Byltingarvörðurinn herðir tökin á stjórnartaumunum Samúel Karl Ólason skrifar 29. apríl 2026 13:45 Mynd af meðlimum byltingarvarðar Íran þegar þeir tóku stjórn á grísku flutningaskipi á Hormússundi. AP/Meysam Mirzadeh, Tasnim News Agency Íran hefur ekki lengur einn stjórnanda sem tekur úrslitaákvarðanir um hvaða stefnu ríkið tekur. Herforingjar og aðrir valdamiklir menn sem tengjast flestir byltingarverði Íran eru nú sagðir taka flestar ákvarðanir sem nýi æðstiklerkurinn veitir svo blessun sína.
Meðlimir þjóðaröryggisráðs Íran, háttsettir menn á skrifstofu æðstaklerksins og herforingjar úr byltingarverðinum taka nú allar helstu ákvarðanir í landinu, samkvæmt heimildarmönnum Reuters og annarra miðla ytra. Mojtaba Khamenei, nýr æðstiklerkur Íran, hefur ekki sést opinberlega síðan hann var valinn í embættið. Hann er sonur Ali Khamenei, fyrrverandi æðstaklerks sem felldur var í loftárás í upphafi árása Bandaríkjanna og Ísrael á Íran. Mojtaba mun hafa særst alvarlega í sömu árás og faðir hans og aðrir fjölskyldumeðlimir dóu í og hefur verið í felum síðan. Byltingarvörður Íran spilaði stóra rullu í því að koma Mojtaba til valda. Í samtali við Reuters segir pakistanskur embættismaður að Íranir séu mjög lengi að taka ákvarðanir. Pakistanar hafa reynt að miðla málum milli Bandaríkjamanna og Írana. „Það er víst ekkert ákvörðunarferli. Stundum tekur það tvo til þrjá daga að fá svar.“ Fréttakona New York Times, sem sérhæfir sig í málefnum Íran, lýsti stöðunni þar á dögunum á þann veg að það væri ekki lengur einn forstjóri sem réði öllu. Núna væri hægt að líkja stjórnvöldum við stjórn fyrirtækis, þar sem margir kæmu að því að taka ákvarðanir. Allir „stjórnarmeðlimirnir“ eiga það sameiginlegt að vera í eða hafa verið í byltingarverði Íran, eins og „stjórnarformaðurinn“ Mojtaba Khamenei. Margir þjónuðu með honum í sömu herdeildinni í stríðinu gegn Írak á árum áður. Enginn talar við Khamenei með rafrænum hætti og eru skilaboð til hans borin af sendlum. Hann svarar svo og eru svör hans borin til baka. Sagður ætla að halda hverkví áfram Hægagangurinn er samkvæmt greinendum og sérfræðingum þó ekki eingöngu vegna flókins ákvörðunarferlis og hægvirkra boðleiða, heldur einnig vegna þess að kröfur Bandaríkjamanna í garð Írana eru mun meiri en ráðamenn í Íran geta sætt sig við. Íranir vörpuðu á mánudaginn fram tillögum að sáttum við Bandaríkjamenn en samkvæmt þeim yrði spurningin um kjarnorkuáætlun Íran lögð til hliðar á meðan unnið yrði úr málefnum Mið-Austurlanda og Hormússunds. Bandaríkjamenn hafa ítrekað krafist þess að Íranir slái kjarnorkuáætlunina alfarið af borðinu. Þeir vilja að Íranir gefi frá sér það úran sem þeir hafa þegar auðgað og samþykki að auðga ekki meira. Donald Trump, forseti Bandaríkjanna, mun ekki hafa verið sáttur við áðurnefndar tillögur Írana og er hann sagður hafa sagt ráðgjöfum sínum að búast við því að herkvíin gegn Íran muni vara til langs tíma. Sjá einnig: Framlengir vopnahléið og herkvína Forsetinn er sagður telja að áframhaldandi herkví fæli í sér minni áhættu en að hefja árásir á nýjan leik eða ljúka stríðinu gegn Íran. Í færslu sem hann birti á samfélagsmiðli sínum í morgun hótaði Trump ráðamönnum í Íran enn eina ferðina og sagði þá ekki geta girt sig í brók. Leiðtogar ríkisins þurfi að gera samkomulag um kjarnorkuáætlun Íran annars verði honum að mæta. Með færslunni, sem hann birti um klukkan fjögur að nóttu til að staðartíma, fylgdi meðfylgjandi mynd. Myndin sem fylgdi færslu Trumps um að Íranir þyrftu að semja, annars væri honum að mæta. Trump fór í gærkvöldi hörðum orðum um Friedrich Merz, kanslara Þýskalands. Það er eftir að Merz sagði opinberlega á dögunum að Íranir hefðu leikið á Bandaríkjamenn og væru að spila með þá. „Forysta Íran er að niðurlægja heila þjóð, sérstaklega þessi svokallaði Byltingavörður. Þannig að ég vona að þetta taki enda sem fyrst.“ Í færslu á Truth Social skrifaði Trump að Merz vissi ekkert hvað hann væri að tala um. Ef Íranir eignuðust kjarnorkuvopn myndu þeir halda öllum heiminum í gíslingu og sagðist Trump vera að gera það sem nauðsynlegt væri og að aðrir þjóðarleiðtogar heims hefðu átt að gera fyrir löngu síðan. „Engin furða að Þýskalandi vegna svona illa, bæði efnahagslega og á öðrum sviðum!“ Færsla Trumps um Friedrich Merz. Lars Klingbeil, fjármálaráðherra Þýskalands, gagnrýndi Trump einnig í dag. Hann sagði meðal annars að „óábyrgt“ stríð Trumps gegn Íran hefði dregið verulega úr hagvexti í Þýskalandi. Áhrif stríðsins á Þýskaland væru mikil, þó Þjóðverjar kæmu ekki nálægt því. Það fyndist sérstaklega við bensíndælurnar og á hærri orkukostnaði. Germany's Finance Minister Lars Klingbeil slams Trump:Trump’s irresponsible Iran war… has cut our growth in half.This is not our war—but we feel its impact massively.People feel it at the gas pump… companies face high energy prices. pic.twitter.com/K5Aj9mKzpL— Clash Report (@clashreport) April 29, 2026 Vilja hvorugir gefa eftir Hvorug fylkingin virðist tilbúin til að gefa eftir að svo stöddu. Bandaríkjamenn telja sig geta þvingað Írani til eftirgjafar en ráðamenn í Íran telja að þeir geti staðið þrýsting Bandaríkjanna af sér. Einn sérfræðingur sagði Reuters að markmið Írana virtist vera að tryggja áframhaldandi stjórn þeirra á ríkinu, koma í veg fyrir að átökin hefjist aftur að fullu og að varðveita samningsstöðu þeirra, sérstaklega varðandi Hormússund. Þannig væri markmið þeirra að styrkja stöðu sína að stríðinu loknu. Í millitíðinni koma átökin verulega niður á almenningi í Íran. Efnahagsvandræði hafa lengi plagað ríkið og leiddi það til umfangsmikilla mótmæla í fyrra og upphafi þessa árs. Þau mótmæli voru barin niður af mikilli hörku. Síðan átökin í Mið-Austurlöndum hófust, þegar Bandaríkjamenn og Ísraelar hófu árásir á Íran og Íranir gerðu umfangsmiklar árásir á nágrannaríki sín, hefur efnahagsástandið í Íran versnað til muna. Trump vonast til þess að ástandið verði enn verra og vill þannig þvinga Írani til að gefa eftir.
Íran Bandaríkin Donald Trump Árásir Bandaríkjanna og Ísraels á Íran Hernaður Ísrael Þýskaland Pakistan Tengdar fréttir Rússnesk lúxussnekkja fór um Hormús-sund án vandræða Þrátt fyrir að olíuverð hafi rokið upp og flutningaleiðir raskast eftir að Hormús-sundi var lokað af Írönum og Bandaríkjamenn settu hafnbann á Íran átti rússnesk ofursnekkja ekki í neinum vandræðum með að sigla í gegnum sundið um síðustu helgi. 28. apríl 2026 08:32 „Við búum í brjáluðum heimi“ Donald Trump Bandaríkjaforseti sagði í samtali við fréttaskýringaþáttin 60 Mínútur um helgina að hann hefði ekki orðið hræddur þegar árás var gerð þar sem galakvöldverður fjölmiðla og stjórnmálamanna fór fram í Washington. 27. apríl 2026 07:30 Trump segir komið að Írönum að hringja Fyrirhugaðar Bandaríkjamanna og Írana runnu enn einu sinni út í sandinn eftir að Donald Trump Bandaríkjaforseti skipaði erindrekum sínum að hætta við ferð til Islamabad í þeim tilgangi að funda með fulltrúum Írana. 26. apríl 2026 11:26 Segja engan fund á dagskrá Hvíta húsið segir að samningamenn á vegum Bandaríkjanna haldi til Pakistan í dag í von um að semja um frið við Írani. Írönsk stjórnvöld segja aftur á móti að engir fundir með Bandaríkjamönnum séu á dagskrá, þrátt fyrir að utanríkisráðherra Írans sé í Íslamabad. 25. apríl 2026 08:21 Mest lesið Lúther sagður í haldi vegna kókaínsmygls Innlent Velja Viljandi villt Innlent Heimilislausir Píratar leita að nýrri Tortúga Innlent Var til vandræða og reyndist eftirlýstur Innlent Kannski rétt að hverfa frá áformum um nýjan sparkvöll við Landakot Innlent Ræddi við bæði Pútín og Selenskí Erlent Spá sautján stiga hita á höfuðborgarsvæðinu Veður „Hefði mátt koma í veg fyrir enn frekari ótta“ Innlent Afturkalla breytinguna gegn gjaldi Innlent Árekstur við afleggjara á Norðurlandi vestra Innlent Fleiri fréttir Ræddi við bæði Pútín og Selenskí Hitabylgja skekur Bandaríkin á 250 ára afmælisdaginn Gerðu umfangsmiklar árásir á olíuinnviði Rússa Vikulöng jarðarför Khameini hafin Dauðsföllum fjölgaði um tugi prósenta í hitabylgjunni Ný þungunarrofslög taka gildi í Færeyjum Afhjúpa alþjóðlegt net manna sem byrla og brjóta gegn konum Trump sparkar í bandamenn í aðdraganda Nató-fundar í Ankara Fyrrum Ólympíufari ákærður fyrir að skemma laugina við Lincoln-minnismerkið Gary Glitter ákærður fyrir kynferðisbrot eina ferðina enn Að minnsta kosti átján látnir eftir umfangsmiklar árásir „Antonio hefur með eigin augum séð byggingar hrynja“ Páfagarður bannfærir alla presta og fylgjendur bræðralagsins Ellefu ára drengur lést eftir að hafa vaknað með leðurblöku á andlitinu Verða líklega bannfærðir eftir vígslu gegn vilja páfa Þrettán látnir hið minnsta eftir stóra drónaárás Rússa Paradís Kushner ógn við aðildarviðræður Albaníu og ESB Klifu á topp Empire State-byggingarinnar Þýska landsliðið spegli land stöðnunar Eldur braust út í fjölbýlishúsi og nokkrir eru látnir Mótmælendur í Suður-Afríku krefjast brottflutnings innflytjenda Úkraínumenn kaupa sextán Gripen E frá Svíþjóð Dæmdur í fangelsi fyrir að hrella fyrrverandi kærustu Börn sem fæðast í Bandaríkjunum áfram talin bandarísk Mega banna trans konum að stunda keppnisíþróttir Úkraínskur auðkýfingur særðist í sprengjutilræði í Mónakó Reiðin magnast í Venesúela Sjötti lést af sárum sínum á sjúkrahúsi Fimm sagðir látnir í skotárás nærri Hamborg Hafi komið líki stúlkunnar fyrir í ferðatösku Sjá meira
Rússnesk lúxussnekkja fór um Hormús-sund án vandræða Þrátt fyrir að olíuverð hafi rokið upp og flutningaleiðir raskast eftir að Hormús-sundi var lokað af Írönum og Bandaríkjamenn settu hafnbann á Íran átti rússnesk ofursnekkja ekki í neinum vandræðum með að sigla í gegnum sundið um síðustu helgi. 28. apríl 2026 08:32
„Við búum í brjáluðum heimi“ Donald Trump Bandaríkjaforseti sagði í samtali við fréttaskýringaþáttin 60 Mínútur um helgina að hann hefði ekki orðið hræddur þegar árás var gerð þar sem galakvöldverður fjölmiðla og stjórnmálamanna fór fram í Washington. 27. apríl 2026 07:30
Trump segir komið að Írönum að hringja Fyrirhugaðar Bandaríkjamanna og Írana runnu enn einu sinni út í sandinn eftir að Donald Trump Bandaríkjaforseti skipaði erindrekum sínum að hætta við ferð til Islamabad í þeim tilgangi að funda með fulltrúum Írana. 26. apríl 2026 11:26
Segja engan fund á dagskrá Hvíta húsið segir að samningamenn á vegum Bandaríkjanna haldi til Pakistan í dag í von um að semja um frið við Írani. Írönsk stjórnvöld segja aftur á móti að engir fundir með Bandaríkjamönnum séu á dagskrá, þrátt fyrir að utanríkisráðherra Írans sé í Íslamabad. 25. apríl 2026 08:21