Norður-Kórea

Norður-Kórea

Höfuðborg: Pyongyang. Mannfjöldi: 26,6 milljónir (2025). Flatarmál: 120.540 ferkílómetrar.


Fréttamynd

Kim fór til Kína

Kim Jong-un, einræðisherra Norður-Kóreu, ferðaðist til Kína yfir nýopnaða brú á milli landanna tveggja. Þetta er fyrsta utanlandsferð Kim sem vitað er af í yfir ár.

Erlent

Fréttir í tímaröð

Fréttamynd

Vopnakapphlaup á Kóreu­skaga

Aukið samstarf Rússlands, Kína, Íran og Norður-Kóreu hefur reynst ríkjunum vel en kannski sérstaklega Norður-Kóreu. Her ríkisins hefur fengið fjölda nýrra vopna á undanförnum árum og hafa forsvarsmenn hans lært af reynslu Rússa í Úkraínu. Ákveðið vopnakapphlaup á sér nú stað á Kóreuskaga þar sem spennan þykir mjög mikil þessa dagana.

Erlent
Fréttamynd

Vilja af­sökunar­beiðni frá Kim vegna jarð­sprengju

Ráðamenn í Suður-Kóreu hafa beðið nágranna sína í norðri um að taka ekki skref sem aukið geta líkurnar á átökum ríkjanna á milli. Norður-Kóreumenn ætla sér að hefja á nýjan leik útsendingar áróðurs yfir landamærin og að auka viðbúnað við hlutlausa svæðið og hafa hótað alvarlegum afleiðingum ef afskiptum af innanríkismálum einræðisríkisins verði ekki hætt.

Erlent
Fréttamynd

Á­hyggju­fullir banda­menn í Asíu: Vilja taka fulla stjórn á eigin vörnum

Forseti Suður-Kóreu kallaði í morgun, þriðjudag, eftir sterku bandalagi við Bandaríkin. Það er eftir að Donald Trump skipaði yfirmönnum bandaríska hersins að draga verulega úr heræfingum með Suður-Kóreu, á þeim grunni að engin ógn stafaði af Norður-Kóreu vegna vinasambands hans og Kims Jong Un og að Suður-Kóreumenn hefðu ekki viljað aðstoða Bandaríkin gegn Íran.

Erlent
Fréttamynd

Al­gjör­lega varnar­lausir gegn skotflaugum Rússa

Rússar skutu 24 skotflaugum, fjórum annars konar eldflaugum og 115 sjálfsprengidrónum að Kænugarði og úthverfum borgarinnar í nótt. Úkraínumenn segjast hafa skotið 98 dróna niður en ekki einustu eldflaug en að minnsta kosti sautján létu lífið í árásinni og tugir eru særðir. Úkraínumenn virðast búnir með flugskeyti sín í einu loftvarnarkerfin sem þeir eiga sem geta verið notuð til að skjóta niður rússneskar skotflaugar.

Erlent
Fréttamynd

Æfðu á­rás á Suður-Kóreu

Skammdrægrum skotflaugum og stórskotaliðsflaugum og öðrum vopnum var skotið á loft frá Norður-Kóreu í morgun. Forsvarsmenn herafla Suður-Kóreu segja að eldflauginni, og öðrum ótilgreindum vopnum, hafi verið skotið á haf út en Norður-Kóreumenn hafa ekki tjáð sig um æfingarnar. Ráðamenn í Rússlandi og Kína lýstu á dögunum yfir andstöðu gegn refsiaðgerðum og viðskiptaþvingunum sem beitt hefur verið gegn einræðisríkinu.

Erlent
Fréttamynd

Norður-Kórea, ís­lensk stjórn­mál og raun­veru­leikinn

Á síðustu misserum hefur farið fram umræða um Sósíalistaflokkinn, hugmyndafræðilega afstöðu innan hans og tengsl ákveðinna einstaklinga við Norður-Kóreu, fyrst og fremst í gegnum Vinafélag Íslands-Norður-Kóreu. Sú umræða er að mínu mati bæði nauðsynleg og löngu tímabær, ekki síst vegna þess hvernig rómantísering á einræðisríkjum og harðstjórn hefur fengið að lifa í jaðri íslensks stjórnmálaumhverfis án nægilegrar gagnrýni.

Skoðun
Fréttamynd

Mesti fjöldi af­taka á heims­vísu í 44 ár

Ekki hafa verið fleiri aftökur í heiminum í 44 ár, eða frá árinu 1981. Á síðasta ári voru 2.707 einstaklingar teknir af lífi í sautján löndum. Þetta kemur fram í nýútkominni árlegri skýrslu Amnesty International um beitingu dauðarefsingarinnar.

Erlent
Fréttamynd

Skuggaskip sem sökk bar mögu­lega kjarna­kljúfa handa Kim

Rússneskt flutningaskip, sem tilheyrði hinum svokallaða „skuggaflota“ bar líklega tvo kjarnakljúfa þegar það sökk undan ströndum Spánar í Miðjarðarhafið. Skipið bar nafnið „Ursa Major“ og sökk seint að kvöldi þann 23. desember 2024 þegar verið var að sigla því, samkvæmt skráningu, til Vladivostok.

Erlent
Fréttamynd

Af­tökum fjölgaði veru­lega í kórónuveirufaraldrinum

Mannréttindasamtökin Transitional Justice Working Group (TJWG) segja aftökum hafa fjölgað verulega í Norður-Kóreu á meðan kórónuveirufaraldurinn stóð yfir. Samkvæmt nýrri skýrslu voru að minnsta kosti 153 teknir af lífi á árunum 2020 til 2024, samanborið við 44 á árunum 2015 til 2019.

Erlent
Fréttamynd

Feðginin prófuðu nýjar skamm­byssur

Kim Jong Un, einræðisherra Norður-Kóreu, og Kim Ju Ae, dóttir hans og væntanlegur arftaki, heimsóttu á dögunum byssuverksmiðju. Þar prófuðu þau meðal annars nýjar skammbyssur með háttsettum herforingjum i er Norður-Kóreu. Degi áður höfðu þau fylgst saman með tilraunum með nýjar stýriflaugar einræðisríkisins.

Erlent
Fréttamynd

„Valsreiturinn... í Pyongyang“

Kristinn Hrafnsson, ritstjóri Wikileaks, birti mynd á Facebook af Kim Jong Un, leiðtoga Norður-Kóreu í höfuðborginni Pyongyang og segir sjást „glöggt“ að Kim-stjórnin hafi „skammlaust stolið íslenskri byggingarlist í heilu lagi“. Umræður hafa spunnist um líkindi milli norður-kóresku bygginganna við Valsreitinn og Borgartúnið.

Lífið
Fréttamynd

Táningsdóttir Kims form­legur arf­taki hans

Kim Jong Un, einræðisherra Norður-Kóreu, ætlar sér að tilnefnda dóttur sína sem formlegan arftaka sinn. Kim Ju Ae hefur fylgt honum eftir í opinberum heimsóknum á undanförnum mánuðum og hefur það þótt til marks um að hann vilji að hún taki við af sér þegar þar að kemur en lítið er vitað um hana.

Erlent
Fréttamynd

Svíar líta til kjarn­orku­vopna

Ulf Kristersson, forsætisráðherra Svíþjóðar, segir að ríkisstjórn hans hafi átt í grunnviðræðum við yfirvöld Í Bretlandi og í Frakklandi um mögulegt samstarf á sviði kjarnorkuvopna. Ummælin þykja benda til þess að ráðamenn í Evrópu telji sig geta mögulega ekki reitt sig á vernd Bandaríkjanna.

Erlent
Fréttamynd

Kim á­nægður með nýjar stýri­flaugar

Yfirvöld í Norður-Kóreu sögðu frá því í morgun að gerð hefði verið tilraun með langdræga stýriflaug sem á að geta borið kjarnorkuvopn. Tveimur slíkum var skotið á loft í gær, nokkrum dögum eftir að Kim Jong Un, einræðisherra Norður-Kóreu, skoðaði kjarnorkuknúinn kafbát sem verið er að smíða þar.

Erlent
Fréttamynd

Sósíal­istar líta til harðstjórnarríkja sem fyrir­mynda

Forsvarsmenn Sósíalistaflokksins hafa ausið ríki með gerræðislegt stjórnarfar eins og Kína, Norður-Kóreu og Rússland lofi á undanförnum misserum. Formaðurinn segir það bull að Ísland sé hluti af lýðræðisríkjum í heiminum og að „sjúkir“ fjölmiðlar ljúgi upp á óvini Bandaríkjastjórnar.

Innlent