í Reykjavík í morgun.

Samkvæmt upplýsingum frá slökkviliði er búið að slökkva eldinn en tilkynnt var um eldinn um klukkan sjö.

Varðstjóri var í samtali við fréttastofu ekki með frekari upplýsingar um hvers hyns ökutæki var um að ræða.

Slökkvilið var með nokkurn viðbúnað í Bríetartúni í morgun.Salvar
Salvar



Fleiri fréttir

Sjá meira


×