Að kaupa burt vandann Sigfús Aðalsteinsson skrifar 8. apríl 2026 10:32 Að tryggja öllum börnum aðgengi að leikskólaplássi er ekki „bara“ þjónusta heldur grundvallarstoð í velferðarsamfélagi. Leikskólar sinna ekki aðeins umönnun heldur gegna þeir lykilhlutverki í þroska, menntun og félagsmótun barna á fyrstu árum ævinnar. Rannsóknir á sviði menntunar og barnasálfræði hafa ítrekað sýnt að snemmtæk íhlutun og skipulagt leikskólastarf hefur jákvæð áhrif á málþroska, félagsfærni og síðar námsárangur. Jafnræði og þátttaka á vinnumarkaði Aðgengi að leikskólum er einnig eitt mikilvægasta jafnréttismál samtímans. Þegar foreldrar og þá sérstaklega mæður hafa tryggt aðgengi að barnsins að leikskóla eykst þátttaka þeirra á vinnumarkaði. Þetta hefur bein áhrif á tekjur heimilanna, skatttekjur hins opinbera og ekki síst efnahagslegt sjálfstæði fjölskyldunnar. Í löndum þar sem leikskólastarfið er sterkt og aðgengi gott, er atvinnuþátttaka foreldra almennt hærri en þar sem því er ábótavant. Þetta er staðfest í alþjóðlegum samanburði, meðal annars frá OECD. Hætta á skekkju með heimgreiðslum Nú eru einhverjir frambjóðendur flokka í borgarstjórnarkosningum farnir að gæla við foreldra með svokölluðum heimgreiðslum. Heimgreiðslur til foreldra eru kynntar af þeim sem valkostur sem eykur frelsi fjölskyldna. Hins vegar sýna gögn frá Norðurlöndum (t.d. Noregi og Finnlandi) að slíkar greiðslur geta haft ófyrirséðar afleiðingar eins og minni þátttöka á vinnumarkaði og þá sérstaklega hjá konum, sem þá veldur tekjumissi til lengri tíma og getur aukið kynbundinn launamun. Þá er félagsleg staða barna mun lakari og börn sem eru utan leikskólanámsins missa af skipulögðu námi og félagslegri örvun á mikilvægum þroskaskeiðum. Það að bornin leiki meir smahliða en saman á fyrstu árunum breytir því ekki að félagsskilningur, þroski og örvun er barninu naupðsynleg á sínum fyrstu skerfum út í lífið. Ójöfnuður eykst því heimgreiðslur eru oftar nýttar af tekjulægri hópum, sem getur aukið bilið milli barna hvað varðar undirbúning fyrir grunnskóla. Þetta á ekkis síst við börn foreldra sem ekki tala íslensku og eru líklegasti hópurinn til að þiggja þessar greiðslur og þá með tilheyrandi einangrun barnsins. Biðlistar og „snyrting“ vandans Ef heimgreiðslur eru nýttar sem leið til að „draga úr“ biðlistum, án þess að raunverulega fjölga leikskólaplássum, skapast hætta á skekkju í stjórnsýslu því biðlistinn minnkar á pappírunum, en raunveruleg þörf er enn til staðar og eykst. Vandinn er því færður frá kerfinu yfir á heimilin og skortur á innviðum er ekki leystur heldur falinn. Þetta getur grafið undan trausti á opinberri stefnumótun, þar sem mælikvarðar endurspegla ekki raunverulega stöðu. Langtímahugsun skiptir öllu máli Við höfum keyrt á þá leið að leikskólinn sé sé framtíð barnsins. Fjárfesting í leikskólakerfinu skilar sér margfalt til baka. Hagfræðilegar greiningar (m.a. frá James Heckman, Nóbelsverðlaunahafa í hagfræði) sýna að ávinningur af snemmtækri menntun er einn sá mesti sem þekkist í opinberum fjárfestingum. Það þýðir að hver króna sem fer í leikskóla sparar síðar kostnað í menntakerfi og félagskerfi, samfélagið fær betur undirbúna einstaklinga og atvinnulíf styrkist. Niðurstaða Að halda leikskólum opnum og aðgengilegum öllum börnum er ekki aðeins spurning um þjónustu heldur um framtíðarsýn samfélagsins. Heimgreiðslur geta virkað sem einföld lausn til skamms tíma, virka eins og að mála yfir ryðið en fela í sér raunverulega áhættu ef þær eru notaðar til að leysa kerfislægan skort. Skort sem hefur myndast vegna skilningsleysis á rekstri leikskólanna og eyðslu sem á sér engin takmörk í eitthvað sem skiptir engu máli og má þar helst nefna skelfinguna í Brákarborg. Þar var keypt gömul bygging fyrir verð eins leikskóla. Síðan var eytt verði þriggja leikskóla til viðbótar, annars vegar til að gera einhvern tískuskóla þar sem kostnaður var á við tvo slíka og svo viðgerðir sem eru að kosta einn slíkan. Þetta mál er meir en trannsóknarvert því bruðlið með almannafé er fáránlegt. Sjálfbær leið í uppbyggingu og rekstri leikskóla er að skilja rekstur þeirra. Markmið Okkar Borg X- R eru: byggja upp nægt leikskólarými tryggja faglegt starf halda jöfnu aðgengi fyrir öll börn Viðvera barnanna sé miðuð við þarfir foreldra Launamál og opnun leikskólans sé í jafnvægi Að styðja bæði fjölskyldur og samfélagið í heild til framtíðar. Höfundur eru oddviti Okkar borgar X – R. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Skoðun: Sveitarstjórnarkosningar 2026 Reykjavík Mest lesið Það sem Ísland mun berjast fyrir í samningaviðræðum við ESB Þórður Snær Júlíusson Skoðun Auðvaldinu best borgið í Brussel - ekki þjóðinni Ögmundur Jónasson Skoðun Kristrún Frostadóttir sammála nei-sinnum Guðmundur Edgarsson Skoðun Er hið gamla alltaf gott? Ebba Margrèt Magnúsdóttir Skoðun Halldór 01.08.2026 Halldór Þegar líðan stúlkna verður aukaatriði Lilja Benatov Hjartar Skoðun Fullyrðingar og raunveruleikinn Jón Frímann Jónsson Skoðun Ísland í nýrri heimsmynd Sigurgeir Þorkelsson Skoðun RKV- eða ESB-ranglætið? Benedikt V Warén Skoðun Af hverju er svona erfitt að vera heiðarlegur við sjálfan sig? Sigurður Árni Reynisson Skoðun Skoðun Skoðun Sex ástæður fyrir JÁ-i í ágúst Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Heilbrigt starfsumhverfi Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir skrifar Skoðun Ísland í nýrri heimsmynd Sigurgeir Þorkelsson skrifar Skoðun Fullyrðingar og raunveruleikinn Jón Frímann Jónsson skrifar Skoðun Kristrún Frostadóttir sammála nei-sinnum Guðmundur Edgarsson skrifar Skoðun Brestur í manngæsku - ESB og flóttafólk Ari Orrason skrifar Skoðun Þegar líðan stúlkna verður aukaatriði Lilja Benatov Hjartar skrifar Skoðun Evra eða króna? Grímur Grímsson skrifar Skoðun Auðvaldinu best borgið í Brussel - ekki þjóðinni Ögmundur Jónasson skrifar Skoðun Er hið gamla alltaf gott? Ebba Margrèt Magnúsdóttir skrifar Skoðun RKV- eða ESB-ranglætið? Benedikt V Warén skrifar Skoðun „Nei“ er ekki lok málsins, - það er frestun þess Hjálmar Vilhjálmsson skrifar Skoðun Hvernig varð gervigreindin til og hvernig virkar hún? Karl Thoroddsen skrifar Skoðun Af hverju er svona erfitt að vera heiðarlegur við sjálfan sig? Sigurður Árni Reynisson skrifar Skoðun Það sem Ísland mun berjast fyrir í samningaviðræðum við ESB Þórður Snær Júlíusson skrifar Skoðun Hvar eru góðu mennirnir? Olga Björt Þórðardóttir skrifar Skoðun Slagorð í stað gagna: Grein Snorra Mássonar um ESB-aðild Halldór Jörgen Olesen skrifar Skoðun Stór orð, lítil rök og ekkert dæmi um ranga tölu – Svar til Konráðs S. Guðjónssonar Gauti B. Eggertsson skrifar Skoðun Hættulegasti tími ársins í umferðinni Ágúst Mogensen skrifar Skoðun Að neita að leita Kristrún Ágústsdóttir skrifar Skoðun ESB umræðan og gervigreindin Ólafur Hannesson skrifar Skoðun Vinnslustöðin rýrir afkomu sjómanna og landverkafólks – en til hvers? Gunnar Sigurðsson skrifar Skoðun Hver ber raunverulega ábyrgð á minkaslysinu? Anahita Sahar Babaei skrifar Skoðun Spænska knattspyrnuliðið sem héraðsmetafór fyrir Spán Jordi Oriola Folch skrifar Skoðun Gæði bygginga ráðast ekki ef reglugerðum einum saman Bergþóra Góa Kvaran skrifar Skoðun Ég hélt að þetta væri bara lítið hrúður Valerio Gargiulo skrifar Skoðun Af hverju já? Reynir Böðvarsson skrifar Skoðun Ef lausnirnar eru til, af hverju eru þær ekki notaðar? Birgir Hrafn Birgisson skrifar Skoðun Óreiða á samviskunni Páll Rafnar Þorsteinsson skrifar Skoðun Fullveldi fyrir hvern? Hjálmar Vilhjálmsson skrifar Sjá meira
Skoðun Af hverju er svona erfitt að vera heiðarlegur við sjálfan sig? Sigurður Árni Reynisson skrifar
Skoðun Stór orð, lítil rök og ekkert dæmi um ranga tölu – Svar til Konráðs S. Guðjónssonar Gauti B. Eggertsson skrifar
Skoðun Vinnslustöðin rýrir afkomu sjómanna og landverkafólks – en til hvers? Gunnar Sigurðsson skrifar