Ísrael og Bandaríkin ráðast á Íran Jón Þór Stefánsson, Samúel Karl Ólason, Rafn Ágúst Ragnarsson og Agnar Már Másson skrifa 28. febrúar 2026 07:32 Mynd frá vettvangi í Tehran. Getty Hið minnsta tvö hundruð eru taldir látnir eftir að Ísrael og Bandaríkin hófu árás á Íran í morgun. Ísraelsríki segir árásina fyrirbyggjandi og Donald Trump Bandaríkjaforseti segir að æðstiklerkur Írana hafi verið felldur. Vísir færir ykkur nýjustu fréttir í vaktinni hér að neðan. Myndir frá Teheran, höfuðborg Íran, sýna að mikinn reyk leggur frá byggingum í borginni, og þá er ljóst að eyðileggingin er mikil. Árásir voru gerðar í minnst fjórum borgum til viðbótar. Það helsta: - Árásirnar hófust rétt rúmlega sex, að íslenskum tíma, og eru þær sagðar eiga að standa yfir í að minnsta kosti einhverja daga. - Hið minnta 200 eru látnir í Íran að sögn íranska Rauða hálfmánans og ríflega 700 taldir særðir. - Bæði Donald Trump og Benjamín Netanjahú segja markmiðið að koma í veg fyrir að klerkastjórnin í Íran komi upp kjarnorkuvopnum og sömuleiðis vilji þeir koma stjórninni frá völdum. - Árásir á Íran hafa legið í loftinu um nokkuð skeið, þar sem Bandaríkjamenn hafa sent umtalsverðan herafla á svæðið. Á sama tíma hafa átt sér stað viðræður um kjarnorkuáætlun Írana, sem Bandaríkjamenn hafa viljað stöðva. - Íranar hafa skotið eldflaugum að Ísrael og að öðrum nágrannalöndum eftir árásir Ísraela og Bandaríkjamanna. - Ali Khamenei, æðstiklerkur Írans, var felldur í árásunum, að sögn Trump. Aðsetur hans í Teheran var lagt í rúst. Fylgst er með gangi mála í Vaktinni hér að neðan. Ef hún birtist ekki er ráð að endurhlaða síðunni.
Myndir frá Teheran, höfuðborg Íran, sýna að mikinn reyk leggur frá byggingum í borginni, og þá er ljóst að eyðileggingin er mikil. Árásir voru gerðar í minnst fjórum borgum til viðbótar. Það helsta: - Árásirnar hófust rétt rúmlega sex, að íslenskum tíma, og eru þær sagðar eiga að standa yfir í að minnsta kosti einhverja daga. - Hið minnta 200 eru látnir í Íran að sögn íranska Rauða hálfmánans og ríflega 700 taldir særðir. - Bæði Donald Trump og Benjamín Netanjahú segja markmiðið að koma í veg fyrir að klerkastjórnin í Íran komi upp kjarnorkuvopnum og sömuleiðis vilji þeir koma stjórninni frá völdum. - Árásir á Íran hafa legið í loftinu um nokkuð skeið, þar sem Bandaríkjamenn hafa sent umtalsverðan herafla á svæðið. Á sama tíma hafa átt sér stað viðræður um kjarnorkuáætlun Írana, sem Bandaríkjamenn hafa viljað stöðva. - Íranar hafa skotið eldflaugum að Ísrael og að öðrum nágrannalöndum eftir árásir Ísraela og Bandaríkjamanna. - Ali Khamenei, æðstiklerkur Írans, var felldur í árásunum, að sögn Trump. Aðsetur hans í Teheran var lagt í rúst. Fylgst er með gangi mála í Vaktinni hér að neðan. Ef hún birtist ekki er ráð að endurhlaða síðunni.
- Árásirnar hófust rétt rúmlega sex, að íslenskum tíma, og eru þær sagðar eiga að standa yfir í að minnsta kosti einhverja daga. - Hið minnta 200 eru látnir í Íran að sögn íranska Rauða hálfmánans og ríflega 700 taldir særðir. - Bæði Donald Trump og Benjamín Netanjahú segja markmiðið að koma í veg fyrir að klerkastjórnin í Íran komi upp kjarnorkuvopnum og sömuleiðis vilji þeir koma stjórninni frá völdum. - Árásir á Íran hafa legið í loftinu um nokkuð skeið, þar sem Bandaríkjamenn hafa sent umtalsverðan herafla á svæðið. Á sama tíma hafa átt sér stað viðræður um kjarnorkuáætlun Írana, sem Bandaríkjamenn hafa viljað stöðva. - Íranar hafa skotið eldflaugum að Ísrael og að öðrum nágrannalöndum eftir árásir Ísraela og Bandaríkjamanna. - Ali Khamenei, æðstiklerkur Írans, var felldur í árásunum, að sögn Trump. Aðsetur hans í Teheran var lagt í rúst.
Íran Ísrael Bandaríkin Donald Trump Árásir Bandaríkjanna og Ísraels á Íran Mest lesið Gervigreind hakkaði sig inn á vef stjórnvalda Erlent Bannaði Trump að banna fjölmiðla Erlent Segja upp tveimur sérfræðingum Innlent Dagný Ósk látin Innlent Móðir lagði ríkið í Hæstarétti vegna vanrækslu á EES Innlent Hélt á myndum af skólabörnum og sakaði Bandaríkin um hryðjuverk Erlent Færri þunganir í áhættuhópi með nýrri tegund fósturskimunar Innlent Barnið ekki í viðeigandi öryggisbúnaði Innlent „Mjög stór og mikilvæg niðurstaða fyrir okkur“ Innlent Stíflueyðir og gólfþrif ollu slysinu á Óseyri Innlent Fleiri fréttir Høiby skiptir um verjendur Veturinn verði Rússum erfiður Bannaði Trump að banna fjölmiðla Gervigreind hakkaði sig inn á vef stjórnvalda Hélt á myndum af skólabörnum og sakaði Bandaríkin um hryðjuverk Dreifðu óvart piparúða um þinghúsið fyrir leikmun í innflytjendaumræðu Íslensk lögregla hjálpaði við rannsókn á smygli á fólki til Bretlands Polo einn kröftugasti fellibylur sögunnar Segja aðgengi að heimili forsetans forréttindi en ekki rétt Fögnuður varð að fjöldamorði Taívan og mannréttindi rauðar línur fyrir Kínverja Bað Trump um „vetrarpakka“ Segir stóra ákvörðun framundan Xi vill að Trump sleppi takinu á Taívan Þetta er í samkomulaginu um Grænland Halda andstæðingum fjarri Grænlandi með samkomulagi Svona var ræða Trumps: Spurning um „gereyðingu“ og nýtt nafn á gervigreind Í leyfi á meðan kosningasvik eru til rannsóknar Bein útsending: Ræða Trumps á allsherjarþinginu Bretar ætla að aðstoða Sáda gegn Hútum Beita buddunni til að vega á móti óvinsældum Trumps Rétta yfir konu spænska forsætisráðherrans Grunur um alvarlegt kosningasvindl í Svíþjóð Stefna að tveimur nýjum herstöðvum á Grænlandi Sniðganga Hvíta húsið Bað Selenskí um að stöðva árásir á rússneskar olíuvinnslur Höfða mál gegn Trump vegna bannsins Pútín sló öll met Sigurboginn verður leyniskyttuhreiður Maður á níræðisaldri lést í átökum um sólbekk Sjá meira