Tarantino segir Gurru grís vera bestu útflutningsvöru Breta Quentin Tarantino, kvikmyndaleikstjóri, hefur horft mikið á teiknimyndaþættina Gurru grís með tveggja ára syni sínum, Leo. Tarantino nýtur þáttanna ekki síður en sonurinn og sagði nýlega að Gurra grís væri „besta útflutningsvara Breta á þessum áratugi.“ Bíó og sjónvarp 8. júlí 2022 12:56
Barnaníðingsmælirinn ekki meiðyrði Sacha Baron Cohen var í gær sýknaður fyrir dómi í Manhattan í máli sem Roy Moore, fyrrverandi dómari í Alabama, höfðaði gegn honum. Moore vildi meina að Cohen hafi látið hann líta út fyrir að vera barnaníðing í þætti sínum „Who Is America?“. Erlent 8. júlí 2022 11:17
Stórleikarinn James Caan er látinn Stórleikarinn James Caan er látinn. Fjölskylda hans tilkynnti þetta á samfélagsmiðlum um klukkan fimm í dag, að íslenskum tíma, en hann var 82 ára gamall og átti fimm börn, þar á meðal leikarann Scott Caan. Lífið 7. júlí 2022 17:26
Var látin vigta sig í beinni Victoria Beckham rifjar upp slæma lífsreynslu þegar hún var látin vigta sig í beinni útsendingu skömmu eftir að hafa eignast frumburðinn sinn Brooklyn í viðtali við Vogue Ástralíu. Lífið 6. júlí 2022 13:31
Fræg pör sem giftu sig 4. júlí Í gær var þjóðhátíðardagur Bandaríkjanna, hinn 4.júlí en hann er einnig brúðkaupsdagur margra frægra para sem völdu daginn til þess að gera að sínum. Lífið 5. júlí 2022 15:30
Væntanlegt í bíó: Af hundum, köttum, ljónum og Baltasari Nú er genginn í garð sá árstími sem Hollywood gefur út sínar dýrustu myndir og væntir aðsóknar í takt við reikninginn. Nú þegar hafa nýjar Top Gun og Jurassic World myndir litið dagsins ljós og á morgun bætist Thor: Love and Thunder í hópinn. Það er svo í ágúst sem fullorðnir fá loks eitthvað fyrir sinn snúð þegar myndir á við Bullet Train, Beast og Nope koma út. Bíó og sjónvarp 5. júlí 2022 14:30
„Ég myndi vilja eignast fleiri börn“ Söngkonan Adele sagði að hún væri með áhuga á því að eignast fleiri börn í framtíðinni, ef það er í boði, í viðtali við BBC. Fyrir á hún rúmlega níu ára son, Angelo, með fyrrverandi eiginmanni sínum. Lífið 5. júlí 2022 12:20
Klara í The Kardashians Söngkonan Klara Elias hefur verið að gera öfluga hluti í tónlistarheiminum að undanförnu. Ásamt því að syngja Þjóðhátíðarlagið í ár og koma fram víða í sumar má heyra rödd Klöru syngja í nýjustu Kardashian raunveruleikaþáttunum. Blaðamaður fékk að taka púlsinn á Klöru og forvitnast um samstarfið við eina frægustu fjölskyldu í heimi. Tónlist 5. júlí 2022 11:00
Lindsay Lohan gifti sig Lindsay Lohan hefur gengið í það heilaga með fjármálamanninum Bader Shammas eftir að hafa tilkynnt um trúlofun þeirra í nóvember á síðasta ári. Lífið 4. júlí 2022 16:01
Hollywood fréttir: Hata allir Chris Pratt? Sjónvarpsframleiðandinn Amy Berg velti því upp á Twitter árið 2020 hver væri óvinsælasti leikarinn með fornafnið Chris: Hemsworth, Evans, Pine eða Pratt. Pratt var þar níddur af miklum meirihluta svarenda. Síðan þá hefur hann þurft að þola að vera sagður óvinsælasti leikarinn með nafnið Chris í Hollywood. Bíó og sjónvarp 3. júlí 2022 10:14
Joe Turkel er látinn Bandaríski leikarinn Joe Turkel er látinn 94 ára að aldri. Turkel er hvað þekktastur fyrir leik sinn í kvikmyndunum The Shining og Blade Runner. Lífið 2. júlí 2022 16:58
Lýsir aðdraganda þess að Ezra Miller tók hana hálstaki á Prikinu Konan sem bandaríski leikarinn Ezra Miller tók hálstaki á Prikinu í apríl 2020 hefur tjáð sig um atvikið og aðdraganda þess. Innlent 1. júlí 2022 08:11
Eignum Boseman skipt jafnt milli ekkju hans og foreldra Þegar leikarinn Chadwick Boseman lést fyrir tveimur árum hafði ekki verið gerð erfðaskrá og því ekki ljóst hvernig ætti að skipta eignum hans. Nú hefur verið ákveðið að eftirlátnar eignir Boseman, um 2,5 milljónir bandaríkjadala, muni skiptast jafnt á milli foreldra Boseman og ekkju hans. Lífið 30. júní 2022 17:20
Tom Hiddleston og Zawe Ashton eiga von á barni Leikarinn Tom Hiddleston og leikkonan Zawe Ashton eru að verða foreldrar. Þetta er þeirra fyrsta barn saman en parið trúlofaði sig í mars á þessu ári. Lífið 30. júní 2022 15:01
Cameron Diaz snýr aftur á skjáinn eftir langt hlé Bandaríska leikkonan Cameron Diaz mun snúa aftur til vinnu í Hollywood eftir átta ára hlé. Hún mun leika aðalhlutverkið í kvikmyndinni Back in Action, sem Netflix framleiðir. Bíó og sjónvarp 30. júní 2022 07:49
Tökur hefjist í fyrsta lagi eftir tvö ár Aðdáendur ofurnjósnarans James Bond þurfa að sætta sig við dágóða bið eftir næstu mynd samkvæmt upplýsingum frá Barböru Broccoli, framleiðanda myndanna. Framleiðsla myndarinnar muni ekki hefjast fyrr en í fyrsta lagi eftir tvö ár. Bíó og sjónvarp 29. júní 2022 22:48
Travis Barker með brisbólgu Travis Barker, trommari hljómsveitarinnar Blink-182 og nýbakaður eiginmaður Kourtney Kardashian, liggur nú inni á spítala með brisbólgu. Lífið 29. júní 2022 21:11
Gaman að kyssa vinkonu sína Fyrirsætan Cara Delevingne segir það hafa verið gaman að leika ástkonu vinkonu sinnar Selenu Gomez í þáttunum Only Murders in the Building. „Er einhver í heiminum sem myndi ekki vilja kyssa Selenu?“ Spyr hún einnig í viðtali við E!News. Lífið 29. júní 2022 16:30
Eltihrellir rauf nálgunarbann og braust inn á heimili Ariönu Grande Aharon Brown sem áður hefur verið handtekinn fyrir að sitja um Ariönu Grande braust inn á heimili hennar á 29 ára afmælisdegi söngkonunnar. Lífið 29. júní 2022 10:37
Rifja upp heilræði Russell Crowe um íslenska veðrið Heilræði ástralska leikarans Russell Crowe til bandaríska leikarans um íslenska veðrið hafa verið rifjuð upp á YouTube-síðu spjallþáttastjórnandans Conan O'Brien. Lífið 29. júní 2022 07:53
Travis Barker fluttur á sjúkrahús og dóttir hans biður fólk að biðja fyrir honum Tónlistarmaðurinn Travis Barker var fluttur á sjúkrahús í gær og var eiginkona hans, Kourtney Kardashian honum við hlið. Ekki er vitað hvað hrjáir Barker en dóttir hans bað fólk um að biðja fyrir fjölskyldunni. Lífið 29. júní 2022 07:25
Rútína Hailey Bieber: „Ég á erfitt með að fikta ekki í bólum“ Fyrirsætan Hailey Rhode Bieber deilir húð- og förðunar rútínunni sinni með Vogue. Hún gaf sjálf nýlega út snyrtivörumerkið Rhode sem hún notar í myndbandinu og segir vörurnar vera nærandi og gefa ljóma. Lífið 27. júní 2022 13:31
Baldwin ræðir við Allen í beinni á Instagram Leikarinn Alec Baldwin hefur greint frá því að hann muni taka viðtal við leikstjórann Woody Allen á morgun, sem verður sýnt í beinni útsendingu á Instagram. Erlent 27. júní 2022 11:17
„Íslandi eða Mars?“: Bachelor stjarnan Michelle Young er á Íslandi eftir sambandsslitin Bachelor stjarnan Michelle Young, sem nýlega sleit trúlofun sinni við Nayte Olukoya eftir að hafa sagt já í raunveruleikaþáttunum, er komin til landsins. Michelle hefur birt myndir frá ferðinni á Instagram miðli sínum og virðist óviss hvort um Ísland eða Mars sé að ræða. Lífið 24. júní 2022 12:01
Kendall Jenner og NBA stjarnan Devin Booker eru hætt saman Fyrirsætan Kendall Jenner og körfuboltamaðurinn Devin Booker eru hætt saman eftir tveggja ára samband samkvæmt Entertainment Tonight, allavegana í bili þar sem talið er að þau gætu náð aftur saman. Lífið 23. júní 2022 15:30
Hollywood fréttir: Brad Pitt á síðustu metrunum sem leikari Brad Pitt virðist í fullu fjöru, hann vann Óskar fyrir frammistöðu sína í Once Upon a Time in Hollywood árið 2020 og er í aðalhlutverki í einni af stærri myndum sumarsins, en segir þó hilla undir lok ferilsins. Bíó og sjónvarp 23. júní 2022 14:30
Ástarsaga Meryl Streep er betri en í bíómyndunum Hin ofurglæsilega leikkona Meryl Streep fagnaði 73 ára afmæli sínu í gær, þann 22. júní. Oft hefur verið talað um Meryl sem bestu leikkonu sinnar kynslóðar en hún hefur ekki síður vakið mikla aðdáun fólks fyrir sterkan og einkar sjarmerandi persónuleika. Lífið 23. júní 2022 14:10
Rebel Wilson er á Íslandi Leikkonan Rebel Wilson er stödd á Íslandi ásamt kærustu sinni Ramonu Agruma. Hún birti mynd af sér þar sem hún var í miðnætursundi og af parinu í þyrluferð. Miðað við textann sem fylgir myndunum þykir þeim heldur kalt á landinu. Lífið 23. júní 2022 11:49
Hailey Bieber lögsótt vegna húðvörumerkisins Rhode Hailey Bieber hefur verið kærð af tískufyrirtæki fyrir notkun á skrásettu vörumerki þess, Rhode en nýtt húðvörumerki Bieber ber einnig það nafn. Tískufyrirtækið er töluvert eldra en það var stofnað árið 2013. Lífið 22. júní 2022 23:52
Rupert Murdoch og Jerry Hall skilja Rupert Murdoch og eiginkona hans Jerry Hall, skilja eftir sex ára hjónaband. Murdoch er þekktur jöfur í miðlun en Hall er þekkt fyrir störf sín sem fyrirsæta og leikkona. Þetta er fjórða hjónaband Murdoch. Lífið 22. júní 2022 22:02