Malbika nýtt flughlað á Akureyrarflugvelli Malbikun nýs flughlaðs á Akureyrarflugvelli hófst núna síðdegis og er búist við verkið standi yfir næstu þrjár vikur. Flugvallarstjórinn segir að það muni gjörbreyta aðstöðunni. Innlent 20. júní 2023 22:50
Ölvaður flugmaður handtekinn í Skotlandi Flugmaður sem átti að fljúga vél flugfélagsins Delta frá Edinborg í Skotlandi til bandarísku borgarinnar New York var handtekinn vegna gruns um að vera ölvaður. Fresta þurfti fluginu þar sem flugmaðurinn var handtekinn þegar rúmur hálftími var í flugtak. Erlent 20. júní 2023 22:42
Reiknað með mikilli sölu á flugvélum í París Vikulöng flugsýning hófst í París í dag í fyrsta sinn frá því kórónuveirufaraldurinn skall á. Reiknað er með að gengið verði frá fjölda samninga um kaup og sölu á flugvélum á sýningunni fyrir stórar upphæðir. Erlent 19. júní 2023 19:31
Segir Icelandair hvorki bótaskylt né ábyrgt fyrir árekstrinum Flugrekstrarstjóri segir halla á Icelandair í skýrslu um árekstur sem flugvél félagsins lenti í á Heathrow í fyrra. Óskýru verklagi flugvallarins og samskiptaleysi milli starfsmanna hans sé um að sakast. Korean Air sé bótaskylt í málinu af því flugvél Icelandair var kyrrstæð. Innlent 16. júní 2023 23:59
Reykspúandi flugsveit þaut yfir viðmælendur í beinni Árlegur flugdagur fer fram á Akureyrarflugvelli á morgun, sautjánda júní. Einkaflugmenn hituðu upp með flughátíð á Melgerðismelum í Eyjafirði. Innlent 16. júní 2023 22:42
Flugstjóri Icelandair fylgdi ekki leiðbeiningum Flugvél Icelandair hafði ekki verið lagt almennilega í stæði á Heathrow flugvelli í Bretlandi þegar vængur flugvélar Korean air rakst í hliðarstýri á stéli flugvélarinnar. Í skýrslu rannsóknarnefndar samgönguslysa í Bretlandi segir að skortur á leiðsögn á flugvellinum vegna manneklu hafi einnig átt þátt í óhappinu. Innlent 16. júní 2023 11:01
Jómfrúin opnar dyr sínar í Leifsstöð Veitingastaðurinn Jómfrúin hefur opnað dyr sínar á Keflavíkurflugvelli. Jakob Einar Jakobsson, eigandi Jómfrúarinnar, segir markmiðið vera að fanga sömu stemningu og ríkt hefur á Lækjargötunni í áratugi. Viðskipti innlent 15. júní 2023 18:49
Áætlanir um fjórtán ný göng með gjaldtöku og uppbyggingu varaflugvalla Tæplega þúsund milljarðar fara í uppbyggingu samgöngumannvirkja á næstu fimmtán árum samkvæmt samgönguáætlun sem innviðaráðherra kynnti í dag. Lokið verði við uppbyggingu varaflugvalla fyrir alþjóðaflugið og áætlun lögð fram um gerð allt að fjórtán jarðganga sem öll verði með gjaldtöku ásamt eldri göngum. Innlent 13. júní 2023 20:05
Verið undirbúin fyrir flugtak Það er fagnaðarefni að eitt af þeim málum sem varð að lögum á Alþingi Íslendinga í síðustu viku hafi verið frumvarp Sigurðar Inga Jóhannssonar innviðaráðherra um varaflugvallagjald. Skoðun 13. júní 2023 14:00
909 milljarðar í samgöngur og einbreiðum brúm á þjóðvegi 1 útrýmt Tillaga Sigurðar Inga Jóhannssonar innviðaráðherra að samgönguáætlun til næsti fimmtán ára gerir ráð fyrir að 909 milljarðar króna verði varið í samgöngur á tímabilinu. Auknu fjármagni verði varið í innanlandsflugvelli og einbreiðum brúm á hringveginum útrýmt. Innlent 13. júní 2023 13:20
Fjögur börn fundust eftir fjörutíu daga í frumskóginum Fjögur börn sem hafa vafrað allslaus í Amazon-regnkóginum í Kólumbíu undanfarna fjörutíu daga eftir flugslys fundust heil á húfi í gær. Erlent 10. júní 2023 08:43
Farþegar reiðir leiguflugvélum Icelandair Upp á síðkastið hafa nokkrar flugferðir Icelandair verið með óhefðbundnu sniði en félagið leigir nú flota frá búlgarska flugfélaginu Fly2Sky auk þess sem Dash8 Q400 vél úr innanlandsflugi var bætt við flotann. Flugvélarnar sem um ræðir eru að sögn ósáttra farþega minni, háværari og ekki er boðið upp á skemmtikerfi á sætisbökum, sem er eitt aðaleinkenni Icelandair flugvéla. Neytendur 9. júní 2023 12:16
Icelandair flýgur til Færeyja Icelandair tilkynnti Færeyjar sem nýjan áfangastað í dag. Flogið verður fimm til sex sinnum í viku með morgunflugi út október á næsta ári. Viðskipti innlent 8. júní 2023 12:52
Farin af landi eftir að hafa verið hótað endurkomubanni Albanskur karlmaður á þrítugsaldri, Elio Hasani, sem meinuð var landganga í vikunni og haldið í flugstöðinni, ásamt fimmtán ára frænku sinni, í um þrjátíu klukkutíma hefur nú yfirgefið landið sjálfur. Innlent 8. júní 2023 12:42
Vilja allir fljúga? Með árunum finnst mér millilandaflug farið að verða minna og minna spennandi. Öryggisleitin á flugstöðinni er niðurlægjandi. Hnútur í maganum í flugtaki. Innilokunarkenndin í flugvélinni þrúgandi. Það fer hrollur um mig þegar ég hugsa um farþegaþotu sem upphitaðan þrýstiklefa á næstum hljóðhraða. Ef eitthvað klikkar, þá er maður dauður. Og nú er flugviskubitið verulega farið að naga mig. Skoðun 8. júní 2023 08:01
Misstu meðvitund skömmu eftir flugtak Flugmaður og farþegar einkaflugvélar sem brotlenti í Virginíu í Bandaríkjunum á dögunum misstu líklega meðvitund skömmu eftir flugtak. Einungis fimmtán mínútum eftir að flugvélinni var flogið af stað, svaraði flugmaður hennar ekki fyrirspurnum flugumferðarstjóra. Erlent 7. júní 2023 09:56
Stærsti mánuður Play frá upphafi Farþegar Play voru 128.894 í maí síðastliðnum. Um er að ræða 26 prósent fjölgun milli mánaða og metfjölda hjá flugfélaginu unga. Viðskipti innlent 7. júní 2023 09:46
Farþegum fjölgaði um sextán prósent milli ára Heildarfjöldi farþega Icelandair var um 366 þúsund í maí, sextán prósent fleiri en í maí í fyrra þegar farþegar voru 316 þúsund. Sætaframboð í maí jókst um ellefu prósent miðað við fyrra ár. Viðskipti innlent 6. júní 2023 17:47
Munu fljúga daglega til Amsterdam næsta vetur Flugfélagið Play hyggst fljúga daglega til Schiphol-flugvallar í Amsterdam næsta vetur. Félagið fór í sitt fyrsta áætlunarflug til hollensku höfuðborgarinnar í gær. Viðskipti innlent 6. júní 2023 10:45
Rangfærslur um skýrslu vegna Nýja Skerjafjarðar Vegna sífelldra rangfærslna um að það sé í lagi að ný byggð rísi í Skerjafirði vegna þess að „mótvægisaðgerðir“ muni bjarga málunum er rétt að leiðrétta þann misskilning sem borgarfulltrúar meirihlutans, borgarstjóri og aðrir vilja halda fram, hvort sem það er gert viljandi í áróðursskyni eða vegna vanþekkingar á málinu. Skoðun 5. júní 2023 13:00
Orrustuþotum flogið til móts við stjórnlausa flugvél yfir Washington DC Engin lifði af þegar einkaflugvél brotlenti í Virginíu í Bandaríkjunum í gær. Áður en hún brotlenti var henni flogið beint yfir höfuðborg Bandaríkjanna og svaraði flugmaður hennar ekki fyrirspurnum og virðist flugvélin hafa verið stjórnlaus. Því voru orrustuþotur sendar til móts við hana. Erlent 5. júní 2023 10:24
Icelandair hefur samstarf við Turkish Airlines Icelandair og Turkish Airlines undirrituðu í morgun samstarfssamning sem felst í því flugfélögin munu geta boðið viðskiptavinum sínum tengingar á milli leiðakerfa sinna og þannig aukið úrval tengimöguleika. Viðskipti innlent 4. júní 2023 11:32
Flugsýning einn af stærstu menningarviðburðum borgarinnar Þúsundir manna sóttu flugsýningu á Reykjavíkurflugvelli í dag þar sem sjá mátti þverskurð íslenska fluggeirans, allt frá litlum drónum upp í stórar farþegaþotur. Margir tóku andköf þegar djarfir listflugmenn veltu sér um háloftin. Innlent 3. júní 2023 22:18
Ný byggð og flugvöllurinn Um Reykjavíkurflugvöll hefur verið tekist á frá því áður en ég fæddist. Sum hafa verið á móti veru hans í Vatnsmýrinni, önnur ekki talið neinn annan stað koma til greina. Skoðanirnar hafa meðal annars markast af því hvar fólk býr og myndað gjá milli höfuðborgar og landsbyggðar sem og ríki og borgar. Sá skotgrafahernaður sem hefur verið háður hefur ekki verið neinu til framdráttar heldur skapað sundrung og ósætti. Skoðun 3. júní 2023 07:00
Fluttu stigabíl frá Keflavík fyrir Airbus-þotu í Reykjavík Sérstakur stigabíll fyrir stórar flugvélar var fluttur til Reykjavíkur frá Keflavíkurflugvelli í gærkvöldi. Flytja þurfti hann á trukki þar sem hann er ekki á númerum. Ástæðan fyrir þessum óvenjulega flutningi er sú að á Reykjavíkurflugvelli er aðeins til einn nægilega stór stigi og talin var þörf á tveimur stórum stigum vegna flugsýningarinnar sem þar fer fram í dag, laugardag. Innlent 2. júní 2023 22:52
Stækkun flotans lyftir Play upp úr botnsæti listans yfir framlegð í flugi Birgir Jónsson, forstjóri Play, segir að framvegis muni flugfélagið ekki verma botnsætið á listanum yfir rekstrarframlegð á fyrsta ársfjórðungi. Eftir að hafa stækkað flotann upp í tíu vélar sé stærðarhagkvæmnin farin að skila sér í eðlilegra jafnvægi milli kostnaðar og tekna. Innherji 2. júní 2023 08:58
Boða til stærstu flugsýningar ársins á Reykjavíkurflugvelli „Stærsta flugsýning ársins“ segir Flugmálafélag Íslands í kynningu flugsýningar sem haldin verður á Reykjavíkurflugvelli á morgun, laugardag, 3. júní. Hátt á áttunda tug flugvéla og flygilda verða til sýnis og hátt á þriðja tug flugatriða þar sem lögð verður áhersla á að sýna breidd og drifkraft íslensks flugsamfélags, að sögn Matthíasar Sveinbjörnssonar, forseta Flugmálafélagsins. Innlent 1. júní 2023 23:40
Samkeppni um innritun farangurs í Keflavík Nýtt íslenskt fyrirtæki að nafni BagBee tekur nú að sér innrita farangur fyrir fólk á Keflavíkurflugvelli. Þjónusta sem þessi hefur verið að ryðja sér til rúms í Evrópu en um er að ræða annað fyrirtækið hér á landi sem býður upp á hana. Viðskipti innlent 1. júní 2023 14:09
Segir Play með yngsta flugflota í Evrópu með nýjustu þotunni Flugfélagið Play fékk í dag sína tíundu þotu, beint úr verksmiðju Airbus í Hamborg. Forstjóri Play segir félagið núna með yngsta flugflota Evrópu. Viðskipti innlent 31. maí 2023 23:03
Breytt neyslumynstur gæti dempað áhrif verðbólgu á ferðamennsku Breytingar á neyslumynstur fólks eftir heimsfaraldurinn gæti mögulega dregið úr þeim neikvæðu áhrifum sem mikil verðbólga mun hafa á eftirspurn í flugiðnaðinum, að sögn Boga Nils Bogasonar, forstjóra Icelandair. Rekstrarafkoma íslensku flugfélaganna á fyrsta ársfjórðungi var sýnu verst í samanburði við nærri sextíu flugfélög á heimsvísu. Innherji 31. maí 2023 11:54