

Olís-deild karla
Leikirnir

Fyrrverandi leikmaður Anorthosis hissa á því að þeir hafi rústað Haukum
Fyrrverandi leikmaður Anorthosis á Kýpur var undrandi á því hversu auðveldlega liðið vann Hauka í Evrópubikarnum í handbolta karla. Haukar féllu úr leik fyrir Anorthosis eftir tólf marka samanlagt tap, 62-50.

Stubbarnir í Kaplakrika
Hvolpasveit Vals var aðal barnaefnið í Olís-deild karla á síðasta tímabili. Nú er nýtt efni á dagskránni; Stubbarnir í Kaplakrika.

„Eru að hugsa um sjálfa sig eða einhverja tölfræði eða blablablablabla“
Arnar Daði Arnarsson hélt mikla eldræðu um lið Stjörnunnar í Seinni bylgjunni í gær. Stjörnumenn unnu ÍR-inga, 33-28, á sunnudagskvöldið. Sigurinn var þó tæpari en í stefndi í hálfleik.

Snorri Steinn: Vantar ekki dagana hjá okkur til þess að létta á álaginu
Valur vann í kvöld fimm marka sannfærandi sigur á Selfyssingum. Lokatölur 38-33 í Origo höllinni. Snorri Steinn Guðjónsson, þjálfari Vals, var að vonum sáttur með frammistöðu sinna manna í kvöld.

Umfjöllun: Valur - Selfoss 38-33 | Fagmannleg frammistaða hjá meisturunum
Valur mætti Selfyssingum að Hlíðarenda í kvöld í 8. umferð Olís-deildarinnar. Lauk leiknum með þægilegum sigri heimamanna í Val. Lokatölur 38-33 í leik sem Valur leiddi frá upphafi til enda.

„Það er gaman að fara inn í hálfleik með ellefu mörk en það þarf að sýna gæði áfram“
Patrekur Jóhannesson, þjálfari Stjörnunnar, var sérstaklega sáttur með frammistöðu sinna manna í fyrri hálfleik er liðið tók á móti ÍR í Olís-deild karla í kvöld. Stjarnan var ellefu mörkum yfir í hálfleik 21-10 en misstu forskotið niður í seinni hálfleik. Leikurinn endaði með fimm marka sigri Stjörnunnar 33-28.

Umfjöllun og viðtöl: Stjarnan-ÍR 33-28| Öruggur sigur Stjörnunnar á ÍR
Stjarnan tók á móti ÍR í 8. umferð Olís-deildar karla í kvöld. Stjarnan byrjaði leikinn af krafti og leiddi með ellefu mörkum í hálfleik , 21-10. ÍR-ingar mættu talsvert ákveðnari í seinni hálfleik og tókst að laga stöðuna en Stjarnan hleypti þeim aldrei of nálægt sér og sigruðu að lokum með fimm mörkum, 33-28.

Carlos: Við þurfum að skilja að við erum litla liðið
Carlos Martin Santos, þjálfari Harðar, var ánægður eftir leik þeirra við FH í Olís-deildinni þrátt fyrir 36–31 tap. Fyrir leik bjuggust flestir við stórsigri heimamanna en gestirnir seldu sig mjög dýrt. Þrátt fyrir það var sigur FH-inga aldrei í hættu.

Jónatan: Getum ekki notað álagið sem afsökun
Jónatan Þór Magnússon, þjálfari KA, var að vonum ósáttur eftir tap síns liðs gegn Aftureldingu í Olís-deildinni í dag. Hann segir að liðið hafi ekki sýnt sitt rétta andlit í leiknum.

Umfjöllun og viðtal: FH-Hörður 36-31 | FH upp í fjórða sætið
FH lyfti sér upp í fjórða sæti Olís-deildarinnar í handknattleik eftir fimm marka sigur á Herði frá Ísafirði í dag. Lokatölur 36-31 en sigurinn er sá fjórði í röð hjá FH-ingum.

Umfjöllun og viðtal: Afturelding-KA 34-29 | Fimmti sigur Aftureldingar í röð
Afturelding vann sinn fimmta sigur í röð í Olís-deild karla í handknattleik þegar þeir lögðu KA á heimavelli sínum í Mosfellsbæ í kvöld. Með sigrinum jafna Mosfellingar Framara að stigum í öðru sæti deildarinnar.

Kross 7. umferðar: Lukku Luka og hafnfirsk hryllingsmynd á Hrekkjavöku
Sjöunda umferð Olís-deildar karla í handbolta fór fram í vikunni. Hverjir áttu góðan dag og hverjir slæman? Hverjir þurfa að hafa áhyggjur og hvað sagði tölfræðin? Vísir fer yfir umferðina á léttum og gagnrýnum nótum.

Jafnt hjá KA og Stjörnunni fyrir norðan
KA og Stjarnan gerðu 29-29 jafntefli þegar liðin mættust í Olís-deild karla í handknattleik á Akureyri í kvöld. Stjarnan náði mest sjö marka forystu í leiknum en KA átti frábæra endurkomu og var nálægt því að tryggja sér stigin tvö undir lokin.

Rauða spjald Jóhanns Birgis dregið til baka
Aganefnd HSÍ fundaði í gær og tók þá fyrir mál fjögurra leikmanna sem fengu rautt spjald í 7.umferð Olís-deildar karla um síðustu helgi. Rauða spjaldið sem FH-ingurinn Jóhann Birgir Ingvarsson fékk gegn ÍBV var dregið til baka.

Sendi leikmönnum Harðar sérstök skilaboð í síðasta Seinni bylgju þætti
Jóhann Gunnar Einarsson, sérfræðingur í Seinni bylgjunni, hafði áhyggjur af Harðarmönnum og að leikmenn liðsins skildu ekki ráðleggingarnar frá Seinni bylgju mönnum.

Jóhann Gunnar valdi verstu dómaratuðara Olís-deildarinnar
Hvaða þjálfarar eru duglegastir að tuða í dómurum Olís-deildar karla? Jóhann Gunnar Einarsson reyndi að svara því í Seinni bylgjunni og valdi fimm mestu dómaratuðara deildarinnar.

Umfjöllun og viðtöl: Haukar - Fram 32-34 | Raunir Hauka halda áfram
Raunir Hauka í Olís deild karla í handbolta halda áfram en liðið tapaði með tveggja marka mun gegn Fram á Ásvöllum í kvöld. Fram hefur á sama tíma aðeins tapað einum leik og er aðeins stigi á eftir toppliði Vals. Umfjöllun og viðtöl væntanleg.

„Allar útskýringar hljóma eins og afsakanir eftir svona frammistöðu“
Haukar töpuðu gegn Fram á heimavelli 32-34. Rúnar Sigtryggsson, þjálfari Hauka, var ekki sáttur með fyrri hálfleik liðsins þar sem Haukar voru tíu mörkum undir í hálfleik.

„Varnarleikurinn leggur grunninn að þessu“
„Ég er virkilega sáttur að hafa unnið hérna í kvöld. Það er góð fyrsta tilfinning og á erfiðum útivelli. ÍR-ingar eru búnir að vera spila vel svo að við áttum von á hörkuleik. Þetta var þægilegra í seinni hálfleik, það var smá bras í fyrri,“ sagði Þórir Ólafsson, þjálfari Selfoss, sáttur eftir níu marka sigur á ÍR í Olís-deild karla í kvöld, lokatölur 26-35.

Umfjöllun og viðtöl: ÍR - Selfoss 26-35 | Selfyssingar stöðvuðu sigurgöngu ÍR í Skógarselinu
ÍR-ingar sem hafa verið taplausir á heimavelli síðan þeir flutt í nýtt hús, tóku á móti Selfossi í 7. umferð Olís-deildar karla í handbolta í kvöld. Selfyssingum tókst að binda endi á það í kvöld er þeir unnu níu marka sigur á ÍR. Lokatölur 26-35.

Umfjöllun: Hörður - Afturelding 29-36 | Fjórði sigur Aftureldingar í röð
Afturelding fór á Ísafjörð og vann sjö marka sigur á Herði 29-36. Afturelding var yfir allan leikinn. Heimamenn minnkuðu forskot Aftureldingar niður í tvö mörk þegar sjö mínútur voru eftir en gestirnir svöruðu því og fögnuðu á endanum sjö marka sigri.

Umfjöllun: ÍBV - FH 28-29 | FH-ingar fyrstir til að fara með stig úr Eyjum
FH vann sinn fyrsta leik í Vestmannaeyjum síðan 2018 þegar liðið lagði ÍBV að velli, 28-29, í 7. umferð Olís-deildar karla í dag. FH-ingar urðu þar með fyrsta liðið á tímabilinu til að fara með stig úr Eyjum.

Kross 6. umferðar: Svarthvítur Hafnarfjörður og Essin þrjú á Selfossi
Sjötta umferð Olís-deildar karla í handbolta fór fram í síðustu viku. Hverjir áttu góðan dag og hverjir slæman? Hverjir þurfa að hafa áhyggjur og hvað sagði tölfræðin? Vísir fer yfir umferðina á léttum og gagnrýnum nótum.

FH-ingar hættir að jaskast á Agli
Egill Magnússon, leikmaður FH, spilaði meiddur í upphafi tímabilsins og á endanum ákváð þjálfarateymi liðsins að segja stopp.

Umfjöllun og viðtöl: Stjarnan - Hörður 28-25 | Stjarnan aftur á sigurbraut
Stjarnan vann sterkan þriggja marka sigur er liðið tók á móti Herði frá Ísafirði í Olís-deild karla í handbolta í dag, 28-25. Stjörnumenn höfðu ekki unnið deildarleik frá því í fyrstu umferð og var sigurinn því langþráður.

Hannes fær Sigtrygg lánaðan: „Held við séum allir að græða“
Sigtryggur Daði Rúnarsson, leikmaður ÍBV, hefur verið lánaður til Alpha Hard í Austurríki sem Hannes Jón Jónsson stýrir. Erlingur Richardsson, þjálfari ÍBV, staðfesti þetta við Vísi eftir tapið fyrir Aftureldingu, 31-26, í dag.

Umfjöllun og viðtöl: Afturelding - ÍBV 31-26 | Mosfellingar fyrstir til að vinna Eyjamenn
Afturelding varð í dag fyrsta liðið til að vinna ÍBV í Olís-deild karla þegar liðin áttust við á Varmá í Mosfellsbænum. Lokatölur 31-26, Aftureldingu í vil. Þetta var þriðji sigur liðsins í röð.

„Ég held að ég taki þessar síðustu þrjár lokamínútur bara á mig“
Róbert Gunnarsson, þjálfari Gróttu, var niðurlútur eftir jafntefli sinna manna gegn Fram í Úlfarsárdal í kvöld. Lokatölur 29-29, en Grótta leiddi leikinn með fjögurra marka mun þegar um þrjár mínútur voru eftir af leiknum.

„Nú bara fengum við einn á kjaftinn“
Jónatan Magnússon, þjálfari KA, var eðlilega ósáttur eftir tíu marka tap sinna manna gegn Selfossi í Olís-deild karla í handbolta í kvöld. Hann segir að leikurinn hafi í raun verið farinn í hálfleik og að sínir menn hafi einfaldlega átt vondan dag á Selfossi.

Umfjöllun og viðtöl: Selfoss - KA 34-24 | Heimamenn kláruðu dæmið í fyrri hálfleik
Selfyssingar unnu afar öruggan tíu marka sigur er liðið tók á móti KA í Olís-deild karla í handbolta í kvöld, 34-24. Heimamenn höfðu níu marka forskot í hálfleik og sigur þeirra var aldrei í hættu eftir það.