
Birtist í Fréttablaðinu

Bankastjórinn á Brúnni slær í gegn
Maurizio Sarri hefur umbylt leikstíl Chelsea síðan hann tók við liðinu fyrir tæpum fjórum mánuðum.

Ekki gætt að hagsmunum fólks með fötlun við rannsókn mála
Breyta þarf lögum sem gilda um skýrslutökur við meðferð sakamála til að bæta réttarstöðu fatlaðs fólks. Leggja til að verjandi sakbornings verði ekki viðstaddur fyrstu skýrslu af brotaþola.


Áralangar deilur um hávaða í fjöleignarhúsi enduðu fyrir dómi
Kona í Garðabæ var í Héraðsdómi Reykjaness fyrir tæpum hálfum mánuði sýknuð af kröfu húsfélags um að henni yrði gert skylt að flytja úr íbúð sinni í húsinu og að henni yrði gert að selja fasteignina.

Settu í fyrsta gír á Grænlandi
"Þegar hrunið skall á var ég fimmtán ára, að verða sextán. Ég stundaði nám í tíunda bekk í Hlíðaskóla. Reyndar varð rask á skólagöngunni þennan vetur og ég kláraði í grunnskólanum á Ísafirði,“ segir Íris Ösp Heiðrúnardóttir um októbermánuð árið 2008.

Héldum bara áfram að prjóna og taka slátur
Fyrir tíu árum voru foreldrar Sigurjóns Geirs Eiðssonar á heimleið af fæðingardeildinni með hann. Þau kveiktu á útvarpinu og hlustuðu á Geir Haarde biðja guð um að blessa Ísland á ferð undir Hafnarfjalli.

Staðan í bandarískum stjórnmálum mánuði fyrir kosningar
Í dag er sléttur mánuður þar til Bandaríkjamenn ganga að kjörborðinu. Skoðanakönnunum og stjórnmálaskýrendum í Bandaríkjunum ber saman um að Demókratar séu líklegir til þess að fá meirihluta sæta í fulltrúadeildinni.

Slökun, sítrusávextir og hollur heimalagaður matur
Dr. Teitur Guðmundsson gefur lesendum góð ráð til að verjast pestum vetrarins.

Missti föður sinn og bróður
Alex Ford er fædd árið 1993. Hún er tuttugu og fimm ára gömul námskona og listamaður. Hún segist muna afar lítið eftir upphafi hrunsins og mótmælunum sem urðu í kjölfarið.

Sprunginn markaður sem skaðar greinina
Mjólkurframleiðendur fá aðeins brot af því greiðslumarki sem þeir ætla sér að kaupa. Dæmi um að bændur hafi fengið 0,0000184 prósent af þeim kvóta sem þeir vildu kaupa. Formaður Landssambands kúabænda segir kerfið sprungið.

Notum bara það nýjasta og ferskasta
Tjöruhúsið er merkilegt kennileiti á Ísafirði. Það er eitt af friðlýstu húsunum í Neðstakaupstað, fulltrúum 18. aldar. Húsið hefur breyst í vel metinn veitingastað og betri fiskur en þar er framreiddur er vandfundinn.

Samhugur fólks bjargaði geitunum
Þetta er fyrsta árið í tuttugu ár sem við erum í plús,“ segir Jóhanna Þorvaldsdóttir um rekstrarstöðuna á geitabúinu á Háafelli.

Fantasíur hins einstaka Karls Dunganon
Fyrsta yfirlitssýningin á verkum listamannsins í Listasafni Íslands. Sérstakur persónuleiki og sérstæður listamaður. Bók á leiðinni.

Túristaþyrla í Hornvík vekur furðu Ísfirðinga
Bæjarstjórn Ísafjarðarbæjar vill að Umhverfisstofnun svari því hvort sveitarfélagið geti bannað þyrluflug og -lendingar í friðlandinu á Hornströndum. Ferðaþjónustufyrirtæki hafi brotið gegn takmörkunum sem settar voru 2014.

Orkuveitan og kynlífs-költið
Mildan vormorgun árið 2011 gekk Catherine Oxenberg eftir Venice Beach í Los Angeles ásamt nítján ára dóttur sinni, Indiu. India átti sér þann draum heitastan að opna bakarí og hafði Catherine skráð mæðgurnar á námskeið í rekstri fyrirtækja. Þann dag upphófst áralöng martröð kvennanna tveggja.

Hlutlaus fræðimaður?
Ýmsir vinstrimenn á Íslandi hafa átt andvökunætur undanfarið vegna skýrslu doktors Hannesar Hólmsteins Gissurarsonar um aðgerðir erlendra yfirvalda í bankahruninu.

Ógæfan varð styrkur minn
Bubbi Morthens gerir upp kynferðislega misnotkun í ljóðabók. Hann segir það stórkostlega reynslu að vera loks frjáls frá því sem hélt honum í fjötrum svo lengi. Vinnur að nýrri plötu og síðan taka við tónleikar víðs vegar.

Verðum að spila betur á lengri köflum
Erik Hamrén krefst þess af sínum leikmönnum að þeir bæti sig frá fyrstu leikjum hans við stjórnvölinn hjá íslenska karlalandsliðinu.

Kom mér skemmtilega á óvart
Jón Dagur Þorsteinsson er eini nýliðinn í hópi íslenska karlalandsliðsins sem mætir Frakklandi og Sviss. Jón Dagur segir að valið hafi komið honum að vissu leyti á óvart þó svo að honum finnist það verðskuldað.

Telur að frumvarp um veiðigjöld myndi hvata til að skerða hlut sjómanna
Það að greiða veiðigjöld af afla þremur árum eftir að hann er veiddur er léttvægt vandamál og kallar ekki eitt og sér á lagabreytingu á veiðigjöldum.

Finna þarf urðunarstað fyrir óvirkan úrgang á Suðurlandi
Meirihluti bæjarstjórnar Ölfuss vill ekki nýjan sorpurðunarstað í sveitarfélaginu. Urðunarstaðurinn hafði verið hugsaður sem framlag Suðurlands í samvinnu sorpsamlaga á Suðvesturlandi.

Fátæku börnin í Reykjavíkurborg
Af þeim tæplega átta hundruð börnum foreldra sem þiggja einhvers konar fjárhagsaðstoð frá Reykjavíkurborg búa 28 prósent í Breiðholti. Borgarfulltrúi segir fátækt fólk hafa einangrast þar og ekkert barn ætti að þurfa að lifa undir

Afdrif áhrifamanna í bankakerfinu
Bankastjórar, stórir hluthafar í bönkunum og aðrir áhrifamenn í fjármálalífinu hurfu margir hverjir úr sviðsljósinu í kjölfar fjármálahrunsins. Flestir þeirra hafa þó náð að fóta sig að nýju.

8000 teskeiðar
Meðaljóninn í okkar heimshluta brennir um það bil fimmtungi þeirra hitaeininga sem afi hans og amma gerðu í daglegu amstri. Ræktin, fjallgöngur, útihlaup og hreyfing til heilsubótar er ekki talið með.

Höfum sofið á verðinum hvað það varðar að stýra vinnuálagi
Klara Bjartmarz, framkvæmdastjóri KSÍ, skilur vel áhyggjur starfsmanna sambandsins. Dreifa þurfi álaginu betur á milli starfsmanna sem þurfi einnig að skilja betur á milli vinnu sinnar og frítíma.

Flunkuný Nintendo Switch á leiðinni
Japanski tölvuleikjarisinn Nintendo áformar að setja á markað uppfærða útgáfu af leikjatölvunni Nintendo Switch á næsta ári.

Fjárfestar áhugasamir um kísilverksmiðjuna í Helguvík
Undirbúningur fyrir söluferli kísilverksmiðjunnar í Helguvík er langt kominn og hefur á þriðja tug fjárfesta lýst yfir áhuga.

Sárnar ummæli Breta
Donald Tusk, forseti leiðtogaráðs Evrópusambandsins, sagði í gær að ummæli Jeremys Hunt, utanríkisráðherra Bretlands, væru særandi.

Græn orka tvöfaldast á aðeins tveimur árum
Endurnýjanleg, græn orka, hefur tekið stökk upp á síðkastið en rafmagnsbílar eiga þar stærstan þátt. Um tíu þúsund bílar geta gengið fyrir rafmagni hér á landi.

Demókratar eru ósáttir við Kavanaugh-skýrslu
FBI skilaði skýrslu um rannsókn á ásökunum á hendur Brett Kavanaugh. Demókratar gagnrýna takmarkað umfang skýrslunnar, segja hana ókláraða.