Krónprinsinn sagður hvetja til áframhaldandi aðgerða gegn Íran Hólmfríður Gísladóttir skrifar 27. mars 2026 11:33 Mohammed bin Salman er sagður hafa áhuga á því nota tækifærið til að „endurskipuleggja“ Mið-Austurlönd. Getty/Andrew Harnik Mohammed bin Salman, krónprins Sádi Arabíu, er sagður hafa hvatt Bandaríkjastjórn til að halda árásum á Íran áfram og herða á, ef eitthvað er. Frá þessu greindi New York Times á dögunum og Guardian segist hafa þetta fengist staðfest hjá heimildarmanni innan öryggisgeira Sádi Arabíu.
Samkvæmt New York Times er það mat krónprinsins að um sé að ræða sögulegt tækifæri til að „endurskipuleggja“ Mið-Austurlönd. Ekki er vitað til þess að Sádarnir hafi tekið þátt í hernaðaraðgerðunum hingað til en Donald Trump Bandaríkjaforseti sagði á þriðjudag að Mohammed bin Salman væri „bardagamaður“ og væri með Bandaríkjunum í liði. Guardian hefur eftir sérfræðingi í varnarmálum að framhaldið velti nú á Írönum, hvort þeir gangi að samningaborðinu af fullri alvöru eða haldi árásum á nágrannaríkin áfram. Ríkin við Persaflóa hafa verið sett í afar erfiða stöðu í kjölfar árása Bandaríkjanna og Ísrael á Íran. Þau hafa ekki getað komið olíu og öðrum útflutningsvörum um Hormuz-sund og þá hafa Íranir gert árásir á mikilvæga innviði. Hefndaraðgerðir Írana hafa enn fremur varpað afar skýru ljósi á það hversu viðkvæm ríkin eru, þar sem lokun Hormuz-sunds og ódýrar og einfaldar drónaárásir geta haft veruleg áhrif á efnahag ríkjanna. Þar má ekki gleyma orðspori borga þeirra sem lúxusparadísa ríka fólksins, sem þau hafa lagt mikið upp úr að rækta. Ríkin hafa hingað til verið nokkuð hlutlaus; fordæmt árásir Írana á landsvæði sín en látið þar við sitja. Hins vegar er erfitt að segja um framhaldið. Ef Bandaríkjamenn og Ísraelar létu til að mynda af árásum núna, þá yrði eftir veik og reið stjórn í hefndarhug með aðgang að nægum birgðum af auðguðu úrani til að smíða nokkra kjarnaodda. Friðarsamningar eða enn frekari aðgerðir, og þá möguleg innrás til að ná í úranið, virðast þannig vera einu kostirnir í stöðunni.
Íran Bandaríkin Sádi-Arabía Árásir Bandaríkjanna og Ísraels á Íran Hernaður Bensín og olía Mest lesið Sætir morðhótunum og óhróðri í vinsælum Facebook-hópi Innlent Bílstjóri horfði á skelfingu lostinn Innlent Gabríel Douane og fimm aðrir sýknaðir Innlent Vaktin: Bandero hrellir Hval 9 Innlent Tugir tilkynninga í viku: „Þetta var ekki í fyrsta skipti sem þau voru handtekin“ Innlent Gunnar Þórðarson er látinn Innlent „Hún drap börnin“ Erlent Okkar McCartney, okkar Bach kveður Innlent Heilum gámi af kampavíni stolið af Ölgerðinni Innlent Horfðu á bílinn velta niður fjallið Innlent Fleiri fréttir „Hún drap börnin“ „Það sem hann gerði, ég get aldrei endurgoldið það“ Nítján ára Norðmaður dæmdur fyrir að taka að sér leigumorð á Englandi Bandaríkjamaður sagður smygla vopnum og málaliðum til Súdan Rússnesk stýriflaug líklega lent í Póllandi Segjast hafa gert harða hríð að byltingarverðinum Minnst þrjátíu látnir í Japan Fjögur börn látin eftir loftárásir Rússa á borgir Úkraínu Neitaði að svara spurningum þingmanna Leita enn í rústunum í Japan „Við ætlum að fokking lúskra á þeim“ Stofnandi Telegram ákærður og eftirlýstur í Rússlandi Tuttugu drengir á Gothia Cup týndir Ebólan komin í metstærð á mettíma Nýr forseti hét því að beita hernum gegn glæpum Þrettán látnir hið minnsta í Japan Írönum hótað hefndum eftir árás á herstöð Bandaríkjanna Ræddu Patriot-flaugar og friðarviðræður Vill að RFK gangi harðar fram gegn bólusetningum Fólk fast í verslunarmiðstöð eftir skjálftann í Japan „Við munum ná markmiðum okkar“ Vilja að Hæstiréttur taki afstöðu Stukku fram af Geimnálinni Johnson & Johnson greiðir 693 milljarða króna vegna málsókna Bandarískir hermenn ekki látnir svara til saka á Bretlandseyjum Skjálfti að stærð 7,1 skók Japan Áhyggjur uppi vegna nýrrar brúar milli Rússlands og Norður-Kóreu Árásirnar haldi áfram skili viðræðurnar ekki sínu Önnur hitabylgja nálgast Spán Kveiktu í tveimur moskum Sjá meira