Ofbeldi og ábyrgð Ásta Þórdís Skjalddal Guðjónsdóttir skrifar 12. maí 2026 19:32 Af hverju er ekki sjálfsagt að sagt sé opinskátt frá ofbeldi sem á sér stað eða rætt upphátt ef um er að ræða staðfestan grun um ofbeldi?Af hverju þykir í lagi að ráðast að þeim sem segja frá og þeir gerðir að blóraböggli á meðan ofbeldið sætir þöggun og gerendur þannig látnir njóta vafans?Við vitum að þögnin er besta vopn gerenda og gerir þeim kleift að halda áfram!Það eru samt ekki bara þolendur sem þegja. Alltof oft þegja allir, bæði þeir sem eru í umhverfi þolenda og þeir sem eru í umhverfi gerenda.Þeir sem sjá rauðu flöggin vilja oft ekki benda á hugsanlegan geranda í von um að hafa kannski og vonandi bara rangt fyrir sér. Stundum hafa þeir hag af óbreyttum aðstæðum, vilja ekki rugga bátnum, finnst óviðeigandi að skipta sér af eða það sem er algengast – það vill enginn trúa því upp á dagsfarsprútt rólyndisfólk sem maður þekkir bara af góðu einu, að viðkomandi sé fær um að beita ofbeldi.Það er nefnilega sorgleg staðreynd að gerendur kunna þá list manna best að halda geislabaugnum vel pússuðum, glansmyndinni hreinni og laða að sér vel meinandi fólk sem speglast í gljáskinni og gyllingu ytra byrðisins og styður það í blindni án þess að þekkja hvað býr innra með viðkomandi.Metoo var bylting þolenda sem stigu fram og sögðu frá en vandinn er sá að lagaramminn segir að þolandinn einn má segja frá – og enginn annar!Sem gerir allt erfiðara þegar þolandinn hefur ekki getu eða þroska til að segja frá.Gerendur leita gjarnan uppi þá sem eru viðkvæmir á einhvern hátt og geta síður varið sig, geta síður sagt frá og það er t.d. ein af ástæðum þess að margir gerendur leita fanga meðal t.d. aldraðra, fatlaðs fólks, ungs fólks og barna.Þá kemur önnur erfið spurning, hvernig getum við varið fólkið okkar gegn áframhaldandi ofbeldi ef ekki má segja frá? Hvað ef það er staðfestur grunur um eða leikur vafi á?Eða það sem verra er; Að stigið er fram, sagt frá ofbeldi og samfélagið ræðst á þann sem segir frá í stað þess að standa með þolandanum eða stíga til hliðar ef fólk treystir sér ekki til að standa með þolanda. Þolendur á Íslandi hafa of oft hrakist frá heimabyggðum sínum vegna samstöðu smærri samfélaga með gerendum, því miður.Oftar en ekki þegar ofbeldismál hafa ratað í fréttir þá stígur einhver fram, í áfalli og segir frá atburðum sem það varð sjálft vitni að og hefði viljað segja frá, en hverjum?Hverjum getur þú sagt frá og hver tekur þig trúanlegan ef þú trúir ekki einu sinni eigin upplifun? Það er staðreynd að einn af hverjum sex einstaklingum eldri en 60 ára hefur orðið fyrir einhvers konar ofbeldi en talið er að einungis lítill hluti slíkra tilvika sé tilkynntur, meðal annars vegna skammar og ótta við afleiðingar.Skömmin er nefnilega gerandans besta vopn á eftir þögninni, skömmin við að vera þolandi, skömmin við að hafa verið blekktur, að hafa látið fara illa með sig, skömmin við reiðina og niðurlæginguna og svo skömmin að allir viti en sú skömm er enn meiri ef gerandi er tengdur eða skyldur sem oft er raunin þegar aldraðir eru beittir ofbeldi.Með ofbeldi gegn öldruðum á ég við eitt eða fleiri af eftirfarandi; andlegt, líkamlegt, fjárhagslegt, félagslegt eða kynferðislegt ofbeldi.Aldraðir eru jú líklegri til að eiga sparifé, hafa minni tækniþekkingu eða hafa ekki heilsu til að fylgjast nógu vel með og eru því útsettari fyrir fjárhagslegt ofbeldi en aðrir, bæði frá utanaðkomandi og frá sínum nánustu.Aldraðir eru ólíklegri til að segja frá ofbeldi vegna skammar þegar eigin börn eru gerendur en það gerir okkur nánast ókleyft að vernda þau gegn gerendum sínum - en meira að segja þegar sagt er frá, þá er það einungis þolandi sem má leggja fram lögreglukæru sem þýðir að takist ekki að halda geranda frá þolanda, mun gerandi beita þolandann áframhaldandi ofbeldi þangað til þolandi gefst upp og dregur kæruna til baka.Eftir að kæra hefur þannig verið þvinguð til baka er EKKERT sem verndar þolanda frá geranda sínum. Starfsmenn sjúkrahúsa og hjúkrunarheimila treysta sér ekki til að bregðast við komum geranda og án fyrirliggjandi kæru eða nálgunarbanns geta starfsmenn ekki bannað heimsóknir geranda svo gerendur ganga um stofnanirnar eins og hver annar og ofbeldið heldur áfram þegar aðrir ekki sjá.Ef við getum ekki stöðvað aðgengi geranda að öldruðum þolanda, þrátt fyrir að þolandi hafi sagt frá og reynt að kæra – þá hefur það enga þýðingu að segja frá.Þessu verður að breyta. Það er okkar að stíga fram og segja frá ofbeldi, okkar allra.Við hjá Vinstrinu viljum búa öldruðum áhyggjulaust ævikvöld, því þarf að finna leiðir til að tryggja að þegar upp kemur grunur um ofbeldi þá sé það rannsakað af alvöru og sé ofbeldi staðfest, þá sé brugðist við með ferli sem tryggir þolanda vernd gegn geranda sínum.Heimurinn er bara rétt að byrja að opna augun gagnvart því ofbeldi sem við mannfólkið beitum hvert annað en hausinn á okkur er samt á bólakafi ofan í jörðinni enn því við viljum ekki vita hvað er í gangi, ekki vera sá sem segir frá en við viljum samt svo gjarnan kjamsa á og hneykslast á náunganum úr öruggri fjarlægð en ætlumst svo til að einhver annar beri ábyrðina og það er alltaf einhver annar sem á að bregðast við.Ekki lengur, öxlum ábyrgð saman – segjum frá!Höfundur er aðstandandi þolanda, situr í mannréttindaráði Reykjavíkurborgar og skipar 4. sæti á framboðslista Vinstrisins fyrir Reykjavík. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Vinstrið Reykjavík Skoðun: Sveitarstjórnarkosningar 2026 Mest lesið Ef Ísland gengur í Evrópusambandið flyt ég til Danmerkur Benedikt Jóhannesson Skoðun Skítamixsumarið mikla Hulda Hallgrímsdóttir Skoðun Ísland á eilífa hagsmuni en ekki eilífa bandamenn Lára Herborg Ólafsdóttir Skoðun Þarftu að vita mikið um ESB til að kjósa 29. ágúst? Árný Elínborg Ásgeirsdóttir Skoðun Gætum við haft það betra? Eydís Ásbjörnsdóttir Skoðun Að gera illt verra - Verðbólgan og ábyrgð stjórnvalda Jón Ferdínand Estherarson Skoðun Þessir þröngsýnu ungu bændur Sunna Þórarinsdóttir Skoðun Ekki láta plata þig þann 29. ágúst Sveinn Atli Gunnarsson Skoðun Íslenski hesturinn og ESB: Hræðsluáróður eða raunveruleg hætta? Begga Rist Skoðun 30 dæmi um villandi framsetningu í efnahagsgreiningu Áfram Íslands Gauti B. Eggertsson Skoðun Skoðun Skoðun Við getum þetta sjálf – en hver græðir á því? Margrét Högnadóttir skrifar Skoðun Þarf fimm háskólagráður til að segja já? Berglind Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Já, já eða nei Þorsteinn Bergsson skrifar Skoðun Hvar má sleppa taumnum? Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Um sameiginleg verðmæti og veikleika stjórnkerfisins Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Nei við hindrunum - Ákvarðanir um Ísland á Íslandi Guðmundur Fertram Sigurjónsson skrifar Skoðun Ísland á eilífa hagsmuni en ekki eilífa bandamenn Lára Herborg Ólafsdóttir skrifar Skoðun Lífeyrissjóðirnir og aðalfundur Icelandair Kjartan Björgvinsson skrifar Skoðun Ísland og Færeyjar, yfirráð yfir auðlindum og fullveldi Ásgeir Daníelsson skrifar Skoðun Evrópskir hægrimenn eru Evrópusinnar Svavar Halldórsson skrifar Skoðun Evrópa - frá velferð til vígvæðingar Ólöf Benediktsdóttir skrifar Skoðun Ekki láta plata þig þann 29. ágúst Sveinn Atli Gunnarsson skrifar Skoðun Hver á fiskinn – og hvar verða verðmætin til? Baldur Johnsen skrifar Skoðun Gögnin sýna að Evrópa er langmikilvægasta markaðssvæði Íslands Gísli Hjálmtýsson skrifar Skoðun Grænland – áttu við Ísland? Damien Degeorges skrifar Skoðun Skítamixsumarið mikla Hulda Hallgrímsdóttir skrifar Skoðun Vextir, verðbólga, verðtrygging og íslenska veðráttan Árni Rúnar Þorvaldsson skrifar Skoðun 30 dæmi um villandi framsetningu í efnahagsgreiningu Áfram Íslands Gauti B. Eggertsson skrifar Skoðun Já til að sjá – áhættuspil? Guðmundur Edgarsson skrifar Skoðun Það eru breyttir tímar Þóroddur Ingvarsson skrifar Skoðun Er íslensk útgerð og kvótakerfi góð ástæða til að kjósa já 29. ágúst? Arndís Vala Arnfinnsdóttir skrifar Skoðun Ef Ísland gengur í Evrópusambandið flyt ég til Danmerkur Benedikt Jóhannesson skrifar Skoðun ESB hefur styrkt gróðahyggju á kostnað félagshyggju Ögmundur Jónasson skrifar Skoðun Hver ætlar að hafa augun á boltanum? Hnikarr Bjarmi Franklínsson skrifar Skoðun Þessir þröngsýnu ungu bændur Sunna Þórarinsdóttir skrifar Skoðun Brexit rútan mætt til Íslands! Andrés Pétursson skrifar Skoðun Að gera illt verra - Verðbólgan og ábyrgð stjórnvalda Jón Ferdínand Estherarson skrifar Skoðun Íslenski hesturinn og ESB: Hræðsluáróður eða raunveruleg hætta? Begga Rist skrifar Skoðun Landbúnaður og matvælaverð – Framtíðar þróun Guðjón Sigurbjartsson skrifar Skoðun Þegar stjórnvöld og stórfyrirtæki standa ekki við orð sín Jóhann Helgi Stefánsson,Jón Helgi Björnsson skrifar Sjá meira
Skoðun 30 dæmi um villandi framsetningu í efnahagsgreiningu Áfram Íslands Gauti B. Eggertsson skrifar
Skoðun Er íslensk útgerð og kvótakerfi góð ástæða til að kjósa já 29. ágúst? Arndís Vala Arnfinnsdóttir skrifar
Skoðun Þegar stjórnvöld og stórfyrirtæki standa ekki við orð sín Jóhann Helgi Stefánsson,Jón Helgi Björnsson skrifar