Ísraelskar borgir gætu verið á meðal skotmarka Írans Fyrrverandi leiðtogi íranska byltingarvarðarins, segir að ísraelsku borgirnar Tel Aviv og Haifa gætu orðið skotmörk hefndarárása íranskra árása, í hefndarskyni fyrir vígið á Qassem Soleimani, háttsettum írönskum hershöfðingja sem féll í drónaárás Bandaríkjamanna í Írak. Erlent 5. janúar 2020 17:27
Írakska þingið vill erlenda hermenn burt Íraskir þingmenn samþykktu í dag ályktun þess efnis að kallað verði eftir því að erlendir hermenn sem dvalið hafa í landinu, yfirgefi Írak sem fyrst. Erlent 5. janúar 2020 15:45
Segir ekki miklar líkur á stórfelldum hernaðaraðgerðum eftir dauða Solemani Donald Trump Bandaríkjaforseti segir Bandaríkjaher hafa fimmtíu og tvö skotmörk í sigtinu í Íran ef stjórnvöld þar láti verða af hótunum sínum um að hefna dauða Qasim Solemani. Innlent 5. janúar 2020 15:30
Segir að bandarískar herstöðvar og hermenn séu nú réttlætanleg skotmörk Hassan Nasrallah, leiðtogi líbönsku Hezbollah-samtakanna, segir að bandarískar herstöðvar, herskip og hermenn séu réttlætanleg skotmörk eftir að háttsetti íranski hershöfðinginn Quassem Soleimani féll í drónaárás Bandaríkjamanna aðfaranótt föstudags. Erlent 5. janúar 2020 14:39
Bresk herskip fylgja breskum skipum í Persaflóa Skip breska sjóhersins hafa verið kölluð til viðveru í Persaflóa vegna ólgunnar sem myndast hefur eftir að Bandaríski herinn réð Íranska hershöfðingjann Qasem Soleimani af dögum. Erlent 5. janúar 2020 10:32
Ráðist „hratt og harkalega“ á Íran ef Bandaríkin verða fyrir árás Donald Trump Bandaríkjaforseti hefur varað við því að Bandaríkin hafi augun á 52 "skotmörkum“ í Íran og muni aðhafast "mjög hratt og mjög harkalega“ ef stjórnvöld í Íran komi til með að ráðast á Bandaríkjamenn eða annað sem gæti talist Bandaríkjamönnum mikilvægt. Erlent 4. janúar 2020 23:45
Benda Írökum á að halda sig frá bandarískum herstöðvum Leiðtogar Kataeb Hezbollah, harðlínusveitar írakska þjóðvarðarliðsins, hafa varað írakskar hersveitir við því að dvelja of nálægt bandarískum herstöðvum í Írak, frá og með eftirmiðdegi morgundagsins. Erlent 4. janúar 2020 22:45
Flugskeyti lenti nálægt sendiráði Bandaríkjanna í Írak Ekki liggur fyrir hvaðan skeytið kom. Erlent 4. janúar 2020 19:21
Þúsundir syrgja Soleimani: „Dauði yfir Ameríku“ Þúsundir syrgðu í dag íranska hershöfðingjann Quassem Soleimani, sem féll í drónaárás sem fyrirskipuð var af Donald Trump Bandaríkjaforseta aðfaranótt föstudags. Erlent 4. janúar 2020 18:31
Önnur loftárás gerð innan við sólarhring eftir að Soleimani var drepinn Önnur loftárás var gerð í Írak í gær, innan við sólarhring eftir að háttsetti íranski hershöfðinginn Qasem Soleimani lést í loftárás Bandaríkjamanna í Bagdad. Fimm eru sagðir hafa látist í árásinni. Erlent 4. janúar 2020 10:40
Katrín segir leiðtoga heimsins þurfa að sýna ábyrgð Katrín Jakobsdóttir segir að koma þurfi í veg fyrir frekari stigmögnun spennu við Persaflóa. Erlent 4. janúar 2020 00:04
Segir að árásin hafi verið gerð til að koma í veg fyrir stríð Donald Trump forseti Bandaríkjanna hélt blaðamannafund í kvöld vegna drónaárásarinnar. Erlent 3. janúar 2020 22:00
Allt á suðupunkti vegna árásar næturinnar Stjórnvöld í Íran lofa því að hefna fyrir morðið á hátt settum hershöfðingja. Bandaríkjamenn gerðu drónaárás á bílalest hans í Írak í nótt og er allt á suðupunkti á milli ríkjanna tveggja. Erlent 3. janúar 2020 19:00
Segjast hafa drepið Soleimani til að stöðva yfirvofandi árás Utanríkisráðherra Bandaríkjanna segir morðið á hátt settum Írana hafa verið nauðsynlegt til að koma í veg fyrir árás. Trump forseti segir að hann hefði átt að drepa fyrir löngu. Erlent 3. janúar 2020 15:45
Hersveitir í Írak heita einnig hefndum fyrir fallinn foringja Morð Bandaríkjahers á leiðtoga sérsveitar íranska byltingarvarðarins og leiðtoga írakskrar hersveitar hliðhollri Íran hefur vakið fár í báðum löndunum. Erlent 3. janúar 2020 12:51
Engin áhrif á bensínverð hér á landi Engin hreyfing hefur orðið á bensínverði hér á landi í kjölfar þess að Bandaríkin réðu einn valdamesta mann í Íran af dögum í nótt. Viðskipti innlent 3. janúar 2020 12:00
Óttast hættulegri heim eftir morðið á Soleimani Bandaríkjaher felldi einn æðsta yfirmann hermála í Íran. Stjórnvöld í Teheran hafa heitið grimmilegum hefndum. Erlent 3. janúar 2020 11:30
Bandaríkin réðu einn valdamesta mann Írans af dögum Bandaríkjamenn réðu einn háttsettasta mann íranska byltingarvarðarins af dögum í Bagdad í Írak í nótt. Erlent 3. janúar 2020 06:42
Boðar frekari árásir á sveitir Íran Yfirvöld Íran og vopnaðir hópar sem ríkið styður hyggja mögulega á fleiri árásir í Mið-Austurlöndum sem beinast gegn Bandaríkjunum. Forsvarsmenn herafla Bandaríkjanna eru þó tilbúnir til fyrirbyggjandi árása samkvæmt varnarmálaráðherra ríkisins. Erlent 2. janúar 2020 21:30
Stöðvuðu háþróaðan eldflaugabúnað á leið til Jemen Áhöfn bandarísks herskips lagði nýverið hald á búnað sem talinn er vera úr eldflaugum frá Íran. Erlent 4. desember 2019 22:05
Greindi loks frá dauða mótmælenda Ríkisútvarpið í Íran sagði í morgun loks frá því að öryggisveitir hafi skotið mótmælendur til bana í landinu síðustu vikurnar. Erlent 3. desember 2019 07:30
Írakskir mótmlendur brenndu niður íranska ræðismannsskrifstofu Írakskir mótmælendur kveiktu í íranskri ræðismannsskrifstofu í dag en sex mótmælendur voru myrtir af öryggissveitum sem skutu mótmælendur á færi. Erlent 27. nóvember 2019 21:48
Kveiktu í 731 bankaútibúi og 140 opinberum byggingum Innanríkisráðherrann segir að um 200 þúsund manns hafi tekið þátt í uppþotunum sem blossuðu upp eftir að yfirvöld ákváðu að hækka eldsneytisverð verulega. Erlent 27. nóvember 2019 07:31
Vildu kenna Bandaríkjunum lexíu Forsvarsmenn herafla Írans vildu refsa Bandaríkjunum fyrir að slíta sig frá kjarnorkusamkomulaginu svokallaða og beita Íran viðskiptaþvingunum á nýjan leik og réðust því á olíuvinnslu Sádi-Arabíu. Erlent 26. nóvember 2019 11:30
Óttast fjölda dauðsfalla í mótmælunum í Íran Sameinuðu þjóðirnar óttast að fjölmargir séu dánir eftir umfangsmikil mótmæli þar í landi. Erlent 19. nóvember 2019 16:18
Lést eftir MMA-bardaga Írönsk kona lést eftir MMA-bardaga í Southampton á Englandi. Sport 19. nóvember 2019 11:30
Lokað fyrir netið í Íran Mikil mótmæli hafa staðið yfir í Íran frá því á fimmtudag þegar verð á olíu var hækkað um allt að 300 prósent. Erlent 19. nóvember 2019 06:00
Mótmælt um allt Íran eftir að eldsneytisverð hækkaði um 50 prósent Mótmæli hafa brotist út víða í Íran eftir að ríkisstjórnin þar í landi lýsti því yfir að eldsneyti yrði skammtað og að verð þess yrði hækkað. Erlent 16. nóvember 2019 12:14
Úranagnir fundust á leynilegum stað í Íran Alþjóðlega kjarnorkustofnunin (IAEA) fann úraneindir í starfsstöð í Íran sem hafði ekki verið tilkynnt af írönskum yfirvöldum. Erlent 11. nóvember 2019 21:10
Fimm látnir eftir skjálfta í Íran Að minnsta kosti fimm eru látnir og 120 slösuðust eftir jarðskjálfta sem varð í Íran í í nótt. Erlent 8. nóvember 2019 09:00