
Uppgjörið og viðtöl: Valur - Afturelding 39-25 | Valsmenn jafna einvígið með stórsigri
Valur valtaði yfir Aftureldingu og sigraði með fjórtán mörkum, 39-25, í öðrum leik liðanna í undanúrslitum Olís-deildar karla í handbolta í kvöld.
Valur valtaði yfir Aftureldingu og sigraði með fjórtán mörkum, 39-25, í öðrum leik liðanna í undanúrslitum Olís-deildar karla í handbolta í kvöld.
Fjölnir tryggði sér sæti í Olís deild karla á næsta tímabili með 24-23 sigri gegn Þór í oddaleik umspilsins í Grill 66 deildinni.
Aron Pálmarsson fór meiddur af velli í naumu tapi FH fyrir ÍBV í undanúrslitaeinvígi liðanna í Olís-deild karla í gær. Hann fékk mikinn verk í fingur og mun fara í myndatöku síðar í dag.
ÍBV tryggði sér oddaleik gegn FH í undanúrslitum Olís-deildar karla í gær á ótrúlegan hátt.
„Vil bara segja að ég er ofboðslega stoltur af liðinu mínu, hvernig það lagði sig allt í verkefnið í dag,“ sagði Sigursteinn Arndal, þjálfari FH, eftir að liðið tapaði fyrir ÍBV í vítakeppni eftir tvíframlengdan leik í undanúrslitum Olís-deildar karla í handbolta.
„Já ég myndi nú segja það,“ sagði Eyjamaðurinn Kári Kristján Kristjánsson einfaldlega aðspurður hvort sigur ÍBV á FH í Vestmannaeyjum í undanúrslitum Olís-deildar karla í handbolta væri einn ótrúlegasti leikur á hans ferli.
FH og ÍBV þurfa að mætast í oddaleik í undanrslitum Olís-deildar karla í handbolta en það varð ljóst eftir að Eyjamenn knúðu fram sigur í fjórða leik liðanna í einvíginu í Íþróttamiðstöðinni í Vestmannaeyjum í dag.
FH misnotaði tækifærið til að tryggja sér farseðilinn í úrslitin en liðið tapaði gegn ÍBV 28-29. FH er 2-1 yfir í einvíginu. Sigursteinn Arndal, þjálfari FH, var svekktur eftir tap kvöldsins.
ÍBV vann ótrúlegan eins marks sigur gegn FH 28-29 í Kaplakrika. Elmar Erlingsson, leikmaður ÍBV, var hetja Eyjamanna þar sem hann gerði sigurmarkið en FH er 2-1 yfir í einvíginu og því var sigur Eyjamanna lífsnauðsynlegur.
ÍBV vann ótrúlegan eins marks sigur 28-29. Elmar Erlingsson kórónaði stórkostlegan leik með því að gera sigurmarkið en hann skoraði samtals 15 mörk.
Valsmenn hafa samið við færeyska skyttu um að spila með liðinu á næstu leiktíð.
Afturelding vann þriggja marka sigur á Val í fyrsta leik liðanna í undanúrslitum Olís-deildar karla í kvöld. Gunnar Magnússon, þjálfari Mosfellinga, var eðlilega ánægður með sína menn.
Afturelding sigraði Val, 28-25, í fyrsta leik liðanna í undanúrslitum í úrslitakeppni Olís-deildar karla í Mosfellsbæ í kvöld. Mosfellingar sigruðu að lokum með þremur mörkum í sveiflukenndum leik og eru komnir yfir í einvíginu en sigra þarf þrjá leiki til þess að tryggja sér sæti í úrslitaeinvíginu.
Þórir Ólafsson er hættur sem þjálfari karlaliðs Selfoss í handbolta og Spánverjinn Carlos Martin Santos mun taka við stjórn liðsins.
Magnús Stefánsson, þjálfari ÍBV, var heilt yfir ánægður með frammistöðu leikmanna sinna þó svo að liðið hafi lotið í lægra haldi fyrir FH í fyrsta leik liðanna í undanúrslitum Olísdeildar karla í handbolta í Kaplakrika í kvöld.
Sigursteinn Arndal, þjálfari FH, var að vonum sáttur við lærisveina sína þegar liðið komst yfir í 1-0 í rimmu sinni við ÍBV í undanúrslitum Olísdeildar karla í handbolta í Kaplakrika í kvöld.
FH lagði ÍBV að velli, 36-31, þegar liðin áttust við í fyrsta leik sínum í undanúrslitum Olís deildar karla í Kaplakrika.
Hergeir Grímsson er genginn til liðs við Hauka og mun spila með liðinu í Olís-deild karla í handbolta á næstu leiktíð. Frá þessu greindu Haukar á samfélagsmiðlum sínum fyrr í dag.
Sveinn Andri Sveinsson er genginn í raðir Stjörnunnar og mun spila með liðinu í Olís-deild karla á næstu leiktíð.
Handknattleikssamband Íslands hefur sett upp leikjadagskrá fyrir undanúrslit í úrslitakeppni Olís deildar karla og þar þurftu menn að leysa ákveðin vandamál.
Afturelding er komin í undanúrslit um Íslandsmeistaratitilinn í handbolta eftir ellefu marka sigur á Stjörnunni í kvöld 35-34. Afturelding vann einvígið 2-1.
Gunnar Magnússon, þjálfari Aftureldingar, var gríðarlega sáttur með frammistöðu sinna manna er þeir tóku á móti Stjörnunni í 8-liða úrslitum Olís-deildar karla í kvöld. Afturelding var með yfirhöndina frá fyrstu mínútu og unnu að lokum ellefu marka sigur 35-24 sem tryggði liðinu sæti í undanúrslitum.
Haukar töpuðu gegn ÍBV 31-37 og eru úr leik í úrslitakeppninni. Stefan Rafn Sigurmannsson, leikmaður Hauka, tilkynnti að þetta hafi verið hans síðasti leikur á ferlinum.
Stefán Rafn Sigurmannsson hefur ákveðið að leggja skóna á hilluna. Þetta staðfesti hann í viðtali við Stöð 2 Sport og Vísi eftir tap Hauka gegn ÍBV í úrslitakeppni Olís-deildar karla í handbolta. Tapið þýðir að Haukar eru úr leik.
ÍBV vann sex marka útisigur gegn Haukum 31-37. ÍBV vann einvígið 2-0 og hefur tryggt sér farseðilinní undanúrslitin.
FH tryggði sér sæti í undanúrslitum Olís deildar karla með 25-19 sigri gegn KA fyrir norðan. Fyrri leikurinn vannst 30-28 í Hafnarfirði.
Úrslitakeppnin í handbolta er farin á fullt og búast flestir við því að baráttan um Íslandsmeistaratitilinn muni standa á milli FH og Vals.
Stjarnan lagði Aftureldingu í 8-liða úrslitum Olís-deildar karla í handbolta sem þýðir að það þarf oddaleik til að skera úr um hvort liðið kemst í undanúrslit.
Valur varð fyrsta liðið til að tryggja sér sæti í undanúrslitum Olís deildar karla með tveimur öruggum sigrum gegn Fram. 41-23 í fyrri leik og 24-36 sigur í dag.
ÍBV vann tveggja marka sigur, 33-31, gegn Haukum í fyrsta leik í 8-liða úrslitum Olís deildar karla.