Ég býð mig fram til að taka Borgarlínuna fyrir þig Margrét Rós Sigurjónsdóttir skrifar 28. apríl 2026 07:00 Kæri borgarbúi sem sérð ekki fyrir þér að nota Borgarlínuna - ég býð mig fram til þess að taka Borgarlínuna fyrir þig. Ef þú ert íbúi í Reykjavík og langar aldrei að prófa að taka Borgarlínu þá er það bara allt í lagi. Við erum nefnilega nógu mörg sem viljum nota einkabílinn minna, taka borgarlínu og þannig létta á umferðinni fyrir alla. Borgarbúar eiga að hafa frelsi til þess að velja á milli góðra samgöngumáta. Það er nauðsynlegt að standa vörð um það frelsi enda eru góðar samgöngur lykilatriði í framsækinni borg. Við í Viðreisn styðjum Borgarlínu og Samgöngusáttmálann - fyrsta útgáfa af honum var undirrituð af ráðherrum, bæjarstjórum og borgarstjóra fyrir sjö árum og álíka hópur uppfærði hann fyrir tæpum tveimur árum. Samgöngusáttmálinn datt ekki af himnum ofan Í Samgöngusáttmálanum er fjárfesting uppá 311 milljarða til 2040 - til jafns fyrir bíla og almenningssamgöngur, ásamt hjóla- og göngustígum. Samgöngusáttmálinn datt ekki af himnum ofan. Hann er niðurstaða þúsunda funda, mælinga og tímamótasamráðs. Því fer fjarri að allir Íslendingar vilji nota bílinn sinn sem skjöld fyrir veðrinu. Sjálf hjóla ég flesta daga ársins og veðrið er ekki jafn slæmt og fólk heldur fram. Veðrið er hinsvegar aldrei verra heldur en þegar rigningin dynur á framrúðunni og þú ert fastur í umferð. Ef það er þinn draumur að fara þinna ferða á einkabílnum, þá er það allt í lagi því samgöngusáttmálinn gildir líka fyrir þig. Annað þarf ekki að útiloka hitt Það er til fólk sem vill nota bæði einkabílinn og Borgarlínuna. Annað þarf ekki að útiloka hitt. Við eigum að geta valið hvort við förum á bíl eða með Borgarlínunni á stóra viðburði eða í vinnuna og það á að vera einfalt og þægilegt. Að geta skilið bílinn eftir heima þegar fjölskyldan fer á landsleik, fer í miðbæinn á Menningarnótt eða skellir sér á Moulin Rogue hefur marga kosti. Hugsaðu þér ef helmingur þeirra sem mæta skilja bílinn eftir heima, þá eiga þau sem koma á bíl auðveldara með að fá stæði og sitja ekki föst í umferð á heimleiðinni. Árlega skoðar Gallup ferðavenjur borgarbúa og þar kemur fram að 24 prósent borgarbúa vilji keyra minna. Það eru 11 prósent borgarbúa sem labba og hér myndu öflugar almenningssamgöngur létta undir. Að vita að þú getir stokkið upp í vagn ef þér liggur á gerir það að verkum að það er auðveldara að leggja af stað gangandi. Kjaramál fyrir fjölskyldur Ég tilheyri þeim fimm prósent hópi fólks sem hjólar, en samkvæmt rannsókninni myndu 14 prósent vilja hjóla. Hlutfall virkra ferðamáta hjá fullorðnum er að aukast. Æ fleiri dreymir um að sleppa við að að keyra einkabílinn til vinnu og skóla. Góðar almenningssamgöngur leika lykilhlutverk í að þessi draumur rætist - það er nefnilega svo auðvelt að labba eða hjóla hluta leiðar ef almenningssamgöngur virka. Góðar almenningssamgöngur eru nauðsynlegar til að ná kolefnishlutleysi í Reykjavík. Góðar almenningssamgöngur eru þess vegna bæði umhverfismál og jafnréttismál en ekki síst kjaramál fyrir fjölskyldur. Ef strætókerfið virkar, við höfum deilibíla og fjölbreyttar lausnir geta fjölskyldur losað sig við bíl númer tvö. Og það telur - bæði fyrir umhverfið og budduna. Höfundur skipar 4. sæti á lista Viðreisnar í Reykjavík. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Skoðun: Sveitarstjórnarkosningar 2026 Reykjavík Mest lesið Halldór 24.10.26 Halldór Stígum inn, konur eiga ekki að þurfa að herða sig Jakob Tryggvason Skoðun Hallalaus fjárlög mega ekki kosta farsæld barna Sveitarstjórnarfólk Framsóknar Skoðun 7 er ekki lengur 7 Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir,Álfhildur Leifsdóttir Skoðun Af hverju er ríkisstjórninni svona illa við landsbyggðina… Sigríður Ólafsdóttir Skoðun Lífeyrissjóðs tekjur og skerðing ellilífeyris Sigurður Tómas Garðarsson Skoðun Hugrenningar í kjölfar sýknudóms í Landsrétti Helgi Gunnlaugsson Skoðun Ósýnileg hamlandi einkenni – þegar baráttan sést ekki Sigrún Heimisdóttir Skoðun Ríkisútvarpið og hlutverk þess Skoðun Sátt um hvað? Ofbeldi er ekki ágreiningur Inga Valgerður Henriksen Bergdal Skoðun Skoðun Skoðun Loftbrúin er fjárfesting í landsbyggðunum Rögnvaldur Guðmundsson skrifar Skoðun Loftbrúin á að jafna aðstöðumun – ekki auka hann Jóhanna Lilja Eiríksdóttir skrifar Skoðun Bruninn á Stuðlum og ábyrgð ríkisins Salvör Nordal skrifar Skoðun Af hverju er ríkisstjórninni svona illa við landsbyggðina… Sigríður Ólafsdóttir skrifar Skoðun Mannréttindi eru ekki góðvild — þau eru góð stefna Björn Leví Gunnarsson skrifar Skoðun Við krefjumst þess að þolendur segi frá. En er kerfið tilbúið að hlusta? Herdís Ósk Sveinsdóttir skrifar Skoðun Börn bíða eftir hjálp á meðan stjórnvöld ræða einkunnir Kristín Kjartansdóttir skrifar Skoðun I'm simply the best, better than all the rest...: Skýrt markmið, óskýr framkvæmd og enn ein útgáfan Hjálmar Bogi Hafliðason skrifar Skoðun Hallalaus fjárlög mega ekki kosta farsæld barna Sveitarstjórnarfólk Framsóknar skrifar Skoðun Bráðum verðum við ósýnileg Ágúst Mogensen skrifar Skoðun Sameinuðu þjóðirnar í 81 ár: Lýðræði og mannréttindi verja sig ekki sjálf Eva Harðardóttir,Erlingur Erlingsson,Helen María Ólafsdóttir,Páll Ásgeir Davíðsson,Rakel Anna Boulter,Viktoría Valdimarsdóttir,Þorvarður Atli Þórsson,Þórður Kristinsson skrifar Skoðun Kröfurnar standa enn Georg Páll Skúlason skrifar Skoðun Stígum inn, konur eiga ekki að þurfa að herða sig Jakob Tryggvason skrifar Skoðun America First – eða America Alone? Gestur Valgarðsson skrifar Skoðun Þversögnin í menntamálum Helga María Pálsdóttir skrifar Skoðun Sátt um hvað? Ofbeldi er ekki ágreiningur Inga Valgerður Henriksen Bergdal skrifar Skoðun Er samþykki skálkaskjól fyrir skepnuskap ? Magnea Marinósdóttir skrifar Skoðun Ósýnileg hamlandi einkenni – þegar baráttan sést ekki Sigrún Heimisdóttir skrifar Skoðun Íslendingar kusu fátækt og einangrun þann 29. ágúst 2026 Jón Frímann Jónsson skrifar Skoðun Innviðirnir verða að ráða hraðanum Eggert Guðmundsson skrifar Skoðun Falleinkunn fyrir Heima-dæmi Sigurður Sævarsson skrifar Skoðun 7 er ekki lengur 7 Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir,Álfhildur Leifsdóttir skrifar Skoðun Þegar sátt er ekki lausnin – hvaða aðrar leiðir eru færar? Kristín Skjaldardóttir,Þóra Sigfríður Einarsdóttir skrifar Skoðun Margt smátt Sigurður Líndal Þórisson skrifar Skoðun Lífeyrissjóðs tekjur og skerðing ellilífeyris Sigurður Tómas Garðarsson skrifar Skoðun Stígum inn, konur eiga ekki að þurfa að herða sig Jakob Tryggvason skrifar Skoðun Verkin fylgja, varla fé Magnús Magnússon skrifar Skoðun Þrjú lögregluembætti – á hvaða forsendum? Björn Bjarki Þorsteinsson skrifar Skoðun Ríkisútvarpið og hlutverk þess skrifar Skoðun Leyndinni loks aflétt Jón Pétur Zimsen skrifar Sjá meira
Skoðun Við krefjumst þess að þolendur segi frá. En er kerfið tilbúið að hlusta? Herdís Ósk Sveinsdóttir skrifar
Skoðun I'm simply the best, better than all the rest...: Skýrt markmið, óskýr framkvæmd og enn ein útgáfan Hjálmar Bogi Hafliðason skrifar
Skoðun Sameinuðu þjóðirnar í 81 ár: Lýðræði og mannréttindi verja sig ekki sjálf Eva Harðardóttir,Erlingur Erlingsson,Helen María Ólafsdóttir,Páll Ásgeir Davíðsson,Rakel Anna Boulter,Viktoría Valdimarsdóttir,Þorvarður Atli Þórsson,Þórður Kristinsson skrifar
Skoðun Þegar sátt er ekki lausnin – hvaða aðrar leiðir eru færar? Kristín Skjaldardóttir,Þóra Sigfríður Einarsdóttir skrifar