Vefjagigt – ruslakistugreining eða raunverulegur sjúkdómur? Hrönn Stefánsdóttir skrifar 12. maí 2026 10:21 12. maí er alþjóðlegur dagur vefjagigtar. Þessi dagur fer oft hljóðlega fram hjá mörgum en fyrir þúsundir Íslendinga snýst hann um að fá viðurkenningu, skilning og virðingu fyrir sjúkdómi sem hefur djúpstæð áhrif á daglegt líf. Vefjagigt er langvinnur verkjasjúkdómur sem einkennist af víðtækum verkjum, síþreytu, svefntruflunum og skertum lífsgæðum. Vefjagigt hefur áhrif á einbeitingu, minni, andlega líðan og getu til að taka þátt í samfélaginu, hvort sem það er í vinnu, námi eða félagslífi. Þrátt fyrir þetta er vefjagigt enn of oft misskilin og jafnvel talin af almenningi vera greining sem notuð er þegar það finnst ekkert raunverulega að fólki. Vegna þess að sjúkdómurinn er ósýnilegur er hann stundum dreginn í efa. Fólk með vefjagigt heyrir enn setningar eins og „þú lítur svo vel út“ eða „ertu ekki bara þreytt?“ setningar sem sýna skort á skilningi á því sem er að gerast í líkamanum. Raunin er sú að vefjagigt er raunverulegur líkamlegur sjúkdómur. Rannsóknir benda til þess að um sé að ræða truflun í verkjaúrvinnslu miðtaugakerfisins, þar sem líkaminn magnar upp sársauka og áreiti. Þetta er ekki spurning um vilja eða hugarfar – heldur lífeðlisfræðilegt ástand sem krefst viðurkenningar og meðferðar. Fyrir marga er leiðin að greiningu löng. Það getur tekið nokkur ár að fá svör og á meðan upplifir fólk oft vantrú, óvissu og jafnvel skömm. Þessi bið hefur mikil áhrif, bæði andleg og líkamleg. En þrátt fyrir áskoranir er hægt að lifa góðu lífi með vefjagigt. Með réttri fræðslu, stuðningi og meðferð geta margir náð betri tökum á einkennum sínum og bætt lífsgæði sín. Þar skipta heilbrigðisstarfsfólk, endurhæfing, hreyfing, jafnvægi í daglegu lífi og skilningur umhverfisins miklu máli. Það hvernig samfélagið bregst við fólki með vefjagigt gegnir líka lykilhlutverki í að hjálpa fólki að ná tökum á sjúkdómnum. Við þurfum að hlusta þegar fólk segir frá einkennum sínum, jafnvel þótt við sjáum þau ekki. Við þurfum að hætta að gera ráð fyrir að hægt sé að dæma út frá útliti fólks hvernig því líður og við þurfum að skapa umhverfi þar sem fólk með langvinna sjúkdóma fær raunveruleg tækifæri til þátttöku í samfélaginu, til dæmis með því að geta unnið vinnu með sveigjanlegum vinnutíma eða möguleika á heimavinnu á slæmum dögum. Einnig er mikilvægt að vinnustaðir fari eftir lögum um viðeigandi aðlögun og hjálpi fólki að geta haldið áfram í vinnu með aðlögunum í vinnuumhverfi þar sem það á við. Slík aðlögun getur meðal annars falist í því að vera með stillanlegt skrifborð eða með því að breyta lýsingu þannig að fólki líði betur í vinnuumhverfinu. Alþjóðlegur dagur vefjagigtar er áminning um að ósýnilegir sjúkdómar eru engu síður raunverulegir. Vefjagigt er enn sjúkdómur sem ekki er mikill skilningur á og margir hafa fordóma gagnvart honum. Vitundarvakning er lykilatriði – ekki aðeins til að flýta greiningu og bæta meðferð, heldur einnig til að efla skilning og stuðning frá fjölskyldu, vinum, vinnuveitendum og samfélaginu í heild. Með aukinni meðvitund, skilningi og samkennd getum við gert líf fólks með vefjagigt léttara og betra. Höfundur er formaður Gigtarfélags Íslands. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Heilbrigðismál Mest lesið Bitna kjarasamningar kennara á börnunum okkar? Sigrún Ólöf Ingólfsdóttir Skoðun Áskorun til stjórnar RÚV: Rekið fréttastjórann Einar Steingrímsson Skoðun Leigubremsa er almannahagsmunamál Yngvi Ómar Sigrúnarson Skoðun Leigubremsan og vönduð lagasetning Gunnar Ármannsson Skoðun Tímamót Samúel Guðmundsson Skoðun Útlendingaandúð í málverndarbúningi Nichole Leigh Mosty Skoðun Sannleikurinn var ekki á stundaskrá Sigmundur Einar Másson Skoðun Skjátími eða skjátími? Mathieu Grettir Skúlason Skoðun Heilbrigð þjóð þarf gott samtal Victor Guðmundsson Skoðun Maðurinn sem hringdi í óvininn Einar Bárðarson Skoðun Skoðun Skoðun Kópavogur fjölgar kennurum og fjárfestir í framtíð barna Ásdís Kristjánsdóttir skrifar Skoðun Hvað kostar stjórnun okkur? Maríanna Magnúsdóttir skrifar Skoðun Leigubremsan og vönduð lagasetning Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Leigubremsa er almannahagsmunamál Yngvi Ómar Sigrúnarson skrifar Skoðun Tímamót Samúel Guðmundsson skrifar Skoðun Næsta verðhækkun á ekki að vera sjálfgefin Ingvar Freyr Ingvarsson skrifar Skoðun Börn eftir pöntun Fæðingarorlofssjóðs Bryndís Haraldsdóttir skrifar Skoðun 100 ár af dellu Helgi Tómasson skrifar Skoðun Áskorun til ríkisstjórnarinnar: Ekki fækka borgarfulltrúm úr 23 Í 15! Guðni Freyr Öfjörð skrifar Skoðun Maðurinn sem hringdi í óvininn Einar Bárðarson skrifar Skoðun Samráð sem breytir Karólína Helga Símonardóttir skrifar Skoðun Um bakara og smiði. Hlaðvörp og skráning þeirra hjá Fjölmiðlanefnd Elfa Ýr Gylfadóttir skrifar Skoðun Farsælt framhaldslíf Steinunn Ragnarsdóttir skrifar Skoðun Það sem ég dáist að við íslenskar konur Valerio Gargiulo skrifar Skoðun Bitna kjarasamningar kennara á börnunum okkar? Sigrún Ólöf Ingólfsdóttir skrifar Skoðun Fíllinn í postulínsbúðinni: Veldisvöxtur breytinganna Árni Sigurðsson skrifar Skoðun Áskorun til stjórnar RÚV: Rekið fréttastjórann Einar Steingrímsson skrifar Skoðun Það eru ekki allir jafnir hér: Krefjumst jafnræðis lífsskoðunarfélaga og afnáms sérstakrar þjóðkirkju Svanur Sigurbjörnsson skrifar Skoðun Ræktum samtakamátt ASÍ Arnaldur Grétarsson skrifar Skoðun Öfugsnúið fyrirkomulag - lífeyrissjóðir okkar Aðalsteinn Júlíus Magnússon skrifar Skoðun Hver á upplýsingarnar um ofnæmi barnsins þíns? Bjarni Þór Ævarsson skrifar Skoðun Skjátími eða skjátími? Mathieu Grettir Skúlason skrifar Skoðun Stöndum með Seyðisfirði! Hannes Pétursson skrifar Skoðun 23? Björg Magnúsdóttir skrifar Skoðun Íslenskt táknmál er ekki erlent tungumál Sigurlín Margrét Sigurðardóttir skrifar Skoðun Heilbrigð þjóð þarf gott samtal Victor Guðmundsson skrifar Skoðun RÚV: hvað með okkur? Jónína Rósa Hjartardóttir skrifar Skoðun Álagsstýring: Rétt greining, valin dæmi Guðmundur Björnsson skrifar Skoðun Sannleikurinn var ekki á stundaskrá Sigmundur Einar Másson skrifar Skoðun Vangaveltur um menningarlæsi borgarstjórnar Orri Jónsson skrifar Sjá meira
Skoðun Áskorun til ríkisstjórnarinnar: Ekki fækka borgarfulltrúm úr 23 Í 15! Guðni Freyr Öfjörð skrifar
Skoðun Um bakara og smiði. Hlaðvörp og skráning þeirra hjá Fjölmiðlanefnd Elfa Ýr Gylfadóttir skrifar
Skoðun Það eru ekki allir jafnir hér: Krefjumst jafnræðis lífsskoðunarfélaga og afnáms sérstakrar þjóðkirkju Svanur Sigurbjörnsson skrifar