Bretar og Frakkar ætla að leiða aðgerðir við Hormússund Eiður Þór Árnason skrifar 17. apríl 2026 21:42 Keir Starmer, forsætisráðherra Breta, fundaði með evrópskum ráðamönnum í París í dag. Getty/Frank Augstein Olíuverð féll í dag eftir að stjórnvöld í Íran fullyrtu að Hormússundi yrði haldið opnu á meðan vopnahlé er í gildi. Sundið hefur formlega verið opnað fyrir umferð að sögn Bandaríkjaforseta og utanríkisráðherra Írans. Frakkland og Bretland hyggjast leiða alþjóðlega aðgerð sem miðar að því að halda sundinu opnu.
Verð á tunnu af Brent-hráolíu lækkaði úr 98 bandaríkjadölum í 90 dali í kvöld eftir að fréttir bárust af opnun sundsins, samkvæmt breska ríkisútvarpinu BBC. Um fimmtungur af olíuframleiðslu heimsins og fljótandi gasi er jafnan flutt í gegnum Hormússund sem er staðsett fyrir sunnan Íran en það hefur meira og minna verið lokað frá því að Bandaríkin og Ísrael hófu árásir á Íran í febrúar. Fyrir átökin kostaði tunna af Brent-hráolíu 70 bandaríkjadali og fór svo hæst í 119 dali í mars. Því er ljóst að nokkuð langt er í að verð komist í samt horf og segja fulltrúar skipafélaga í samtali við BBC að þeir vilji enn hafa varann á þegar kemur að því að sigla um sundið. Óvissa ríkir enn á meðan ekki hefur verið samið um varanlegt vopnahlé á svæðinu og hefur opnunin mest áhrif á skip sem voru áður föst í sundinu. Þar að auki hafa skemmdarverk verið unnin í stríðinu á innviðum til vinnslu jarðefnaeldsneytis á stöðum eins og í Katar sem gæti tekið nokkur ár að koma í samt horf. Eiga á hættu á að sigla á tundurdufl Abbas Araghchi, utanríkisráðherra Írans, tilkynnti í færslu á X. áður Twitter, í dag að Hormússund væri „alveg opið þann tíma sem eftir er af vopnahléinu“ við Bandaríkin en því á að ljúka 22. apríl. Araghchi sagði að siglingar kaupskipa væru leyfðar um tiltekna siglingarleið sem Íran hafði áður tilkynnt. Samkvæmt útgefnum upplýsingum er hættusvæði í miðju sundinu sem ber að forðast. Íran sagði í síðustu viku að öll skip sem ekki fylgdu tilgreindum leiðum ættu á hættu að sigla á tundurdufl eða verða fyrir árás Íranska byltingarvarðarins. Ef marka má siglingaeftirlitsþjónustur fóru mjög fá skip um sundið eftir tilkynningu Íran í dag. Virtust sum þeirra snúa við eða stöðva ferð sína, að sögn BBC. Leiða nýja aðgerð Verðbréfamarkaðir hækkuðu síðdegis í kjölfar tilkynningar stjórnvalda í Íran um opnun sundsins. Ráðamenn í Evrópu funduðu í París í Frakklandi í dag þar sem staðan í Íran var rædd. „Við vorum öll sammála. Það var alger eining á fundinum sem við áttum. Við viljum að viðræður hefjist að nýju og að varanlegt samkomulag náist, þar með talið að sundið verði opnað aftur,“ sagði Keir Starmer, forsætisráðherra Bretlands. Hann hefur boðað að Bretland og Frakkland muni leiða aðgerð með það að markmiði að halda Hormússundi opnu. „Við fögnum þeirri tilkynningu sem barst á meðan fundinum stóð en við þurfum að tryggja að tillagan sé bæði varanleg og framkvæmanleg. Þetta rennir frekari stoðum undir þörfina á því starfi sem við höfum unnið í dag því við erum afdráttarlaus um að verkefnið sem við erum að setja saman er varnarverkefni sem kemur í kjölfar vopnahlés. Þess vegna kölluðum við alþjóðlega hópinn saman til að sýna fram á hvernig við munum leggja okkar af mörkum,“ sagði Starmer á blaðamannafundi í dag. Frakkland og Bretland fara fram á að sundið verði opið án takmarkana og ekki verði þar rukkaðir tollar líkt og hefur verið til umræðu. Þá vilji ríkin vinna með Alþjóðasiglingamálastofnuninni, útgerðum, tryggingafélögum og hagsmunasamtökum til að tryggja að starfsemi geti hafist á svæðinu á ný og öryggi skipa og sjófarenda verði tryggt. Í þriðja lagi staðfestu ríkin Bretland og Frakkland að þau væru að koma á fót „sjálfstæðu og varnarsinnuðu fjölþjóðlegu verkefni til að vernda skip, fullvissa útgerðir, og framkvæma jarðsprengjuleit“ um leið og aðstæður leyfa í kjölfar samkomulags um varanlegt vopnahlé.
Mest lesið „Það er ósatt, ósatt með öllu“ Innlent Sættir sig ekki við sýknu lögreglumannsins Innlent „Fokk ðe queers og fullt af atkvæðum?“ Innlent Prestur afþakkar „ömurlegan málflutning“ Miðflokksins Innlent Kennarasambandið mismunaði konu Innlent Stóra aðgerðin valdi titringi á fíkniefnamarkaði Innlent Sögufrægt og aldursfriðað hús orðið að slysagildru Innlent Áslaug Arna boðar endurkomu á Alþingi Innlent Gripinn í blokk við þvottastúss eftir árásina Innlent „Ég var gjörsamlega svo hissa að ég vissi ekki hvert ég ætlaði“ Innlent Fleiri fréttir Bretar og Frakkar ætla að leiða aðgerðir við Hormússund Hormússundið opið á ný Vopnaðir ræningjar héldu 25 í gíslingu í banka á Ítalíu D4vd handtekinn vegna gruns um að hafa banað táningsstúlku Mandelson veitt öryggisheimild þrátt fyrir að hafa fallið á bakgrunnsathugun Brothætt vopnahlé í Líbanon hefur tekið gildi Boðar tíu daga vopnahlé milli Ísraels og Líbanon Páfinn skaut föstum skotum að harðstjórum Íranir geti valið auðveldu leiðina eða þá erfiðu Stjórnvöld í Frakklandi vilja fá ríkisborgara lausan Viðræður sagðar standa yfir en ekkert fast í hendi Að minnsta kosti fimmtán létust í árásum Rússa á Úkraínu Suður-Grænland fær nýjan alþjóðaflugvöll Gríðarleg vonbrigði meðal kennara með orð Ingu Sæland í morgun Flóttamenn drukknuðu þegar yfirfullum togara hvolfdi Hælisleitendur aðstoðaðir við að þykjast vera samkynhneigðir Segir viðræður mögulega hefjast á ný á næstu dögum Fyrstu viðræður Ísraela og Líbana Kona forsætisráðherra Spánar ákærð fyrir spillingu Staðfesting úrslita dönsku kosninganna í uppnámi Stórt smyglmál til rannsóknar og eitrað fyrir gæludýrum í Kjós Lýsir yfir fyrsta sigri vélmenna á vígvellinum Svikarar við þjóðina verði dregnir til ábyrgðar Segist ekki munu biðja páfa afsökunar Hezbollah mótmælir viðræðum og Íranir krefjast skaðabóta Mótmæla samruna Paramount og Warner Bros Öllum írönskum skipum útrýmt nálgist þau herkví Ótrúleg valdatíð Viktors Orban á enda Páfi hvergi banginn þrátt fyrir atyrði Trump Innanbúðarmaðurinn sem lagði Orbán Sjá meira