Svíar líta til kjarnorkuvopna Samúel Karl Ólason skrifar 27. janúar 2026 22:50 Ulf Kristersson segir Svía eiga í viðræðum um kjarnorkuvopn við Breta og Frakka. EPA/OLIVIER MATTHYS Ulf Kristersson, forsætisráðherra Svíþjóðar, segir að ríkisstjórn hans hafi átt í grunnviðræðum við yfirvöld Í Bretlandi og í Frakklandi um mögulegt samstarf á sviði kjarnorkuvopna. Ummælin þykja benda til þess að ráðamenn í Evrópu telji sig geta mögulega ekki reitt sig á vernd Bandaríkjanna.
Í viðtali við sænska ríkisútvarpið, SVT, vildi Kristersson ekki fara nánar út í þessar viðræður eða hvort þetta samstarf með kjarnorkuvopn væri mögulegt. Hann nefndi þó að ráðamenn í Frakklandi hefðu talað um að eiga í samstarfi við önnur ríki Evrópu um kjarnorkuvopn. Eins og staðan er í dag eru Bretar, Frakkar og Rússar einu þjóðir Evrópu sem eiga kjarnorkuvopn. Ráðamenn í Belarús hafa haldið því fram að búið sé að koma fyrir rússneskum kjarnorkuvopnum þar. Sænskur sérfræðingur sem SVT ræddi við sagði að ummælin væru til marks um breytt viðhorf ráðamanna í Evrópu til Bandaríkjanna og frekari vilja heimsálfunnar til að auka sjálfstæði í varnarmálum. Trump hefði í raun sjálfur valdið þessari breytingu. Kristersson sagði einnig í viðtali á laugardaginn að hegðun Trumps hefði komið niður á sambandi Evrópu og Bandaríkjanna. Sérstaklega hvað varðar hótanir Trumps í garð Grænlands og Danmerkur og NATO-ríkja sem stóðu með Grænlendingum og Dönum. Hann sagði að Svíar þyrftu að taka stjórn á eigin aðstæðum og styrkja ríkið og Atlantshafsbandalagið, í samvinnu við önnur aðildarríki í Evrópu. Nefndi hann sérstaklega Danmörku, Finnland, Noreg, Eystrasaltsríkin, Pólland, Þýskaland og Bretland. „Við viljum byggja okkar evrópska NATO.“ Rutte ósammála Ráðamenn í Evrópu vinna víða að því að auka hernaðarmátt og hergagnaframleiðslu, með því markmiði að geta varið sig án aðstoðar frá Bandaríkjunum í framtíðinni. Mark Rutte, framkvæmdastjóri NATO, gerði í gær lítið úr þeirri hugmynd að ríki Evrópu gætu varið sig án Bandaríkjanna. „Ef einhver heldur hér, að Evrópusambandið eða Evrópa í heild geti varið sig án Bandaríkjanna, látið ykkur dreyma áfram,“ sagði Rutte á fundi varnar- og utanríkismálanefndar Evrópuþingsins. Hann sagði einnig að varnir Evrópu myndu kosta fúlgur fjár án Bandaríkjanna. Evrópumenn gætu gleymt því að halda sig við fimm prósent af landsframleiðslu, sem er nýja viðmið NATO. Án Bandaríkjanna þyrftu ríki Evrópu að fara í tíu prósent og þar að auki myndi það kosta milljarða á eftir milljörðum að koma upp þeim forvörnum sem Evrópa nýtur vegna kjarnorkuvopna Bandaríkjamanna. Í skýrslu Stockholm International Peace Research Institute (SIPRI) sem birt var í fyrra segir að umræða um það hvort ríki eigi að koma sér upp kjarnorkuvopnum hafi stungið upp kollinum í Asíu, Mið-Austurlöndum og Evrópu á undanförnum árum. Þessi umræða hefur meðal annars verið tekin í Suður-Kóreu og Japan en þar er hún til komin af ótta við að Bandaríkjamenn væru ekki tilbúnir til taka áhættuna á því að beita sínum kjarnorkuvopnum til að svara fyrir kjarnorkuárásir á þau ríki frá Norður-Kóreu.
Svíþjóð Frakkland Bretland Kjarnorkuvopn NATO Bandaríkin Donald Trump Hernaður Rússland Belarús Suður-Kórea Japan Norður-Kórea Mest lesið Syrgja starfsmann sem lést í slysi Innlent Maðurinn sem lést var Íslendingur Innlent Kallar Ólaf Ragnar „Rússagælu“ Innlent „Ég elska Obbu“ Innlent Lést eftir alvarlegt slys á Gæsavatnaleið Innlent Biður Jón afsökunar Innlent Móðir ósátt við að bara aprílbörn fái ekki RS-bóluefni Innlent „Vitum ekki hvaða skrímsli er verið að skapa“ Innlent Ræstingakona læstist óvart í fangaklefa í þrjá daga Erlent Flúði táragas lögreglu í Nice Innlent Fleiri fréttir Fjórir hermenn létust í eldsvoða Ræstingakona læstist óvart í fangaklefa í þrjá daga Hörð átök lögreglu og mótmælenda í París Barn og fullorðinn létu lífið þegar bíl var ekið inn á knattspyrnuvöll Landtökumenn réðust á evrópska erindreka Lögreglan skarst í leikinn á mótmælum í Kaupmannahöfn Setti málningu í matinn og eitraði fyrir hundruðum barna Mótmælendur réðust inn í ráðhúsið í Marseille Alvarlega slösuð eftir skotárás í íþróttahúsi Frestar gildistöku refsiaðgerða gegn Rússlandi Faðir tveggja nemenda í skólanum sá sem skaut árásarmanninn Varaði við nýju Rússlandi Pútíns Ástvinir þeirra sem létust í flugslysinu bíða enn Talsmaður Trumps rekinn eftir brösuglega byrjun Deilt um sönnunargögn og mögulegan vitorðsmann Norðmaður í tuttugu ára fangelsi í Bretlandi vegna leigumorðs Landtökumenn börðu og rændu ljósmyndara Washington Post „Atkvæði gegn Kanada er hættuleg blekking“ Rýnt í stöðuna í Úkraínu: Trump hleypir öllu í bál og brand, aftur Árásarmaðurinn sextán ára Skipun um að hægja á Starshield hafi komið úr Hvíta húsinu Minnst fjórir féllu í skotáras í Oregon Lést í stormi í Færeyjum Hættir við að skjóta Hasan í beinni Biðja viðskiptavini að vera á varðbergi Andersson hafnað í sænska þinginu Hófu aftur árásir á olíuvinnslur í Rússlandi Eldur í ráðuneyti og banka í óeirðum í Tirana Tuttugu og sjö nemendur látnir eftir að þak skóla hrundi „Þessi ákvörðun mun kosta mörg mannslíf“ Sjá meira