Vopnahléið enn í gildi en alls óvíst um varanlegt samkomulag Hólmfríður Gísladóttir skrifar 8. maí 2026 06:55 Trump hefur nú ítrekað sagt að samkomulag sé í augnsýn, án þess að af hafi orðið. Getty/Roberto Schmidt Donald Trump Bandaríkjaforseti segir vopnahlé enn í gildi milli Bandaríkjanna og Íran, þrátt fyrir að komið hafi til átaka á Hormuz-sundi í gær.
Bandaríkjamenn hafa sakað Írani um að hafa beint drónum, eldflaugum og smábátum gegn þremur herskipum Bandaríkjanna. Íranir segja á móti að Bandaríkjamenn hafi gert árásir á íranskt olíuflutningskip og annað skip til, og á nokkur skotmörk við strandlengjuna. Miðlar í Íran hafa greint frá því að sprengingar hafi heyrst á Hormuz-sundi og í Tehran. Þá var greint frá loftárásum Bandaríkjanna á Bandar Khamir, Sirik og Qeshm-eyju við ströndina. Svo virðist sem Íranir hafi gripið til mótaðgerða en varnarmálaráðuneyti Sameinuðu arabísku furstadæmanna greindi frá því í morgun að varnarkerfi landsins hefðu brugðist við eldflauga- og drónaárás. Hermálayfirvöld vestanhafs sögðu fyrir sitt leyti að Íranir hefðu átt frumkvæðið að árásum á herskip Bandaríkjanna á Hormuz-sundi en þeim hefði verið svarað með árásum á hernaðarinnviði í Íran. Trump sagði á Truth Social í gærkvöldi að Bandaríkin hefðu grandað nokkrum fjölda smábáta og hafði aftur í hótunum; Íranir myndu sæta hörðum árásum ef þeir samþykktu ekki tillögur Bandaríkjamanna og það strax. Yfirvöld í Íran sögðu í gær að verið væri að skoða tillögurnar. Misvísandi fregnir hafa borist af því hvort samkomulag er í augnsýn en báðir aðilar hafa hótað ofbeldi ef ekki verður orðið við kröfum þeirra. Langt virðist á milli aðila hvað varðar kjarnorkuáætlun Írana.
Bandaríkin Íran Árásir Bandaríkjanna og Ísraels á Íran Donald Trump Mest lesið „Ég er hræddur við þessa menn“ Innlent „Sleggja beint í höfuðið á almenningi og fyrirtækjum“ Innlent Biður Loga afsökunar „á dónaskapnum“ Innlent Stærðfræðin vefst fyrir íslenskum stúlkum Innlent Bannar innflutning á kanadískum vörum Erlent Haraldur Noregskonungur borinn til grafar Erlent Leikskólakennarar slegnir yfir ummælum Ingu Innlent Réðust á fleiri olíuflutningaskip Erlent Sumir framhaldsskólar líti fram hjá unglingadrykkju Innlent Töluðu saman í klukkutíma Erlent Fleiri fréttir Farage kemur frönskum skoðanabróður í klandur Banna breskum þingmönnum að koma til Ísraels Haraldur Noregskonungur borinn til grafar Rétta yfir rússneskum skipstjóra sem sleit sæstrengi við Finnland Leita enn að Renoir-þjófunum Bannar innflutning á kanadískum vörum Réðust á fleiri olíuflutningaskip Skutu tugum eldflauga og dróna að borgum Sádi-Arabíu Töluðu saman í klukkutíma Handtaka grunaðan spellvirkja í Þýskalandi Fordæma útförina sem „Slátrarinn“ fékk í Serbíu Grípa saman til aðgerða gegn ísraelskum landtökumönnum Allir þeir látnu í bílum sem flugvélin rann á Dýrmætum listaverkum stolið af safni Renoir Starfsmenn í verkfall eftir heimsókn trúarhóps Kim fjölgar herskipum sínum Fjárfesta í menntamálum, fjarskiptum og jarðmálmum á Grænlandi Klerkastjórnin missir tökin Rússar svara fyrir sig Ísland á Ameríkukorti Trumps Stöðnun og dýrtíð að baki stórsigri AfD Kanslarinn segir sigur AfD draga dilk á eftir sér Svíþjóðardemókrati í leyfi vegna Rússaáróðurs og hreinsanir á vinstri vængnum Útlit fyrir fyrstu fjarhægristjórnina frá endalokum nasismans Nafnabreytingaæði Trumps heldur áfram Ýmislegt bendi til stjórnarskipta í Svíþjóð Minnst fimm látnir eftir flugslys í Flórída Útgönguspár benda til stórsigurs AfD Margrét Þórhildur lögð inn á sjúkrahús Mætt til Grænlands með pyngju fulla af peningum Sjá meira