Opið bréf frá leikskólastjórnendum í Kópavogi Rakel Ýr Ísaksen skrifar 5. mars 2026 12:48 Kæri bæjarstjóri og bæjarstjórn í Kópavogi, takk fyrir að hlusta á ákall okkar leikskólastjórnenda og annarra hagsmunaaðila leikskóla og bregðast við þeim stórkostlega vanda sem blasti við starfsemi leikskóla í Kópavogi. Takk fyrir að standa vörð um Kópavogsmódelið, sem hefur gjörbreytt starfsaðstæðum barnanna sem þar dvelja og okkar sem störfum í leikskólum bæjarins til hins betra. Takk fyrir að þora að fara þessa leið og bugast ekki, þrátt fyrir háværar gagnrýnisraddir sem oftar en ekki, tala ekki af eigin reynslu, heldur tala fyrir hagsmunum hóps foreldra sem virðist (miðað við nýtingu og svörun í könnunum) hvað ánægðastur með Kópavogsmódelið. Gagnrýnin snýr helst að hárri gjaldskrá dvalargjalds umfram 30 gjaldfrjálsar stundir á viku. Við sem höfum starfað í leikskólum í Kópavogi bæði fyrir og eftir innleiðingu Kópavogsmódelsins viljum litlu breyta og teljum fyrirkomulag gjaldskrár eiga stærstan þátt í að samræma dvalartíma barna og vinnuframlag starfsfólks leikskóla. Árið 2022 eftir að betri vinnutími var innleiddur og starfsmenn leikskóla styttu sína vinnuviku um fjórar klukkustundir með því að selja kaffitíma sinn að auki, voru um 85% leikskólabarna með lengri daglegan dvalartíma en daglegt vinnuframlag starfsmanns í 100% starfi. Með gjaldskrárhækkun umfram gjaldfrjálsa tímann (hlutdeild foreldra er samt einungis innan við 10% af kostnaði sveitarfélagsins við hvert leikskólapláss), leituðu flestir foreldrar leiða til þess að stytta dvalartíma barna sinna. Meðal dvalartími barna í Kópavogi er nú á pari við vinnuframlag starfsmanns í 100 % starfi þ.e.a.s. 7,2 klukkustundir á dag. Foreldrum býðst tekjutengdur afsláttur 10-50% af dvalargjöldum umfram 30 gjaldfrjálsar klukkustundir á viku. Foreldrar greiða, án nokkurs afsláttar, fyrir átta tíma leikskólamenntun og þrjár næringarríkar máltíðir á dag 56.314 kr. á mánuði eða tæpar 2.700 krónur á dag. Auðvitað viljum við gera vel við barnafjölskyldur og það gerum við með því að bjóða öllum börnum gjaldfrjálsar 30 stundir á viku. Bjóða upp á traust, stöðugt, faglegt og fyrirsjáanlegt leikskólastarf. Kennara, leiðbeinendur og stjórnendur sem eru ánægðir með starfsumhverfi sitt og líður vel í vinnunni. Tryggja farsæld barna og samþætta þjónustu við fjölskyldur. Veita öllum börnum sem þess þurfa sérstakan stuðning í daglegu starfi. En ekki síst með því að hafa hagsmuni og réttindi barna að leiðarljósi og leita leiða til þess að koma í veg fyrir að þau dvelji í of langan tíma í umhverfi sem minnir stundum á fjölmennt, hávært barnaafmæli. Kópavogsmódelið var frumkvöðull í bættu starfsumhverfi leikskóla og samanburður á milli sveitarfélaga sem hafa farið áþekkar leiðir er ekki tímabær, þar sem lítil reynsla er komin á breytingar víða annars staðar, en árangurinn er augljós í Kópavogi. Innleiðing Kópavogsmódelsins hefur haft í för með sér mikinn ávinning fyrir leikskólabörn, foreldra og starfsfólk. Þar ber sérstaklega að þakka hinni umdeildu en að okkar mati sanngjörnu gjaldskrá.-Dvalar/vinnutími barna hefur styst og er nú nokkurn veginn á pari við vinnuframlag starfsmanna vegna þess að foreldrar kaupa nú þann dvalartíma sem þeir raunverulega hafa þörf fyrir (34,4% barna eru nú með lengri daglega viðveru en 100 % starfsmaður).-Ekkert foreldri í Kópavogi hefur þurft að missa úr vinnu vegna fáliðunar í leikskólum bæjarins.-Í upphafi og lok leikskóladagsins er rólegra og notalegra umhverfi og minna um árekstra meðal barna í leikskólanum, þar sem færri einstaklingar keppast um athygli starfsfólks.-Öll börn eiga þess kost að nýta gjaldfrjálsa vistun, þar á meðal börn sem að öllum líkindum hefðu ekki sótt leikskóla vegna aðstæðna á heimili. Að auki er starfsumhverfið mun meira aðlaðandi og fjölskylduvænna en áður.Þökk sé skráningardögum (sem ekki kosta foreldra aukalega) og uppsöfnun vinnustyttingar er hver 100% starfsmaður tveim klukkustundum lengur með börnunum í hverri viku en áður. Starfsfólk hefur nú kost á að verja vetrar-, jóla- og páskafríum með sinni eigin fjölskyldu og er ekki úrvinda í lok hvers vinnudags. Skammtímaveikindum starfsfólks hefur fækkað og kennarar hafa aukin tækifæri til þess að sinna kjarasamningsbundnum undirbúningstíma sínum á þeim tíma sem færri börn eru í leikskólanum. Kópavogsmódelið er byggt á reynslu og þekkingu og er afurð samráðs og vandlegrar ígrundunar okkar sem störfum í leikskólunum, á menntasviði, fulltrúum foreldra, stéttarfélaga og pólitískt kjörnum fulltrúum sveitarfélagsins.Kópavogsmódelið er alls ekki hagræðing í rekstri sveitarfélags, né er verið að velta kostnaði yfir á foreldra eða draga úr þjónustunni. Kópavogsmódelið er svar við neyðarkalli okkar sem höldum úti afar mikilvægri samfélagslegri þjónustu og menntun ungra barna og hefur stórbætt starfsemi og líðan þeirra sem lifa og hrærast í leikskólum bæjarins. Við stöndum saman vörð um þessa vel heppnuðu vegferð í átt að barnvænna samfélagi og bjóðum kennara og leiðbeinendur úr nærliggjandi sveitarfélögum hjartanlega velkomin í Kópavoginn. Höfundur er aðstoðarleikskólastjóri leikskólans Álfaheiðar í Kópavogi. Hún skrifar fyrir hönd allra leikskólastjórnenda í Kópavogi. Arnarsmári: Ágústa Dröfn Kristleifsdóttir, Hildur Kristín Helgadóttir Austurkór: Lilja Vattnes Bryngeirsdóttir, Svanhvít Friðriksdóttir Álfaheiði: Anna Rósa Sigurjónsdóttir, Rakel Ýr Ísaksen Álfatún: Heiðbjört Gunnólfsdóttir, Guðbjörg Barnaskóli Kársnes Gerður Magnúsdóttir,Ester Jóhanna SigurðardóttirBaugur: Margrét Björk Jóhannesdóttir, Elín Rós Hansdóttir Dalur: Ragnheiður Ósk Jensdóttir, Sonja M. Halldórsdóttir Efstihjalli:Lena Sólborg Valgarðsdóttir, Guðný Rut Ísaksen Fagrabrekka: Egill Óskarsson, Anna Friðriksdóttir Fífusalir: Erla Stefanía Magnúsdóttir Sverrir Jensson Dalsgaard Furugrund: Eva Sif Jóhannsdóttir Helga Hanna Þorsteinsdóttir Grænatún: Jóna Kristín Gunnlaugsdóttir Elísa Björg Benediktsdóttir Kópahvoll: Halla Ösp Hallsdóttir, Stefanía H. Finnbogadóttir Kópasteinn: Margrét Lárusdóttir, Bergdís Geirsdóttir Lækur: Anna Guðrún Maríasdóttir Eyrún Brynjólfsdóttir Marbakki: Alda Agnes Sveinsdóttir, Steinunn Jónsdóttir Núpur: Svana Kristinsdóttir, Áslaug Pálsdóttir Rjúpnahæð: Helga Margrét Þorsteinsdóttir, Unnur Kristjánsdóttir Sólhvörf: Dóra Margrét Guðmundsdóttir Elva Dögg Sigurðardóttir Urðarhóll: Rebekka Gylfadóttir Ingibjörg Sólrún Ágústsdóttir Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Skoðun: Sveitarstjórnarkosningar 2026 Kópavogur Leikskólar Mest lesið Skattahækkun á baðlón þarf að meta út frá heildaráhrifum Þórir Garðarsson Skoðun „... ekki alltaf sammála um allt“ ? Álfheiður Ingadóttir Skoðun Innantómt hjóm við hátíðlegt tækifæri? Guja Sandholt Skoðun Stórútgerðin fær svigrúm, smábátar fá skuldabagga Kjartan Sveinsson Skoðun Mildum höggið Ingibjörg Isaksen Skoðun Veggjöld eru viðurstyggð — refsistefna ríkisstjórnar Einar Steingrímsson Skoðun Hvað gerðist áður en hjúkrunarheimilið varð lausnin? Rannveig Tenchi Ernudóttir Skoðun Mikið uppnám fyrir lítið innihald Hjálmar Bogi Hafliðason Skoðun Mælistika lífsins Sigurður Árni Reynisson Skoðun Ljótt er ef satt er Bryndís Víglundsdóttir Skoðun Skoðun Skoðun Innantómt hjóm við hátíðlegt tækifæri? Guja Sandholt skrifar Skoðun Mildum höggið Ingibjörg Isaksen skrifar Skoðun Skattahækkun á baðlón þarf að meta út frá heildaráhrifum Þórir Garðarsson skrifar Skoðun Stórútgerðin fær svigrúm, smábátar fá skuldabagga Kjartan Sveinsson skrifar Skoðun Ljótt er ef satt er Bryndís Víglundsdóttir skrifar Skoðun Mælistika lífsins Sigurður Árni Reynisson skrifar Skoðun „... ekki alltaf sammála um allt“ ? Álfheiður Ingadóttir skrifar Skoðun Hvað gerðist áður en hjúkrunarheimilið varð lausnin? Rannveig Tenchi Ernudóttir skrifar Skoðun Mikið uppnám fyrir lítið innihald Hjálmar Bogi Hafliðason skrifar Skoðun Er skynjari á vaktinni í bústaðnum? Ágúst Mogensen skrifar Skoðun Veggjöld eru viðurstyggð — refsistefna ríkisstjórnar Einar Steingrímsson skrifar Skoðun Eru hjúkrunarheimili biðsalur eða heimili? Ragnhildur Þórarinsdóttir skrifar Skoðun VSK á baðlón: Vandinn er ekki skatturinn heldur fyrirvarinn Guðmundur Björnsson skrifar Skoðun Tækifærið í Stofnun atvinnuveganna Karl Steinar Óskarsson skrifar Skoðun Áskorun til dómsmálaráðherra, nú ert þú í dauðafæri Þorbjörg Jón Þorvaldur Heiðarsson skrifar Skoðun Heggur sá er hlífa skyldi Rósa Guðbjartsdóttir skrifar Skoðun Sporin í snjónum Arnar Sigurðsson skrifar Skoðun Stórefla þarf kjarnahlutverk ASÍ Arnaldur Grétarsson skrifar Skoðun Fullorðið fatlað fólk á rétt á áframhaldandi ráðgjöf og greiningu Atli Már Haraldsson Zebitz skrifar Skoðun Við í Ölfusi höfum ekki beðið eftir öðrum, við erum leiðandi Grétar Ingi Erlendsson skrifar Skoðun Hvernig get ég fundið ró þegar barnið mitt er í uppnámi? Sigrún Þóra Sveinsdóttir skrifar Skoðun Vill ráðherra veikja lífeyriskerfið? Finnbjörn A Hermannsson skrifar Skoðun Iceland Is Better Off than Switzerland Carl Baudenbacher skrifar Skoðun Nýr meirihluti tók við leikskólakerfi í stórsókn Steinunn Gyðu- og Guðjónsdóttir,Bjarnveig Birta Bjarnadóttir skrifar Skoðun Góð þjónusta kostar, slök þjónusta kostar meira Laufey E. Gissurardóttir skrifar Skoðun Kostnaðurinn við nei Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Hver stal kökunni úr krúsinni? Gunnar Valur Sveinsson skrifar Skoðun Stríð Rússlands gegn utanríkisviðskiptum Úkraínu er stríð gegn fæðuöryggi heimsins Clara Ganslandt skrifar Skoðun Sjónvarpið 60 ára: Þögnin segir líka sögu Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Takk Hörður Jóhann Páll Jóhannsson skrifar Sjá meira
Skoðun Áskorun til dómsmálaráðherra, nú ert þú í dauðafæri Þorbjörg Jón Þorvaldur Heiðarsson skrifar
Skoðun Fullorðið fatlað fólk á rétt á áframhaldandi ráðgjöf og greiningu Atli Már Haraldsson Zebitz skrifar
Skoðun Nýr meirihluti tók við leikskólakerfi í stórsókn Steinunn Gyðu- og Guðjónsdóttir,Bjarnveig Birta Bjarnadóttir skrifar
Skoðun Stríð Rússlands gegn utanríkisviðskiptum Úkraínu er stríð gegn fæðuöryggi heimsins Clara Ganslandt skrifar