Costco-gaurnum þykir jólagjöf Costco heldur nánasarleg Er að spá í að breyta og kalla sig Bláa lóns-gaurinn. Lífið 20. desember 2018 13:43
Svona gerirðu servíettutré Fallega brotin servíetta getur lyft veisluborðinu í nýjar hæðir. Nemendur Hússtjórnarskóla Reykjavíkur kenna okkur einfalt og jólalegt servíettubrot sem gaman er að skreyta jólaborðið með. Jól 20. desember 2018 11:00
Jólavertíðin enn mjög mikilvæg verslunum Dæmi eru um að verslanir reki sig með tapi allt árið til þess eins að rétta sig af í jólavertíðinni. Eyðslugleði Íslendinga er þrátt fyrir allt verslun hér á landi bráðnauðsynleg. Innlent 20. desember 2018 08:45
Gleðileg jól ekki bundin við hluti, eyðslu og óhóf Elsa Kristjánsdóttir, rekstrarstýra hjá UN Women, aðhyllist naumhyggjulífsstíl og er það hennar reynsla að meiri eyðsla og dýrari gjafir skili ekki endilega betri jólum. Hún hvetur alla til að íhuga naumhyggju fyrir jól. Innlent 20. desember 2018 08:15
Eyðum 16 milljörðum meira í jólavertíðinni Hvert ár eyðum við meira en árið áður en aldrei meira en frá síðari hluta nóvember til jóla. Þessir mánuðir voru samanlagt 16 milljörðum króna stærri í fyrra, samanborið við aðra mánuði. Innlent 20. desember 2018 06:15
Bjúgnakrækir kom til byggða í nótt Bjúgnakrækir er níundi jólasveinninn sem kemur til byggða. Hann var fimur við að klifra uppi í rjáfri og stal þar reyktum hrossabjúgum. Jól 20. desember 2018 00:00
Kevin McCallister snýr aftur í jólaauglýsingu Google Macaulay Culkin fer með aðalhlutverk í auglýsingunni og snýr hann aftur sem hinn ástsæli Kevin McCallister úr Home Alone myndunum Lífið 19. desember 2018 20:26
Mikill verðmunur á jólamatnum samkvæmt könnun ASÍ Að því er fram kemur í tilkynningu ASÍ var verðmunurinn mestur á algengum jólamat eins og til dæmis kjöti, gosi, jólaöli og konfekti. Viðskipti innlent 19. desember 2018 11:08
Útlit fyrir rok og rigningu á aðfangadag Fastlega má gera ráð fyrir því að jólaveðrið í ár á höfuðborgarsvæðinu og víðar verði rok og rigning. Spáð er nokkuð hvassri suðvestanátt og talsverðri úrkomu á aðfangadag. Innlent 19. desember 2018 09:30
Með upplýsta Landakirkju á jólum Elva Ósk Ólafsdóttir leikkona tekur alltaf upp Landakirkju fyrir jólin sem faðir hennar, Ólafur Oddgeirsson, smíðaði. Ólafur gaf öllum sex börnum sínum kirkju. Systkinin ólust upp við sams konar kirkju á æskuheimilinu. Jól 19. desember 2018 09:00
Lokanir í miðbænum á Þorláksmessu að venju Laugavegur í Reykjavík verður göngugata á Þorláksmessu. Spáð er ágætis veðri og má því búast við fjölda fólks í miðbæinn. Hin árlega friðarganga verður gengin 39. árið í röð frá Hlemmi. Innlent 19. desember 2018 06:45
Skyrgámur kom til byggða í nótt Skyrgámur er áttundi jólasveinninn sem kemur til byggða. Hann var ægilegur rumur sem þefaði upp skyrtunnur og át þar til hann stóð á blístri. Jól 19. desember 2018 00:00
Fær send myndskeið af fólki að svæfa börn Jón Ólafsson tónlistarmaður tekur að sér tónlistarlegt uppeldi yngstu kynslóðar landsins með tónbókum sem innihalda sérvalin íslensk lög. Tvær nýjar bækur komu út nú fyrir jólin. Lífið kynningar 18. desember 2018 14:00
Fer í jólamessu hjá pabba Anna Margrét Gunnarsdóttir gefur uppskrift að hnetusmjörskökum með tvisti og smákökum með súkkulaðibitum. Hún er mikið jólabarn og finnst desember besti tími ársins. Jól 18. desember 2018 11:00
Allir hefðbundnir í jólatónlist Matthías Már Magnússon hefur valið jólalögin á spilunarlista Rásar 2 undanfarin ár. Hann segir að Íslendingar vilji heyra íslenska jólatónlist en það þurfi að spila lögin á réttum tíma og í réttu magni. Jól 18. desember 2018 09:00
Hurðaskellir kom til byggða í nótt Hurðaskellir er sjöundi jólasveinninn sem kemur til byggða. Honum fannst ekkert skemmtilegra en að skella hurðum og notaði til þess hvert tækifæri sem gafst. Jól 18. desember 2018 00:00
Auðvelt að spegla sig í Jesúbarninu Fyrir Hjalta Jón Sverrisson, nývígðan prest við Laugarneskirkju, snúast jólin um frið, von, samveru og kærleika, en líka súkkulaðimúsina hennar mömmu og NBA-körfubolta á jóladag. Jól 17. desember 2018 12:00
Þægur drengur í jólagjöf Vilhelm Anton Jónsson, eða Vísinda-Villi, nú eða Villi Naglbítur, segir undarlega upplifun að finna rjúpnalykt um páska. Hann fær svo matarmikinn grjónagraut á aðfangadag að hann þarf ekki meira fyrr en um áramót. Jól 17. desember 2018 09:00
Askasleikir kom til byggða í nótt Askasleikir er sjötti jólasveinninn sem kemur til byggða. Hann stal öskum fólks, faldi sig með þá og skilaði ekki aftur fyrr en þeir voru tómir. Jól 17. desember 2018 00:00
Humarsúpa með asísku tvisti Í hádeginu á jóladag bjóða Rúnar Már Jónatansson og eiginkona hans, María Níelsdóttir, öllum afkomendum sínum í dýrindis súpur og hnallþórur. Jól 16. desember 2018 09:00
Pottaskefill kom til byggða í nótt Pottasskefill er fimmti jólasveinninn sem kemur til byggða. Hann hirti skítuga pottana úr eldhúsinu og skóf þá að innan með puttunum. Þá þurfti ekki að þvo þá. Jól 16. desember 2018 00:00
Rímnaljóð og myndlist á Suðurlandi Rímnaljóð og myndlist fer vel saman hjá félögum í Myndlistarfélagi Árnessýslu sem nota tímann vel fyrir jól til að mála og fara með skemmtilegar rímur. Innlent 15. desember 2018 20:00
Mandarínu-möndlukökur: Sætt en sykurlaust jólagóðgæti Telma Matthíasdóttir, þjálfari og eigandi fitubrennsla.is, fór að hafa gaman af eldamennsku og bakstri þegar hún tók heilsu sína í gegn fyrir allmörgum árum. Hún er mikill sælkeri og útbýr alls kyns næringarríkt sætmeti án sykurs. Jól 15. desember 2018 18:00
Piparkökuboð á aðventunni Þórunn Sigþórsdóttir heldur árlega aðventuboð þar sem yngstu gestirnir fá piparkökuhús til að skreyta af hjartans lyst. Það á vel við núna fyrir jólin því hún leikstýrir ævintýraóperunni Hans og Grétu þar sem piparkökuhús kemur við sögu. Jól 15. desember 2018 15:00
Lestur, hefðir, hangikjöt, rjúpur og sem minnst af jólastressi Eftir viðburðaríkar vikur í pólitíkinni hefur þingi verið frestað og þingmenn komnir í jólafrí, heilum níu dögum fyrir jól. Þeir eru farnir að huga að jólamatnum og bókalestri. Jól 15. desember 2018 11:00
Þvörusleikir kom til byggða í nótt Þvörusleikir er fjórði jólasveinninn sem kemur til byggða. Hann var mjór eins og girðingarstaur og þótti best að sleikja þvörur sem notaðar voru til að hræra í pottum. Jól 15. desember 2018 00:00
Mannréttindarskrifstofa borgarinnar og Höfuðborgarstofa unnu jólaskreytingarkeppnina í Ráðhúsinu Það var afar jólalegt í Ráðhúsi Reykjavíkur í dag þegar árleg jólaskreytingakeppni var haldin. Innlent 14. desember 2018 19:15
Einstæðingar feimnir við að þiggja boð í glæsilega jólaveislu Feðgarnir Viktor Joensen og Bergleif Joensen standa fyrir sannkallaðri jólaveislu að kvöldi aðfangadags. Innlent 14. desember 2018 14:54
Bragðbomburnar á Kopar kalla fram minningar Kokkarnir á Kopar fara sínar eigin leiðir og matreiða hefðbundinn jólamat á óhefðbundinn hátt. Litlar bragðbombur trylla bragðlaukana og vekja upp minningar liðinna jóla. Lífið kynningar 14. desember 2018 13:30
Vinnur bug á jólastressi og kvíða Sigríður A. Pálmadóttir, hjúkrunarfræðingur og dáleiðari, hefur náð góðum tökum á jólakvíða með dáleiðslu. Hún segir marga glíma við jólakvíða vegna erfiðra minninga úr æsku. Jól 14. desember 2018 12:00