

NBA
Fréttir úr körfuboltadeild hinna bestu.

Tryggði sigurinn með trylltri flautukörfu frá miðju
Max Strus skoraði ótrúlega sigurkörfu í nótt og kórónaði með því magnaða frammistöðu sína á lokamínútunum þegar Cleveland Cavaliers vann dramatískan 121-119 sigur á Dallas Mavericks í NBA-deildinni í körfubolta.

Segir Guardiola besta þjálfara heims
Joe Mazzulla, þjálfari Boston Celtics, er mikill knattspyrnuaðdáandi en hann horfir mikið upp til Pep Guardiola og nýtir sér hugmyndafræði Spánverjans þó svo að lið hans spili í NBA-deildinni í körfubolta.

Jokic með þrjár þrumuþrennur á aðeins fjórum dögum
Það er eins og samveran með hinum stórstjörnum NBA-deildarinnar á stjörnuhelginni hafi kveikt í Jókernum.

Lögmálsliðar agndofa yfir rödd Zions: „Ég myndi alltaf vilja hafa svona mann á X-inu“
Í Lögmáli leiksins í kvöld verður meðal annars farið yfir slagsmálin í leik New Orleans Pelicans og Miami Heat og rödd ofurstjörnunnar Zions Williamson.

Óstöðvandi Celtics unnu áttunda leikinn í röð
Boston Celtics unnu áttunda leik sinn í röð, 116-102 gegn New York Knicks. Paulo Banchero tryggði Orlando Magic sigur með villuskoti þegar innan við sekúnda var eftir og Kevin Durant varð níundi stigahæsti leikmaður í sögu NBA deildarinnar.

Fór allt í hund og kött í New Orleans
Það fór allt í hund og kött í New Orleans þegar heimamenn í Pelicans mættu Miami Heat. Leiknum lauk með 11 stiga sigri Miami en í fjórða leikhluta sauð upp úr á milli liðanna.

Framlengir til 2026 og verður launahæsti þjálfari deildarinnar
Steve Kerr og Golden State Warriors hafa komist að samkomulagi um tveggja ára framlengingu á samningi þess fyrrnefnda til ársins 2026. Því fylgir launahækkun sem mun gera Steve Kerr að launahæsta þjálfara NBA deildarinnar.

Fjórir leikmenn reknir af velli í fjórða leikhluta
Fjórir leikmenn fengu að fjúka af velli eftir átök sem brutust út í leik Miami Heat og New Orleans Pelicans í nótt.

Durant skýtur til baka á Barkley: „Töluðu um eitthvað neikvætt kjaftæði“
Kevin Durant, leikmaður Phoenix Suns í NBA-deildinni, hefur sent Charles Barkley tóninn eftir að hann gagnrýndi hann fyrir skort á leiðtogahæfileikum.

Lögmál leiksins: Svo virðist Klay ætla að sætta sig við þessa rullu af bekknum
„Nei eða Já“ var á sínum stað í Lögmál leiksins sem sýnt var fyrr í kvöld. Að venju er leikurinn þannig að lögð er fram fullyrðing um NBA-deildina sem sérfræðingar þáttarins þurfa að svara játandi eða neitandi ásamt því að rökstyðja svör sín.

Villufjöldinn í Stjörnuleik NBA segir meira en þúsund orð
Forráðamenn NBA deildarinnar í körfubolta gerðu enn eina breytinguna á Stjörnuleiknum í ár og töluðu fyrir leik um væntingar sínar til harðari keppni inn á vellinum. Annað kom á daginn.

Barátta kynjanna: „Hún setti bara alvöru pressu á Steph Curry“
Í Lögmálum leiksins á Stöð 2 Sport 2 í kvöld verður fjallað um Stjörnuhátíð NBA deildarinnar í körfubolta sem fram fór í Indianapolis um helgina.

Austrið vann Stjörnuleikinn og leikmenn hafa aldrei skorað meira
Það vantaði ekki stigin þegar Austurdeildin fagnaði sigri í Stjörnuleiknum í Indianapolis í nótt.

Ummæli Kenny Smith fóru öfugt ofan í marga
Kenny Smith virðist hafa tekist að ýfa nánast hverja einustu fjöður á bandarísku þjóðarsálinni þegar hann lét dæluna ganga í lýsingu TNT sjónvarpsstöðvarinnar eftir að þriggjastiga einvígi Steph Curry og Sabrina Ionescu.

Lillard vann annað árið í röð og Curry hafði betur í einvíginu
Þriggja stiga keppni NBA-deildarinnar var háð í nótt. Bæði fór hin hefðbundna keppni fram en einnig mættust Steph Curry og Sabrina Ionescu í einvígi bestu skytta NBA og WNBA-deildanna.

Tróð yfir Shaq til að tryggja sigur í troðslukeppninni
Stjörnuhelgin í NBA-deildinni er í fullum gangi en sjálfur stjörnuleikurinn er í kvöld. Í nótt fór troðslukeppnin fram og þar voru sýnd alvöru tilþrif.

Lélegasta skyttan í sögunni
Stjörnuleikurinn í NBA-deildinni fer fram annað kvöld en helgin er að vanda undirlögð af allskonar keppnum og uppákomum. Þriggjastiga keppnin hefur margt fyrir löngu fest sig í sessi sem einn af stærstu viðburðum helgarinnar, en margar af helstu stjörnum deildarinnar hafa spreytt sig á keppninni með takmörkuðum árangri.

Kvikmyndastjörnur og NFL-leikmenn sýndu körfuboltatakta
Stjörnuhelgin í NBA-deildinni fer fram nú um helgina og í nótt var komið að árlegum leik þar sem þekktar stjörnur í Bandaríkjunum fengu að láta ljós sitt skína.

Heiðursstúkan: „Ég hef komið áður og ég hef alltaf tapað“
Það er Stjörnuhelgi NBA deildarinnar fram undan á Stöð 2 Sport og tveir af öflugustu NBA-sérfræðingum Stöðvar 2 Sports mættu í Heiðursstúkuna og spreyttu sig á alls konar spurningum tengdum stjörnuhelginni og NBA.

Handtekinn fyrir að kýla andstæðing á bílastæði fyrir leik
Isaiah Stewart, leikmaður Detroit Pistons, var handtekinn fyrir líkamsárás fyrir leik liðsins gegn Phoenix Suns síðastliðið miðvikudagskvöld.

Handtekinn fyrir að slá annan leikmann fyrir NBA leik
Isaiah Stewart, miðherji Detroit Pistons, var handtekinn fyrir að slá mótherja sinn Drew Eubanks hjá Phoenix Suns í íþróttahúsinu áður en kom að leik liðanna í NBA-deildinni í gær.

Fyrrum NBA meistari handtekinn fyrir heimilisofbeldi
Bryn Forbes, fyrrum leikmaður í NBA deildinni til sjö ára, var handtekinn fyrir heimilisofbeldi.

Sambandsslit hjá Jordan og Pippen
Einu skrýtnasta sambandi síðasta árs er lokið. Erlendir fjölmiðlar fjalla um það að Jordan og Pippen séu hætt saman.

Nýliðinn Wembanyama með magnaðar tölur í nótt
Victor Wembanyama átti frábæran leik í nótt þegar lið hans San Antonio Spurs fór illa með Toronto Raptors í NBA-deildinni í körfubolta.

Doncic í stuði í stórsigri og hetjudáðir Steph Curry tryggðu sigur
Luka Doncic var stigahæsti maður vallarins er Dallas Mavericks vann 35 stiga stórsigur gegn Oklahoma City Thunder í NBA-deildinni í körfubolta í nótt, 146-111.

Kobe Bryant fær ekki eina styttu af sér heldur þrjár
Los Angeles Lakers frumsýndi í nótt nýja styttu af Kobe Bryant en um leið kom í ljós að hann fær ekki eina styttu heldur þrjár.

Fyrrum NBA meistari þarf hjartaígræðslu
Scot Pollard spilaði í meira en áratug í NBA-deildinni í körfubolta og varð NBA meistari með Boston Celtics árið 2008. Hann þarf nú á lífsbjörg að halda.

„Eins og að sjá Jordan í kvennærfatnaði“
Þekktir íþróttakarlar hafa kosið það að tjá sig á sérstakan hátt og kannski til að storka stöðnuðum hugmyndum um karlmennsku.

Hluti af stjörnuhelgi NBA á LED-skjá gólfi
Stjörnuhelgi NBA deildarinnar í körfubolta mun fara fram á óvenjulegu undirlagi í ár því hluti af keppnum helgarinnar fer fram á nýtísku glergólfi.

Lögmál leiksins: Kallið mig rómantíker af gamla skólanum en ég vil fá smá vörn
„Nei eða Já“ var á sínum stað í Lögmál leiksins í gær, mánudag. Þar var farið yfir ótrúlegt stigaskor leikmanna í NBA-deildinni undanfarið. Einnig var farið yfir hversu góðir New York Knicks eru þessa dagana, hvort 65 leikir sé of mikið og hvort Boston Celtics séu á niðurleið.