

Jólavefur Vísis
Allt um undirbúninginn, aðventuna, uppskriftir, jólalög og margt fleira.

Linda Ben mætir á skjáinn í fyrsta sinn
Einn þekktasti uppskriftarhöfundur landsins Linda Benediktsdóttir er væntanleg á skjáinn í fyrsta skiptið í kvöld á Stöð 2 í nýrri seríu, Aðventan með Lindu Ben. Linda sem er fyrir löngu orðin landsþekkt fyrir einstakar uppskriftir sínar og bakstursvörur mun í þáttunum deila nokkrum af sínum uppáhalds uppskriftum og gefa góð ráð fyrir aðventuna.

Bókaumfjöllun: Að hverfa í tómið
Skáldsagan Múffa eftir Jónas Reyni Gunnarsson er til umfjöllunar á menningarvefnum Lestrarklefinn. Rebekka Sif Stefánsdóttir segir þetta um bókina.

Bókaumfjöllun: Kjarkmiklar og áræðnar konur
Aldrei aftur vinnukona er þriðja bókin þar sem Sveinbjörg Sveinbjörnsdóttir fylgir eftir sögu formæðra sinna fyrr á öldum. Jana Hjörvar fjallar um bókina á menningarvefnum Lestrarklefinn og hefur þetta að segja um bókina.

Rauðvínsgljáður sviðakjammi og mysuglassúr á kleinu
Hressó hefur skipað fastan sess í flóru veitingahúsa á Íslandi allt frá árinu 1932. Í dag er rammíslenskur matur í öndvegi en þó með smá tvisti. Afar ólíkar áherslur hafa einkennt reksturinn gegnum árin og kynslóðir tengja Hressó ekki allar við það sama.

Höfundar lesa upp í beinni
Verið velkomin á fyrsta Bókakonfekt ársins í Bókabúð Forlagsins Fiskislóð 39. Hægt er að fylgjast með upplestrinum í beinni útsendingu hér á Vísi.

Upplifun og dýrmætar minningar í jólagjöf
„Óskaskrín er frábær valkostur fyrir fyrirtæki sem vantar jólagjöf fyrir starfsfólkið sitt. Það getur verið mjög snúið að velja gjöf fyrir stóran og fjölbreyttan starfsmannahóp sem allir eru sáttir með og því eru fyrirtækjapakkarnir okkar tilvalin gjöf með allri sinni fjölbreytni og fjölmörgum valmöguleikum til að allir finni eitthvað við sitt hæfi,” segir Hrönn Bjarnadóttir, sölu- og markaðsstjóri Óskaskríns.

Jólaboð sem gleður og yljar á aðventunni
Þann 14. nóvember næstkomandi hefjast sýningar á Jólaboðinu í Þjóðleikhúsinu en sýningin hefur tvisvar áður verið á fjölum leikhússins. Gísli Örn Garðarsson leikstýrir og skrifar handritið ásamt Melkorku Tekla Ólafsdóttur.

Myndaveisla: Snjórinn féll á bjórþyrsta borgara
Margt var um manninn þegar hinn svokallaði J-dagur var haldinn hátíðlega í gærkvöldi. „Snjórinn fellur“ kallast sá viðburður þegar jólabjórinn kemur til byggða 1. nóvember ár hvert.

Nýr og glæsilegur uppskriftavefur frá Nóa Síríus
Nói Síríus opnaði nýjan og glæsilegan uppskriftarvef í gær sem ber nafnið Ljúfa líf. Þar má finna fjölda klassískra og nýrra uppskrifta auk hinna sívinsælu kökubæklinga sem hafa komið úr árlega síðan 1992.

Rithöfundar sjaldan verið í eins harðri samkeppni um athygli og nú
Þrátt fyrir að það hafi komið í ljós í könnun Maskínu á dögunum að yfirgnæfandi meirihluti landsmanna sé ánægður með stjórnarslit þá eru rithöfundar uggandi vegna kosninganna og þeirri fyrirferð sem óhjákvæmilega fylgir þeim. Formaður Rithöfundasambands Íslands segir að það sé smá skellur að fá kosningar ofan í þann tíma sem skipti langmestu máli fyrir bóksölu á Íslandi.

„Þau hlæja að þessum fíflagangi en mér er dauðans alvara“
Græna jólatertan frá Myllunni kann að virðast ósköp venjuleg brún lagkaka með hvítu kremi en fyrir stórum hópi Íslendinga er hún svo miklu meira en það. Stærsti aðdáandi jólatertunnar frystir hana í tugatali til að geta borðað hana árið um kring og hefur jafnvel ferðast með hana til útlanda.

Uppgefin á stressinu um miðnætti
Vinahjón segjast hafa fengið nóg af því að hafa einungis getað valið á milli sælgætis og plastsdrasl eða rándýrra leikfanga fyrir jólasveina til að gefa börnum þeirra í skóinn. Þau ákváðu því að taka málin í eigin hendur og taka á sig þriðju vaktina fyrir jólasveina.

Jólagjöf sem hefur slegið í gegn - Dineout gjafabréf
Dineout gjafabréf er frábær jólagjöf sem sló öll met í fyrra og mörg fyrirtæki hafa valið að gefa matarupplifun í jóla- og tækifærisgjafir í ár.

Jólin byrja í Kjötkompaní
Jólin eru einn stærsti tími ársins hjá Kjötkompaní sem býður upp á mikið úrval af gæða vörum fyrir heimili landsins og fyrirtæki sem eru farin að skipuleggja jólin.

Hvað leynist í jólapökkum starfsfólks?
Í vetur ætlar Vísir að taka ákveðin þemu til umfjöllunar ásamt samstarfsaðilum og af því að við erum komin í blússandi jólaskap ætlum við að taka fyrir jólagjafir fyrirtækja næstu daga. Hvað mun leynast í jólapökkum starfsmanna í ár?

Geitin er risin fyrr en nokkru sinni
IKEA-geitin er risin í Kauptúni og er sérstaklega snemma á ferðinni. Hún hefur undanfarin ár verið tendruð um miðjan október en er nú komin á sinn stað nokkrum dögum fyrr.

Hart barist á hundruð milljóna jólamarkaði
„IceGuys jólatónleikarnir eru orðnir þeir stærstu í lýðveldissögunni,“ sagði Máni Pétursson skipuleggjandi jólatónleika IceGuys í Laugardalshöll hróðugur fyrr í vikunni eftir að nítján þúsund miðar seldust á tónleikana. Það er stór fullyrðing, enda eru tónleikarnir langt frá því að vera einu jólatónleikar ársins. Hart er barist á hundruð milljóna jólamarkaði þar sem framboðið hefur aldrei verið eins mikið.

Allir í jólaskapi í Jólagarðinum
Það styttist og styttist til jóla en það er þó sennilega engin komin í jólaskap nema þá kannski starfsfólk Jólagarðsins i Eyjafirði, sem eru að vinna í kringum jólin allt árið við móttöku á gestum og þarf því að vera í jólaskapi.

Aldrei séð annað eins: IceGuys seldi nítján þúsund miða
Um nítján þúsund miðar hafa selst á jólatónleika IceGuys í Laugardalshöll. Skipuleggjandi segist aldrei hafa séð annað eins, unnið er að því að bæta við aukatónleikum en einungis örfáir miðar eru enn eftir.

Fjörutíu blaðamönnum boðið en enginn mætti
Emmsjé Gauti hyggst snúa aftur heim í Breiðholt með árlega jólatónleika sína Julevenner. Tónleikarnir munu fara fram í glænýju ÍR heimili í ár og flytjast því frá Háskólabíó þar sem þeir hafa farið fram undanfarin ár. Tónlistarmaðurinn hélt blaðamannafund af þessu tilefni þar sem mæting var dræmari en hann átti von á.

Björgvin Halldórs kveður í desember
Jólagestir Björgvins 2024 verða þeir síðustu þar sem Björgvin Halldórsson er gestgjafi. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Senu en líkt og alþjóð veit hefur söngvarinn góðkunni verið andlit tónleikanna frá upphafi.

Leikskólar Árborgar verða lokaðir á milli jóla- og nýárs
Nýtt tilraunaverkefni er að hefjast í leikskólum Árborgar þar sem ákveðið hefur verið að leikskólar verði lokaðir á mill jóla- og nýárs. Þá hefur menntuðum leikskólakennurum fækkað í leikskólum Árborgar, sem er mikið áhyggjuefni en sex leikskólar eru í sveitarfélaginu með um 660 börnum.

Álfa- og jólahúsið í Laugardalnum heyrir sögunni til
Birna Sigmundsdóttir hefur komið upp miklu jólaþorpi í garði sínum að Dragavegi fimm í Laugardalnum ár hvert í fimmtán ár. Nú standa yfir nágrannaerjur við fólk á efri hæðinni sem vill ekkert með skreytingarnar hafa. Birna hefur yfirleitt skreytt garðinn með álfastyttum í stað jólakrauts á sumrin.

Hestar háma í sig jólatré í Þorlákshöfn
Það eru engu líkara en hestar í Þorlákshöfn séu meðvitaðir um hvað sé góð endurnýting því margir þeirra éta jólatré með bestu lyst.

Undur jólanna!
Jólunum er lokið. Sennilega lauk þeim fyrir þó nokkru síðan hjá allflestum. En miðað við hina klassísku 13 jóladaga lauk jólahátíðinni formlega á laugardaginn var, á þrettándanum

Þrettándabrennur víða um land
Þrettándagleði fer nú víða fram um landið en á þessum degi kveðjum við Íslendingar jólahátíðina. Brennur eru í nánast hverju sveitarfélagi.

Fjórtán prósent landsmanna höfðu ekki efni á jólunum
Fjórtán prósent landsmanna höfðu ekki efni á jólahaldinu og er það fimm prósentustigum fleiri en árið á undan. Þetta kemur fram í þjóðarpúlsi Gallup.

Svín með jólasveinahúfu og jólaskraut
Svín á sveitabæ á Suðurlandi hafa notið jólahátíðarinnar ekki síður en mannfólkið, því þau hafa fengið jólaskraut í stíurnar sínar og jólasveinahúfan er á sínum stað á þeim.

Margir eiga í miklum erfiðleikum með að halda jól
Tæpur þriðjungur landsmanna segir krefjandi fyrir sig fjárhagslega að halda jól og tæp tíu prósent eiga í miklum erfiðleikum með hátíðarhöldin. Sjötíu prósent segja jólahaldið þó engin áhrif hafa á skuldastöðu sína.

Katrín og Þorgerður sendu jólakveðju klæddar leðri
Katrín Oddsdóttir lögmaður Náttúruverndarsamtaka Íslands og Þorgerður Ása Aðalsteinsdóttir, tónlistar- og útvarpskona, birtu skemmtilega jólakveðju á samfélagsmiðlinum Instagram.