Tilnefning Ketanji Brown Jackson til hæstaréttar staðfest Öldungadeild Bandaríkjaþings staðfesti rétt í þessu tilnefningu Ketanji Brown Jackson til hæstaréttar þar í landi. Atkvæðagreiðslan fór að mestu eftir flokkslínum en 53 þingmenn greiddu atkvæði með tilnefningunni en 47 gegn henni. Erlent 7. apríl 2022 18:38
Kallar Pútín stríðsglæpamann en telur ekki að um þjóðarmorð sé að ræða Joe Biden Bandaríkjaforseti hefur farið fram á það að Vladímír Pútín Rússlandsforseti verði sóttur til saka fyrir stríðsglæpi sína í Úkraínu og fordæmdi fjöldamorðið í bænum Bucha. Forseti Úkraínu sakar Rússa um þjóðarmorð í bænum en Biden tekur ekki undir það. Erlent 4. apríl 2022 15:47
Olíuverð lækkaði töluvert við opnun markaða Olíuverð lækkaði töluvert við opnun markaða í Asíu í nótt. Þannig lækkaði Brent-hráolían um tæp fimm prósent og West Texas hráolíuvísitalan um tæp sex prósent. Viðskipti erlent 31. mars 2022 07:07
Tæplega átta tíma gat á gögnum Hvíta hússins frá 6. janúar Upplýsingar um símtöl Donalds Trump, fyrrverandi forseta, á tæplega átta klukkustunda tímabili vantar inn í gögn Hvíta hússins frá deginum þegar stuðningsmenn hans ruddu sér leið inn í þinghús Bandaríkjanna. Þingnefnd sem hefur árásina á þinghúsið til rannsóknar kannar nú hvort Trump hafi notað aðrar og óformlegar leiðir til að ræða við starfsmenn sína og stuðningsmenn. Erlent 30. mars 2022 10:49
Bandaríkin vara við að lesa of mikið í tilfæringar rússnesks herliðs frá Kiev Joe Biden, forseti Bandaríkjanna, og embættismenn í stjórn hans segja of snemmt að leggja mat á fullyrðingar rússneskra yfirvalda um að verið sé að draga rússneska hermenn frá Kiev, höfuðborg Úkraínu. Erlent 29. mars 2022 23:31
Tekur ummælin um Pútín ekki til baka Joe Biden, forseti Bandaríkjanna, segist ekki ætla að taka ummæli hans um að Vladímir Pútín Rússlandsforseti geti ekki verið áfram við völd, til baka. Biden segir þó að orð hans feli ekki í sér stefnubreytingu af hálfu bandarískra yfirvalda. Erlent 28. mars 2022 20:30
„Í Guðs bænum, þessi maður getur ekki verið lengur við völd“ Joe Biden Bandaríkjaforseti sagði í dag að Vladimír Pútín, forseti Rússlands, „geti ekki verið áfram við völd.“ Ummælin hafa vakið hörð viðbrögð. Erlent 26. mars 2022 20:32
Biden segir Pútín „kominn út í horn“ og hann íhugi notkun efnavopna Falskar ásakanir Rússa um að Úkraína hafi verið að þróa og búi að lífefna- og efnavopnum er „augljóst merki“ um að Vladimir Pútín Rússlandsforseti hyggist beita slíkum vopnum. Erlent 22. mars 2022 06:30
Ræddu jafnrétti á Íslandi og forsetinn hringdi í móður Elizu Eliza Reid hitti forsetahjónin Jill og Joe Biden þar sem jafnréttismál voru í brennidepli en forsetinn bauð henni til að mynda upp á svið til að ræða jafnréttismál á viðburði í Hvíta húsinu. Hún segir hjónin hafa verið mjög vingjarnleg en Joe Biden Bandaríkjaforseti hringdi til að mynda í móður Elizu. Innlent 16. mars 2022 21:22
Forsetafrúin fundaði með Joe og Jill Biden Eliza Reid forsetafrú fundaði með Jill Biden, forsetafrú Bandaríkjanna um jafnréttismál í Hvíta húsinu í Washington í dag. Eiginmaður Jill, sjálfur Bandaríkjaforseti, kom einnig til fundarins og ræddi við Elizu. Innlent 15. mars 2022 23:36
Biden segir Pútín hafa hitt ofjarl sinni í úkraínsku þjóðinni Rússar hafa hert mjög loftárásir sínar á borgir víðs vegar um Úkraínu í dag og fullyrða að þeir hafi náð einni þeirra alfarið á sitt vald. Forseti Bandaríkjanna segir Rússa eiga eftir að finna fyrir afleiðingum innrásarinnar á stöðu sína um langa framtíð. Talið er að um tvö þúsund óbreyttir borgarar hafi fallið frá upphafi innrásarinnar í Úkraínu. Erlent 2. mars 2022 19:21
Vildi sannfæra þjóðina um árangur sinn Joe Biden, forseti Bandaríkjanna, hélt sína fyrstu stefnuræðu fyrir báðar deildar Bandaríkjaþings í nótt. Þar hét Biden því að halda aftur af innrás Rússa í Úkraínu, koma böndum á verðbólgu í Bandaríkjunum og kveða niður kórónuveiruna. Erlent 2. mars 2022 08:55
Biden hyggist tilnefnda Ketanji Brown Jackson í hæstarétt Joe Biden Bandaríkjaforseti hyggst tilnefna alríkisdómarann Ketanji Brown Jackson til að taka sæti í Hæstarétti Bandaríkjanna. The New York Times greinir frá þessu og hefur eftir ónefndum heimildarmönnum sem eru sagðir þekkja til málsins. Erlent 25. febrúar 2022 14:30
Segir að alþjóðasamfélagið muni draga Rússa til ábyrgðar Joe Biden Bandaríkjaforseti hefur brugðist við því sem hann kallar „tilefnislausa og óréttlætanlega“ árás rússneskra hersveita á Úkraínu. Hann segir heiminn allan biðja fyrir Úkraínumönnum og standi með þeim. Erlent 24. febrúar 2022 07:08
Bandaríkjamenn slá fund með Rússum út af borðinu Hvíta húsið hefur gefið það út að Joe Biden Bandaríkjaforseti hyggist ekki funda með Vladimír Pútín Rússlandsforseta vegna stöðunnar sem skapast hefur í Úkraínu. Bandaríkjamenn útiloka fund með Rússum nú eftir að Pútín fyrirskipaði innrás í Úkraínu. Erlent 23. febrúar 2022 07:43
Biden kynnir viðskiptaþvinganir gegn Rússlandi Joe Biden Bandaríkjaforseti segir innrás Rússlands inn í Úkraínu hafa hafist í gær þegar Vladímír Pútín viðurkenndi sjálfstæði tveggja héraða innan Úkraínu og fyrirskipaði að hermenn yrðu fluttir þangað til þess að sinna „friðargæslu.“ Erlent 22. febrúar 2022 20:43
Biden fellst á leiðtogafund með Pútín Joe Biden Bandaríkjaforseti hefur í stórum dráttum fallist á leiðtogafund með Vladimír Pútín Rússlandsforseta til að ræða ástandið í Úkraínu. Erlent 21. febrúar 2022 06:57
Sannfærður um að Pútín hafi ákveðið að ráðast inn í Úkraínu Joe Biden Bandaríkjaforseti segir Vladimir Pútín þegar hafa ákveðið að gera frekari innrás í Úkraínu, meðal annars inn í höfuðborgina Kænugarð. Erlent 18. febrúar 2022 23:08
Segja Rússa nær því að gera innrás í Úkraínu Joe Biden, forseti Bandaríkjanna, segir enn líklegt að Rússar ætli sér að ráðast á Úkraínu og að það gæti gerst á næstu dögum. Þá segja Rússar að þeir neyðist til að bregðast við, verði kröfum þeirra ekki svarað, kröfum sem hefur þegar verið hafnað. Erlent 17. febrúar 2022 16:30
Tjáði Pútín að Vesturveldin myndu bregðast við af hörku ef til innrásar kæmi Joe Biden Bandaríkjaforseti ræddi símleiðis við Vladímír Pútín Rússlandsforseta fyrr í dag vegna stöðunnar í Úkraínu en Rússar hafa undanfarið aukið viðbúnað sinn á landamærum Úkraínu og er óttast að þeir hyggi á innrás á næstunni. Erlent 12. febrúar 2022 23:12
Biden hvetur Bandaríkjamenn til að yfirgefa Úkraínu hið fyrsta Joe Biden Bandaríkjaforseti hvetur nú alla Bandaríkjamenn sem staddir eru í Úkraínu til að yfirgefa landið hið snarasta. Erlent 11. febrúar 2022 07:27
Gagnrýnir landsnefndina fyrir að beita sér gegn andstæðingum Trumps Mitch McConnell, leiðtogi Repúblikanaflokksins í öldungadeild Bandaríkjanna, gagnrýndi í kvöld landsnefnd flokksins fyrir að ávíta tvo þingmenn flokksins. Það gerði landsnefndin vegna þess að þingmennirnir tveir taka þátt í rannsókn fulltrúadeildarinnar á rannsókninni á þinghúsið í fyrra. Erlent 8. febrúar 2022 23:53
Telja Rússa undirbúa myndband sem átyllu fyrir innrás Embættismenn innan bandaríska njósnakerfisins telja að Rússar séu nú að undirbúa það að útbúa átyllu fyrir innrás í Úkraínu, þar á meðal tilbúið myndband sem sýni árás af hálfu Úkraínumanna. Erlent 3. febrúar 2022 23:01
Segja fjölgunina í herliði Bandaríkjanna vera „skaðlega“ Stjórnvöld í Rússlandi hafa fordæmt ákvörðun Bandaríkastjórnar að fjölga í herliði Bandaríkjahers í Austur-Evrópu vegna þeirrar spennu sem uppi er á landamærum Rússlands og Úkraínu. Erlent 3. febrúar 2022 06:45
Biden sendir hermenn til Austur-Evrópu Joe Biden, forseti Bandaríkjanna, hefur ákveðið að senda fleiri bandaríska hermenn til Austur-Evrópu. Það ætlar hann að gera vegna þeirrar miklu spennu sem er á svæðinu. Erlent 2. febrúar 2022 15:49
Blóðsöfnun rússneska hersins eykur áhyggjur Bandaríkjanna Ótti Bandaríkjamanna og annarra NATO-ríkja um innrás Rússa í Úkraínu eykst með hverjum deginum. Joe Biden forseti Bandaríkjanna hefur tilkynnt að bandarískir hermenn verði fluttir til Austur-Evrópu á næstu dögum. Erlent 29. janúar 2022 10:30
Lafhræddir Demókratar vilja drífa sig Joe Biden, forseti Bandaríkjanna, vill tilnefna nýjan hæstaréttardómara eins fljótt og auðið er og koma tilnefningu hennar fljótt í gegnum öldungadeildina. Þar á bæ hafa Repúblikanar þegar gefið í skyn að þeir vilji draga ferlið á langinn. Erlent 29. janúar 2022 07:01
Kötturinn Willow flytur í Hvíta húsið Bandaríkjaforseti og fjölskylda hefur nú tekið nýjan meðlim inn í fjölskylduna. Meðlimurinn nýi er enginn annar en kötturinn Willow. Lífið 28. janúar 2022 21:44
Brú hrundi skömmu fyrir heimsókn Bandaríkjaforseta Tíu eru slasaðir eftir að brú hrundi í Pittsburgh í Pennsylvaníu í Bandaríkjunum í dag. Enginn er talinn vera í lífshættu. Erlent 28. janúar 2022 20:03
Varaði Úkraínumenn við að Rússar gætu gert innrás í næsta mánuði Joe Biden Bandaríkjaforseti hefur varað Úkraínumenn við að það sé „greinilegur möguleiki“ að Rússar muni ráðast inn í landið í næsta mánuði. Erlent 28. janúar 2022 06:39
Tjáði sig um ofbeldi sonarins fyrir andlátið: „Ætla aldrei að leyfa honum að koma nálægt mér aftur“ Innlent