Boris í bobba: Rannsaka hvort kosningasjóðir hafi verið notaðir ólöglega Yfirkjörstjórn Bretlands tilkynnti í dag að hefja ætti formlega rannsókn sem snýr að Boris Johnson, forsætisráðherra. Rannsóknin snýr að því hvort Johnson hafi notað kosningasjóði til að gera endurbætur á íbúð sinni við Downing-stræti. Erlent 28. apríl 2021 15:54
Mikill meirihluti þingmanna samþykkir fríverslunarsamninginn við Breta Evrópuþingið hefur staðfest nýjan fríverslunarsamning milli Evrópusambandsins og Bretlands í kjölfar Brexit. Samningurinn hefur verið í gildi frá því í janúar en var samþykktur í morgun með 660 atkvæðum. Erlent 28. apríl 2021 09:01
Bretar gera sig breiða og sigla flota um höf Asíu Bretar munu í næsta mánuði senda herflota á siglingu um Asíu og Kyrrahaf. Um stærsta flota Bretlands í áraraðir er að ræða og verður nýja flugmóðurskipið HMS Queen Elizabeth í flotanum. Það er annað flugmóðurskip Bretlands og stærsta herskip sem ríkið hefur sett á flot. Erlent 27. apríl 2021 10:18
Englendingar 42 ára og eldri geta nú skráð sig í bólusetningu Frá og með gærdeginum gátu Englendingar 44 ára og eldri skráð sig í bólusetningu vegna Covid-19 en nú hefur aldurinn verið lækkaður og skráning stendur opin öllum 42 ára og eldri. Erlent 27. apríl 2021 09:35
„Leyfið líkunum að hrannast upp í þúsundatali!“ Boris Johnson, forsætisráðherra Breta, sætir nú auknum þrýstingi eftir að breskir miðlar greindu frá því í gær að hann hefði sagt að hann vildi frekar sjá þúsundir líka hrannast upp en að grípa aftur til harðra sóttvarnaðgerða. Erlent 27. apríl 2021 07:37
Bólusettum Bandaríkjamönnum hleypt í frí til Evrópu á næstunni Bólusettir Bandaríkjamenn munu geta heimsótt aðildarríki Evrópusambandsins í sumar. Forseti framkvæmdaráðs ESB tilkynnti í gær að sambandið myndi líklega breyta stefnu sinni eftir viðræður við ráðamenn í Washington um fyrirkomulag svokallaðra bólusetningar-vegabréfa. Viðskipti erlent 26. apríl 2021 09:20
Segja faraldrinum lokið í Bretlandi en staðan aldrei verri á Indlandi Þriðja daginn í röð var slegið vafasamt met í fjölda dauðsfalla af völdum covid-19 á Indlandi. Á sama tíma hafa sérfræðingar lýst því yfir að faraldrinum sé lokið á Bretlandi. Erlent 24. apríl 2021 13:01
Giggs ákærður fyrir árás á tvær konur Ryan Giggs, landsliðsþjálfari Wales í fótbolta og fyrrverandi leikmaður Manchester United, hefur verið ákærður fyrir að ráðast á tvær konur 1. nóvember síðastliðinn. Fótbolti 23. apríl 2021 15:52
Að minnsta kosti tveir heimiliskettir á Bretlandseyjum hafa smitast af eigendum sínum Rannsakendur á Bretlandseyjum hafa fundið tvö tilvik þar sem eigendur smituðu kettina sína af SARS-CoV-2. Í báðum tilvikum voru eigendurnir með einkenni Covid-19 þegar kettirnir smituðust. Þeir sýndu sömuleiðis einkenni sjúkdómsins. Erlent 23. apríl 2021 13:34
Elísabet þakkar árnaðaróskir vegna afmælis síns og samhug vegna fráfalls Filippusar Starfsmenn Buckingham-hallar hafa birt skilaboð frá Elísabetu drottningu á Twitter, þar sem hún þakkar stuðning og góðvild í kjölfar andláts eiginmans síns, Filippusar prins. Elísabet er 95 ára í dag. Erlent 21. apríl 2021 12:44
Barnabarn Shankly vill fjarlæga styttuna af honum fyrir utan Anfield Barnabarn Bill Shankly vill að styttan af Bill sjálfum verði fjarlægð fyrir utan Anfield eftir nýjustu ákvörðun félagsins. Fótbolti 20. apríl 2021 18:02
Ríkisstjórn Bretlands mun skoða alla möguleika til að koma í veg fyrir ofurdeild Evrópu Boris Johnson, forsætisráðherra Bretlands, segir að ríkisstjórn landsins skoði allar mögulegar leiðir til að koma í veg fyrir stofnun ofurdeildar Evrópu í knattspyrnu. Ef fara þarf með málið fyrir dómstóla þá verður það gert. Fótbolti 20. apríl 2021 12:36
Morrissey reiður út í Simpsons: „Hvar eru lögin sem vernda mig?“ Breski söngvarinn Morrissey sakar aðstandendur bandarísku teiknimyndaþáttanna um Simpson-fjölskylduna um „hatur“ í sinn garð eftir að gert var grín að honum í nýjum þætti. Handritshöfundur þáttarins hefur þó sagt að persónan sem fór fyrir brjóstið á söngvaranum sé ekki eingöngu byggð á honum. Bíó og sjónvarp 20. apríl 2021 11:37
Rauða spjaldið: Vilhjálmur og Boris beita sér gegn Ofurdeildinni Vilhjálmur Bretaprins er meðal þeirra sem hafa tjáð sig um nýja Ofurdeild í knattspyrnu en hann sagði á Twitter að nú riði á að standa vörð um knattspyrnusamfélagið og þau gildi sem það stæði fyrir; samkeppni og sanngirni. Fótbolti 20. apríl 2021 09:04
Leiðtogi Sinn Féin biðst afsökunar á morðinu á Mountbatten lávarði Mary Lou McDonald, leiðtogi Sinn Féin, hefur beðist afsökunar á dauða Mountbatten lávarðs, frænda hertogans af Edinborg. Mountbatten var myrtur af Írska lýðveldishernum (IRA) árið 1979. Erlent 19. apríl 2021 06:47
Tólf knattspyrnufélög hafa staðfest að þau ætli sér að stofna ofurdeild Evrópu Orðrómar dagsins reyndust sannir. Í kvöld var staðfest að tólf lið séu svokallaðir „stofnmeðlimir“ í því sem á að verða ofurdeild Evrópu í knattspyrnu. Fótbolti 18. apríl 2021 23:04
Fyrsta sinn í rúman áratug sem Celtic endar tímabilið án titils Rangers sló erkifjendur sína í Celtic út úr skoska bikarnum í knattspyrnu fyrr í dag. Það þýðir að Celtic endar tímabilið án titils en það hefur ekki gerst síðan árið 2010. Fótbolti 18. apríl 2021 23:00
Drottningin sat ein næst altarinu við jarðarförina Filippus prins, maki Elísabetar Bretadrottningar, var borinn til grafar í dag en athöfnin fór fram í kapellu St. Georgs við Windsorkastala. Fjöldi þeirra sem sóttu jarðarförina var takmarkaður við þrjátíu vegna faraldurs nýju kórónuveirunnar. Erlent 17. apríl 2021 16:06
Filippus prins borinn til grafar Filippus prins, maki Elísabetar Bretadrottningar, var borinn til grafar í dag. Fjöldi þeirra sem sóttu jarðarförina var takmarkaður við þrjátíu vegna faraldurs nýju kórónuveirunnar en sýnt var frá athöfninni í beinni útsendingu. Erlent 17. apríl 2021 11:41
Fjöldi fólks fylgdist með komu fallbyssukerranna Fjöldi fólks fylgdist með því þegar þegar hin konunglega viðhafnarsveit breska hersins kom ríðandi með þrjár fallbyssukerrur í eftirdragi að Windsor-kastala í dag til undirbúnings útfarar Filippusar prins á morgun. Erlent 16. apríl 2021 22:12
Drottningin deilir áður óséðri mynd Elísabet Bretadrottning óskaði eftir því að birta mynd af sér og eiginmanni sínum á aðgangi konungsfjölskyldunnar sem aldrei hefur verið birt áður. Myndin var tekin í Skotlandi árið 2003. Lífið 16. apríl 2021 22:09
Helen McCrory látin Breska leikkonan Helen McCrory er látin 52 ára að aldri. Frá þessu greindi eiginmaður hennar Damian Lewis á Twitter-síðu sinni í dag. McCrory lést eftir baráttu við krabbamein. Erlent 16. apríl 2021 17:18
Drottningin situr ein við útförina Þrjátíu verða viðstödd útför Filippusar prins sem fer fram í kapellu St. Georgs við Windsor-kastala næstkomandi laugardag. Elísabet Bretadrottning, eiginkona Filippusar, mun sitja ein við útförina. Erlent 15. apríl 2021 17:49
Drottningin mætt aftur til starfa Elísabet Bretadrottning sneri aftur til starfa sinna fjórum dögum eftir að Filippus eiginmaður hennar lést. Hinn 94 ára gamla drottning sótti viðburð í gær þar sem æðsti starfsmaður konungsfjölskyldunnar fór á eftirlaun og þar að auki heimsótti hún í dag siglingaklúbb ásamt dóttur sinni. Erlent 14. apríl 2021 15:40
Stærstu kanínu heims rænt í Englandi Lögreglan í Vestur-Mersíu í Englandi leitar nú að stærstu kanínu heims, sem rænt var um helgina. Kanína, sem heitir Daríus, var tekin úr garði eigenda hennar í Worcesterskíri. Erlent 13. apríl 2021 13:00
Þéttsetinn djammbekkur í kjölfar afléttinga Það var mikið um fögnuð og glaum á Englandi í gær þegar veitingastöðum og öldurhúsum var aftur heimilt að taka á móti kúnnum og bera í þá mat og drykk utandyra. Erlent 13. apríl 2021 07:11
Harry kominn til Bretlands og mun dvelja í sóttkví fram að útför Harry Bretaprins er sagður vera kominn til Englands til að sækja útför afa síns. Filippus prins lést 9. apríl síðastliðinn en útför hans mun fara fram í kapellu St. Georgs við Windsor-kastala laugardaginn 17. apríl. Erlent 12. apríl 2021 07:39
Bretar fá að heimsækja krár að nýju Búðir, hárgreiðslustofur, líkamsræktarstöðvar og krár munu opna dyr sínar fyrir gestum í Englandi á morgun. Þetta tilkynnti Boris Johnson, forsætisráðherra, í gær. Hann sagði um stórt skref í átt að „frelsi undan oki takmarkana vegna faraldursins“ að ræða. Erlent 11. apríl 2021 23:12
Saknar pabba síns og þakkar fyrir kveðjurnar Karl Bretaprins ávarpaði í dag bresku þjóðina vegna fráfalls föður hans, Filippusar prins, sem lést í gærmorgun 99 ára að aldri. Hann segir viðbrögðin hreyfa við fjölskyldunni sem sé þakklát öllum þeim sem minnist prinsins. Erlent 10. apríl 2021 17:33
Telja að gagnrýnandi Pútín hafi verið kyrktur Nikolai Glushkov, rússneskur athafnamaður og gagnrýnandi Vladímírs Pútín Rússlandsforseta, er talinn hafa verið kyrktur í London í mars árið 2018. Að mati dánardómstjóra í Bretlandi eru vísbendingar um að morðingi Glushkov hafi reynt að láta dauða hans líta út fyrir að hafa verið sjálfsvíg. Erlent 10. apríl 2021 08:08